Hægri grænir hafna þróunaraðstoðarpólitík sósíaldemókrata!


    Gera þarf allsherjar heildarúttekt á þróunaraðstoð Íslendinga.
Þróunaraðstoðin hefur á umliðnum árum og áratugum verið að
þróast út í algjört rugl í anda sósíaldemókrataískar alþjóðaöfga-
hyggju.  Þegar t.d jafnvel fleiri milljörðum er ausið í einhverja
ótilgreinda  sukksjóði ESB  án  neinna  lagaskyldu, einungis til að
uppfylla  fullnægingarþörf  ESB-sinnaðra  hérlendra  sósíaldemó-
krata til  að fá gott veður inn í ESB. Þá er mál að linni!  Á sama
tíma er íslenzkt velferðarkerfi undir brot og slit og þúsundir Ís-
lendinga lifa við sárafátækt. Eiga  ekki einu sinni  fyrir mat!

   Nú síðasta  rugl-dæmið  úr  þróunaraðstoðarheimi hérlendra
sósíaldemókrataískra  stjórnvalda er að þau ætla að úthluta yfir
80 milljónum fyrir árslok til baráttu fátækra ríkja  við loftslags-
breytingar. Halló! Er ekki allt í lagi?  En allt er þetta brota brot af
vitleysunni sem þarna er í gagni. Erlendur gjaldeyrir tekin að láni
(eigum hann ekki til) og honum kastað í milljarða vís út um allar
trissur ÁN NEINNAR VISSU hvar  hann lendir  að  lokum.  Og  á
meðan líður allt of stór hluti þjóðarinnar skort og velferðarkerfið
er svelt. SKANDALL!

   Í þessu sambandi er vert að benda á stefnu HÆGRI GRÆNNA
varðandi þróunaraðstoð sjá flokksíðu hans www.xg.is . En flokk-
urinn vill endurskoða allt þetta yfirgengilega rugl frá grunni, og
leita fremur til einkageirans, sjálfboðaliðasamtaka (NGO's),
Rauða krossins  og kirkjunnar í þessu sambandi.  Leggja niður
umdæmisskrifstofu Þróunarsamvinnustofnunarinnar og endur-
skoða stofnunina (ÞSSÍ) frá grunni.  En ekki hafa fengist tölur
frá ÞSSÍ um  hversu stórt hlutfall er kostnaður við þróunarstarf,
(ÞSSÍ fer með 41% alls fjár sem fer til þróunarmála frá Íslandi)
en ef tölur frá öðrum löndum er eitthvað að marka þá er kostn-
aðurinn um 90% af öllu hjálparfé sem er gjörsamlega út í hött!

   Stoltur af því að HÆGRI GRÆNIR eru einir flokka sem hafna
alfarið rugl-þróunaraðstoðarpólitík sósíaldemókrata. Enda löngu
kominn tími til!
   
 

    www.xg.is  www.afram-island.id/magasin.pdf


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband