Jóhanna verðskuldar pólitískt hart kalt stríð !
26.8.2012 | 00:26
Jóhanna Sigurðardóttir því miður enn forsætisráðherra, kvartaði
undan Alþingi á flokksstjórnarfundi Samfylkingarinnar í gær. Sagði
að vinnubrögð þess hefðu verið því til skammar, og úr því yrði að
bæta. Bauð hún stjórnarandstöðunni til samráðs um það.
Þessu ummæli stjórnmálamanns eins mesta þjóðarsundrungar
lýðveldisins, koma úr hörðustu átt. Því Jóhanna Sigurðardóttir hefur
gert sér sérstak far um það að brjóta hina íslenzu þjóð niður á alla
lund, einmitt þegar þjóðarsálin þarfnaðist sem mest uppörvunar eftir
eitt mesta hrun í sögu lýðveldisins.
Jóhanna Sigurðardóttir gleymir því alltaf að hún átti sjálf sæti í
Hrunstjórninni. Og ber því fullkomna pólitíska ábyrgð á hruninu. Því
til viðbótar hefur Jóhanna verið forsætisráðherra síðan. Og hefur
helt olíu á eld! Sundrað þjóðinni í herðar niður, og reynt af megni
að vinna gegn þjóðarsamstöðu til að byggja upp á nýtt. Þar ber
árás Jóhönnu á fullveldi Íslands og þjóðfrelsi Íslendinga sem hæst,
með ESB-umsókninni. Að auki stóð Jóhanna fyrir einni mestri atlögu
að efnahagslegu sjálfstæði þjóðarinnar, er hún ásamt kommúnistum
ætlaði að þvinga Icesave-skuldadrápsklyfjarnar á þjóðina. Er hefði
gert hina íslenzku þjóð gjaldþrota í dag hefi forseti og þjóðin ekki
gripið þar inn í og afstýrt því.
Já Jóhanna Sigurðardóttir er þjóðhættuleg manneskja sem nú fer
fyrir landsstjórninni á Íslandi. Manneskja sundrungar, fullveldis-
afsals og vinnandi gegn íslenzkum þjóðarhagsmunum dag og nótt!
Í þágu erlendra afla og óvinveittra ríkja.
Slíkur stjórnmálamaður verðskuldar nú pólitískt hart kalt stríð.
JÁ MJÖG SVO HART KALT STRÍÐ! - Þar til þessi þjóðfjandsama
Jóhanna og allt hennar óþjóðholla hafurtask hefur yfirgefið stjórnar-
ráð og Alþingi. Fyrir fullt og allt!
ÁFRAM FRJÁLST ÍSLAND!
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.