RÚV-áróðurinn gegn forsetanum heldur áfram!


   Þrátt fyrir hina miklu gagnrýni á RÚV fyrir pólitíska
hlutdrægni í forsetakosningunum, heldur áróður RÚV
gegn  forsetanum  áfram. - Þannig  var  þátturinn Í
VIKULOKIN undir stjórn hins sósíaldemókrataíska
þáttarstjórnenda, Hallgríms Thorsteinssonar nær allur
tileinkaður áróðri og neikvæðri umræðu um forsetann.
Eða a.m.k 60% þáttarins frá upphafi hans fór í þennan
skipulagða áróður. En í þættinum voru valinkunnir
sósíaldemókratar, þau Helga Vala Helgadóttir, Guðm.
Steingrímsson  stjórnarþingmaður,  og  svo  einn  af
sósíaldemókrötunum úr þingliði Sjálfstæðisflokksins,
Tryggvi Þór.

   Greinilegt er að RÚV ætlar að halda uppteknum hætti
í sinni hlutdrægni í forsetabarátunni. Þetta sósíaldemó-
krataíska RÚV sem löngu er orðið tímabært að stokka
upp frá grunni, svo framarlega sem það á að fá krónu
úr ríkissjóði sem hlutlaust RÚV  ALLRA LANDSMANNA!.... 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Heill og sæll Guðmundur Jónas; sem jafnan !

Hann er orðinn langur; vegurinn frá tíma Andrésar heitins Björnssonar (yngra) Útvarpsstjóra, þegar hann lét sér duga aflóga bílskrifli, til að komast að heiman til starfs síns - en núverandi eftirmaður hans, kýs að hafa 10 - 15 Milljóna Króna æki, undir sinn bakhluta, eða; síðast þegar ég vissi, alla vega.

Fyrir nú utan; þá andlegu fátækt og kröm, sem hrjáir Pál garminn Magnússon, að öðru leyti.

Með kveðjum góðum; úr Árnesþingi / 

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 19.5.2012 kl. 15:43

2 Smámynd: Gunnar Heiðarsson

Aldrei hélt ég að þeirri hugmynd myndi skjóta upp í kolli mér að rétt væri að leggja niður útvarp allra landsmanna, en upp á síðkastið hef ég æ oftar látið þetta hvarfla að mér. Ég hef ætíð talið að einkarekinn ljósvakafjölmiðill gæti verið hættulegur í svo litlu þjóðfélagi sem við byggjum og vissulega hefur rekstur Stöðvar 2 oftar en ekki staðfest þann grun.

En útvarp allra landsmanna verður aldrei allra þegar einhver lítill hópur hefur yfirtekið þá stofnun. Sú er reyndin nú. Hvort rétt sé þá að leggja það niður er svo spurning. Kannski er betra að ráðast gegn meininu, hinu pólitíska meini sem hrjáir stofnunina og útríma því.

Nú hafa kratar hreiðrað um sig innan stofnunarinnar og Palli greiið ræður ekki við eitt né neitt. Hann er fráleitt starfi sínu vaxinn.

Hvernig hægt er að uppræta þetta mein stofnunarinnar og koma í veg fyrir að það endurtaki sig, er aftur vandi sem erfitt er að leysa. Hugsanlega væri hægt að endurskipuleggja útvarpsráð og skipa það fólki sem ekki tengist stjórnmálaflokkum. Gefa því víðtæk völd til að reka þá sem gerast uppvísir að því að hygla einum umfram annan. Hugsanlega er einhver önnur lausn til.

En að hafa hér einungis einkarekna ljósvakamiðla hugnast mér ekki. Ef engin lausn finnst til að útvarp allra landsmanna geti orðið allra, gæti þó verið réttlætanlegt að fara þá leið og leggja niður RUV.

Gunnar Heiðarsson, 19.5.2012 kl. 20:16

3 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Takk Óskar og Gunnar. Það hlýtur að verða fyrsta verk okkar þjóðfrelsissinna þegar við  tökum völdin eftir kosningar að moka út
öllum sósíaldemókrataíska flór sem virðist hafa breitt um sig um nær
allt stjórnkerfið og stofnanir þess. RÚV er gott dæmi um þetta.
Þetta verður mikil og þörf hreingerning og frumforsenda endurreisn Íslands
á íslenzkum forsendum!

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 19.5.2012 kl. 20:38

4 Smámynd: Elle_

Mikið sammála ykkur.  Gunnar þú segir: >Hugsanlega væri hægt að endurskipuleggja útvarpsráð og skipa það fólki sem ekki tengist stjórnmálaflokkum.<

En er útvarpsráð pólitískt skipað?  Vil ekki trúa því en það mætti halda það miðað Brussel-ICESAVE-ríkisstjórnarslagsíðuna.  Það væri fásinna að hafa pólitískt skipað útvarpsráð og ætti að banna með lögum. 

Elle_, 19.5.2012 kl. 21:13

5 identicon

"...þegar við  tökum völdin eftir kosningar að moka út
öllum sósíaldemókrataíska flór sem virðist hafa breitt um sig um nær
allt stjórnkerfið og stofnanir þess."

Ef satt skal segja, finnst mér þessi hugsun frekar ógnvekjandi.  Sem betur fer Ísland enn lýðræðisríki þar sem fólk hefur frelsi til orðs og æðis.

H.T. Bjarnason (IP-tala skráð) 19.5.2012 kl. 21:18

6 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

H.T í dag ríkir ÓGNANDI ríkisstjórn sem vílar ekki fyrir sér að fara gegn
þjóðarvilja í hverju stórmálinu á fætur öðru, sbr. Icesave og ESB-umsóknin.
Svona óþjóðholl ÓGNANDI stjórn á að mæta AF HÖRKU ætlar hún enn og
aftur fara fram gegn þjóðarvilja!

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 19.5.2012 kl. 21:57

7 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Takk Elle!

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 19.5.2012 kl. 21:58

8 Smámynd: Elle_

Já, nákvæmlega, við erum með ÓGNANDI ÓGNARSTJÓRN sem ætlar að troða öllu ofan í kok á almenningi og valta yfir hann þó við eigum að HEITA lýðræðisríki.

Elle_, 19.5.2012 kl. 22:02

9 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Við höfum víst ekki tíma til að mótmæla fyrir framan stofnunina,sem væri réttlætanlegt.

Helga Kristjánsdóttir, 19.5.2012 kl. 22:43

10 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Takk Helga. 100% sammála!

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 20.5.2012 kl. 00:17

11 Smámynd: Sveinn R. Pálsson

Hægribullur.

Sveinn R. Pálsson, 20.5.2012 kl. 08:46

12 Smámynd: Ragnar Geir Brynjólfsson

Með núverandi fyrirkomulagi tekst almannaútvarpinu ekki að rækja lýðræðislegt öryggishlutverk sitt. Sjá efnisflokk pistla sem ég hef skrifað um RÚV:

http://ragnargeir.blog.is/blog/ragnargeir/category/1661/

En raunar má segja að þetta þurfi ekki að koma á óvart af því að í raun kemur RÚV fram á hverjum tíma sem eitt af stjórntækjum framkvæmdavaldsins - þrátt fyrir lög sem eig að tryggja hlutleysi.

Það rímar við það að við erum með stjórnarskrá sem felur þjóðkjörnum forseta framkvæmdavaldið, en í raun er það vald afhent stjórnmálaflokkum sem hafa meirihluta á löggjafarsamkundunni.

Ragnar Geir Brynjólfsson, 20.5.2012 kl. 13:02

13 Smámynd: Skeggi Skaftason

Síðan hvenær er Tryggvi þór orðinn "einn af sósíaldemókrötunum úr þingliði Sjálfstæðisflokksins"???

Skeggi Skaftason, 20.5.2012 kl. 14:21

14 Smámynd: Elle_

Hvað er Sveinn að fara?  Hvaða hægri hvað?

Elle_, 20.5.2012 kl. 14:29

15 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Tryggi Þór kemur úr VINSTRINU Skeggi. Á yngri árum Allaballi. Enda hans
viðhorf mjög lituð af svona klassískum sósíaldemókrataískum viðhorfum. Sem m.a birtist í stuðningi hans við Icesave.
Sem HÆGRI GRÆNN lít ég alla vega á hann sem einn af mörgum sósíaldemókrötum innan Sjálfstæðisflokksins.

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 20.5.2012 kl. 21:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband