Stjórnlagaráð ESB-sinna kallað saman !


   Forkastanleg vinnubrögð meirihluta Alþingis varðandi stjórnarskrá
lýðveldisins Íslands.  Liggur hundflatt fyrir tilmælum frá Brussel um að
kalla saman ólöglegt stjórnlagaráð til að gera lokatilraun í því breyta
stjórnarskrá Íslands með tilheyrandi fullveldisframsali svo Ísland geti
gerst aðili að ESB á næsta kjörtímabili. Óðagotið er algjört, enda málið
að falla á tíma. -  Skiptir  þá  engu hvort málið sé algjörlega tæknilega
óþingtækt. Fullveldisframsalið skal ná fram hvað sem það kostar! Og til
að toppa aðförina að fullvalda Íslandi skal setja blátt bann við herskyldu
í stjórnarskrá, sem er heimsmet í rasisma gegn eigin þjóð!

   Athygli vekur að sósíaldemókratarnir í Hreyfingunni fóru fyrir aðförinni,
enda helsta hjólið undir hinni þjóðfjandsömu ríkisstjórn í dag. Þá vekur
einnig athygli hversu margir voru fjarstaddir  sem á tyllidögum lofsyngja
sig sem ESB-andstæðinga.  Hræsnin algjör!

   LÁGKÚRA Alþingis setti enn eitt stórmetið í  dag.  -   BURT MEÐ ÞAÐ! 
mbl.is „Þetta eru forkastanleg vinnubrögð“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband