Þóra! Já þú ert ramm-ramm pólitísk!
11.6.2012 | 00:17
Það er með hreinum ólíkindum hvernig Þóra Arnórsdóttir
forsetaframbjóðandi, skuli komast upp með það í hverju
viðtalinu á fætur öðru að vera ekki pólitísk. Nú síðast á
Sprengisandi á Bylgjunni í gær. Því í raun er hún með
þeim alpólitísku sem eru í framboði í dag!
Þannig hefur Þóra aðhyllst mjög sterka pólitíska grunn-
hugmyndarfræði frá blauti barnsbeini. Hinn alþjóasinnaða
sósíaldemókrataisma. Starfaði í ungliðahreyfingu sósíal-
demókrata um árabil og var í framboði fyrir Alþýðuflokkinn,
sem nú ber nafnið Samfylkingin. - Þannig að hún er svo
sannarlega með sterkan pólitískan bakgrunn þegar þessa
er gætt. Og í ljósi þess FRÁLEITT að hún muni geta brúað
einher pólitísk bil og viðhorf. HELDUR ÞVERT Á MÓTI!
Sem alþjóðasinnaður sósíaldemókrati og anti-þjóðfrelsis-
sinni gekk hún til liðs við Evrópusamtökin og sat í stjórn
þeirra. Samtök sem berjast gegn fullveldi og sjálfstæði
Íslands með því að innlima það inn í Stórsambands-ríki
Evrópu, ESB. Hið pólitíska hugarfar Þóru til fullveldis- og
þjóðfrelsismála liggur því fyrir, þótt tækifærismennska
hennar NÚ setji upp tvær grímur gagnvart hinu brenn-
andi ESB og upplausnarástandi þess í dag. Hræsni hennar
þar er of augljós til að vera marktæk!
Það að kjósa aljóðasinnaðan sósíaldemókrata sem forseta
í dag, hafandi ESB-aðildarumsókn hangandi yfir þjóðinni og
Icesave-drauginn líka, ásamt því að enn situr þjóðhættuleg
vinstristjórn, sem vílar ekki fyrir sér að fórna þjóðarhags-
munum, fullveldi og sjálfstæði þegar svo ber undir, sbr.
Icesave, hljóta ALLIR þjóðhollir kjósendur að sjá og skilja
að gangi alls ekki upp!
Komandi forsetakosningar eru því þær ramm-pólitísku
frá lýðveldisstofnun. Þar sem sjálft fullveldi Íslands og þjóð-
frelsi Íslendinga er í húfi! ALLT ÍSLENZKT ÞJÓÐHYGGJUFÓLK
mun því enga áhættu taka og fylkja sér um hinn þjóðholla
forseta sinn, Herra Ólaf Ragnar Grímsson!
ÁFRAM FORSETI VOR! ÁFRAM ÍSLAND!
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.