Stór-furðuleg ályktun SUS um íslensk mannanöfn!


   Svo virðist sem hinn sósíaldemókrataíski armur Sjálfstæðis-
flokksins hafi  yfirtekið  stuttbuxnadeild hans.  En stjórn SUS
sá sér óyfirstigalegar hvatir til álykta  um að lög um íslensk
mannanöfn verði afnumin og að mannanafnanefnd verði lögð
niður.   

   Nú er það svo að lög um íslensk mannanöfn hafa rýmkað
mjög í áranna rás. Það mikið að mörgum finnst nóg um. Því
allt snýst  þetta  um  að verja  íslenska tungu, og að íslensk
mannanöfn lúti íslenskri beygingafræði og málhefð sem mest.
Bersýnlega fer þjóðholl íhaldssemi mikið fyrir brjóstið á stutt-
buxnadeild SUS í dag hvað þetta varðar, fyrst  þetta  virðist
vera meðal efstu hjartansmála Súffara í dag.

   Hvað næst?  Tví-tyngi íslensku við ensku í anda hugmynda
sumra sósíaldemókrata fyrir hrun? 

   Morgunljóst að allt sem tengist þjóðhollri íhaldssemi er á
hröðu undanhaldi í hinum sósíaldemókrataíska Sjálfstæðis-
flokki í dag. Ekki síst þegar  æska flokksins hugsar og ályktar
með jafn ömurlegum andþjóðlegum hætti.....

mbl.is Vilja leggja mannanafnanefnd niður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þórhallur Birgir Jósepsson

í ellefu hundruð ár bjó þjóðin í þessu landi og hafði fullt og óskoraðfrelsi til að velja börnum sínum nöfn. Svo vel reyndist frelsið, að Alþingi sá brýna nauðsyn á að afnema það.

Þórhallur Birgir Jósepsson, 25.7.2012 kl. 02:50

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Ég er nú á þeirri skoðun að þessi mannanafnanefnd hefði aldrei átt að líta dagsins ljós.  Enda algjörlega út í hött og ætti að vera löngu búið að leggja hana niður.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 26.7.2012 kl. 14:47

3 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Það að hafa þessa mannanafnanefnd er mikilvægur þáttur að standa vörð
um íslenzka tungu. Kaupi engann afslátt í því. Nóg samt af þessari
fjölmenningarlehri undanlátssemi.

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 31.7.2012 kl. 20:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband