Hægri grænir ábyrgir í fjármálum. Nei við nýjum Landspítala!


   Ef  skoðuð  er  stefnuskrá Hægri grænna kemur í ljós að hann er
gjörólíkur öðrum stjórnmálaflokkum hvað  varðar ábyrgð í ríkisfjár-
málum . -  Ekki kemur á óvart  munurinn  á Hægri grænum og  ríkis-
sukkflokkum vinstriaflanna, heldur er líka mjög mikill munur á Hægri
grænum og Sjálfstæðisflokknum. - Enda ráða innan Sjálfstæðisflokk-
sins hin sósíaldemókrataísku öfl þar allt of miklu.  

    Þannig  kemur  munurinn  milli  þessara flokka best fram í  afstöðu
þeirra um nýjan Landsspítala. Meðan HÆGRI GRÆNIR segja þvert
NEI við vitleysunni segir hinn sósíaldemókratíski Sjálfstæðisflokkur 
já við sukkinu og eyðslunni eins og hinir vinstriflokkarnir.  

   Meðan efnahagsvandi Íslendinga er jafn hrikalegur og hann er í
dag, eftir mesta efnahagshrun Íslandssögurnar, undir forystu Sjálf-
stæðisflokksins og sósíaldemókrataískra vina þeirra, eigum  við  hér
eftir að læra af reynslunni. Eyða aldrei um efni fram, og haga ávalt
stakk eftir vexti.  ,,Smátt er smart".Smile

    Hægri grænir segja  einfaldlega. ,,Stöðva verður byggingu Land-
spítala - Háskolasjúkrahúss við Hringbraut. EKKI TIL PENINGAR
FYRIR VERKINU Í DAG. Allir fjármunir til verkefnisins verða fegnir
að láni hjá lífeyrissjóðum á verðtryggðum vöxtum. ALLT OF STÓR
bygging fyrir lóðina og þetta viðkvæma svæði. Meiriháttar skipulags-
og umhverfisslys í uppsiglingu. Byggingarkostnaður MEIRA EN 100
milljarðar. 20 ára byggingartími með tilheyrandi óþægindum er  of
langur tími."

   Og Hægri grænir spyrja réttilega að ef við höfum ekki efni á  í dag
að kaupa ný tæki og viðhalda þeim eldri, auk þess að halda í frábært
starfsfólk, hvernig höfum við þá efni á að byggja nýjan spítala yfir
100 milljarða og ALLT TEKIÐ að láni? OKURLÁNUM!   Þess vegna
leggja Hægri grænir til að tafarlaust verði keypt ný tæki og tól inn á
Landsspítalann  svo bjarga megi  mannslífum, auk þess  að  viðhald 
á fasteignum verði tryggt. Í stað þess að fara út í þessa OFURFJÁR-
FESTINGU sem mun enda með ósköpum! Til  framtíðar  horfa HÆGRI 
GRÆNIR hins vegar til  þess  að nýr Landspítali verði  byggður  þegar
greiðslu- og skulda
vandi ríkis og þjóðar verður leystur. -Í  því  sam-
bandi horfa  HÆGRI GRÆNIR til þess  að fjármögnun á nýjum Land-
spítala  gæti  komið  frá  tilvonandi  uppgjöri á aflandskrónu-snjó-
hengjunni með upptöku Ríkisdals, sbr. tilvísun í stefnuskrá HG um
,,Gjaldeyrishöft og Ríkisdal sbr.  heimasíða H.G á www.xg.is  

  ÁFRAM HÆGRI GRÆNIR!

     


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband