Rammpólitískar forsetakosningar. Gott mál!
12.3.2012 | 00:16
Við hverju bjuggust ESB-sinnar? Og sérstakllega forystulið
Icesave-stjórnarinnar? Þegar ein mesta aðför þeirra sjálfra að
fullveldi og sjálfstæði Íslands á nú sér stað um þessar mundir.
Með umsókn þeirra að ESB. Og halda þessir sömu það að þjóðin
sem í tvígang með atbeina núverandi forseta, tókst að atstýra
einni alvarlegustu atlögu sem gerð hefur verið að framtíðar
greiðsluþoli þjóðarinnar með Icesave-svikunum, sé búin að
gleyma því?. - En bæði þessi stórpólitísku hitamál hafa klofið
þjóðina í herðar niður. Í hatrammar pólitískar deilur og átök. Og
sem hvergi nærri sér fyrir enda á.
Í ljósi þess að enn stendur stríðið um fullveldi og sjálfstæði Ís-
lands sem hæst, og allt getur enn gerst varðandi Icesave, er
ekki að furða að allir sannir Íslendingar ákalli forseta sinn, sem
svo sannarlega hefur staðið með þjóð og fullveldi í hita leiks.
Því í raun munu ekki bara komandi forsetakosningar, heldur
einnig komandi þingkosningar, snúast um fullveldi og sjálfstæði
Íslands. Það skulu mótframbjóðendur forseta átta sig á! Þeir
munu ekki sleppa við að taka hreina og klára afstöðu til þeirra
alvarlegu pólitísku stríðsátaka!!!
Orrustan um Ísland er hafin! Stríðshanska andþjóðlegra afla
hefur verið kastað! Þau hafa nú kallað á rammpólitískar forseta-
kosningar. Og verði þeim að góðu! Því við því verður brugðist af
hörku til varnar fullveldi og sjálfstæði Íslands!
HEILL FORSETA VORUM ! ÁFRAM ÍSLAND!
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.