Brandari. Skyr orðið aðal tálbeita ESB-aðildar. Hálmstráunum fjölgar !


    Maður fer að aumkast yfir málefnafáttækt ESB-sinna.  Því nú er
skyrið orðið aðal tálbeita á vef Evrópusamtakana. En þar er  nú
fjallað um ,, skyr skilaboð. Skyr vinsælt í Finnlandi, en stoppar
vegna þess að Ísland er ekki í ESB".

    Hugsa sér! Þvílíkt stórtjón fyrir íslenzkan landbúnað að Ísland
er utan ESB!  Skyr illseljanlegt innan ESB! En sem kunnugt  er þá
telja íslenzkir bændur íslenzkan landbúnað ekki lifa af ESB-aðild.

    Er málefnafáttækt ESB sinna á Íslandi virkilega orðin svona
aumleg?

    Þeir kasta væntanlega skyrinu sem eiga það!

    Í sjálfa málefnafátæktina sína og rökþrotið sitt ef svo ber undir!

    Já hálmstráunum fjölgar ört hjá ESB-trúboðinu!

    Þið eigið bágt!

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér kærlega Guðmundur Jónas
 
Skyr hefur verið framleitt undir leyfi og skrásettu vörumerki MS Mjólkursamsölunnar í Danmörku síðan 2006. Það er framleitt af Thise mjólkurbúinu á Norður-Jótlandi og algerlega úr dönskum hráefnum.
 
 
"Thise Mejeri præsenterer nyheden i samarbejde med det Islandske mejeri MS, så produkttilpasningen til en økologisk variant af SKYR er sket under kyndig vejledning fra Islandske mejerister. Opskriften på SKYR har undergået forandringer i løbet af de mange århundreder, men i dag fremstilles produktet af komælk på moderne mejerianlæg på Island og nu – på Thise Mejeri;" SKYR – et lille stykke Island fra Thise Mejeri
 
 
Salan gengur ekkert sérstaklega vel þar sem heil þjóð þarf áratugi til að venjast nýjum vörum á dagvörumarkaði og markaðsfærslan kostar mikið. 
 
Þetta er svipað fyrirkomulag og þegar Coca Cola er framleitt á Íslandi undir leyfi frá erlendum leyfishafa. ESB þurfti sem sagt ekki að ganga í Bandaríkin til að fá kók.
 
Engum nema kjánum dettur í hug að mjólkurvörur séu til þess fallnar að flytjast á milli landa í skipa- kafbáta- eða flugfragt. Það yrði sjálfvirkt sjálfsmorð. Þær eru framleiddar á staðnum. Alltaf.
 
Og MS mun auðvitað gera samninga við finnsk mjólkurbú um sölu og framleisðlu á Skyri ef frum-tilraunin með vöruna tekst og ef einhver nógu burðugur innlendur aðili nennir að taka þetta að sér, sem ég í lengdina efast um að gangi upp, því risavaxið fjármang þarf til að kaupa sig með nýjar vörur inn á nýja markaði. Engar svona vörur selja sig sjálfar, sama hversu okkur hér heima megi finnast þær góðar. Það þarf mikla og dýra langtíma markaðsfærlsu til að ná fótfestu á þessum einokunarmörkuðum í ESB, og er oftast ekki þess virði.
 
Kveðjur
 

Gunnar Rögnvaldsson, 3.11.2012 kl. 03:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband