Forsetakjör.Mikill ótti í herbúðum ESB-og Icesavesinna!


   Sú ákvörðun forseta Íslands Herra Ólafs Ragnars Grímssonar,
að skoða aftur framboð í ljósi einstakrar áskorunar þjóðarinnar,
hefur augljóslega  valdið miklum ótta í herbúðum ESB-sinna og
þeirra er  enn  vilja  binda  ólöglegar Icesave-drápsklyfjar um
þjóðina. Því þeir vita að gefi Ólafur kost á sér aftur mun þeirra
strengjabrúða engan möguleika hafa í stól Bessastaða. Og þar
með yrði ný icesave-svík þeirra  endanleg úr sögunni , auk þess
sem mjög sterkur öryggisventill um fullveldi Íslands yrði enn til
staðar á Bessastöðum. Er gerði veika stöðu ESB-aðildar endan-
lega vonlausa. Úr sögunni!

    Skiljanlega kraumar gremja ESB-og Icesavesinna nú sem aldrei
fyrr. Því allar líkur eru á að forseti vor bregðist við ákalli þjóðarinnar
á jákvæðan hátt. Brjóti enn blað í sögu forsetaembættisins   og
ljúki fimmta kjörtímabili sínu. Fyrir sína íslenzku þjóð!

    Tími ÞJÓÐHYGGJUNNAR er að rísa! Ekki bara á Íslandi. Heldur
víða um heim.

    ÁFRAM ÍSLAND!

  

   


mbl.is Lýðræðisleg skylda að skoða málið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já Áfram Ísland ekkert ESB.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 28.2.2012 kl. 11:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband