Tvöfeldni sjálfstæðismanna í Landspítalamálinu ótrúleg !
14.12.2012 | 10:43
Fagna ber ákvörðun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn
Reykjavíkur að greiða atkvæði gegn deiluskipulagi vegna byggingu
nýs Landsspítala við Hringbraut. En byggingin og staðsetningin eru
eitt allsherjar klúður. Bæði hvað staðsetningu varðar og þá ekki
hvað síst varðandi þann ofur-kostnað sem þessi risabygging á
eftir að kosta galtóman ríkissjóð, og þjóð í einum mesta skulda-
stöðuvanda frá fullveldistöku.
En samt sem áður styðja sjálfstæðismenn framkvæmdina sem
slíka í borg og á Alþingi þrátt fyrir deiluskipulagið. Tvöfeldni þeirra
er því ótrúleg! Styðja þessa mjög svo ábyrgðarlausu ríkissjóðs-
sukkframkvæmd hinna óábyrgu vinstristjórnar. Taka fullan þátt
í áframhaldandi opinberu ábyrgðarleysi með opinbert fé í anda
efnahagshrunsins frá 2008. Hugsjónin að sníða sér stakk eftir
vexti og eyða ekki um efni fram er enn hent á glæ.
Í ljósi þessa er vert að benda á ábyrgar og raunsæjar lausnir
HÆGRI GRÆNA, flokk fólksins, um byggingu nýs Landspítala. Þar
er flokkur á ferð með fjármálalegt jarðsamband og þá vitneskju,
að Íslendingar eru bara rúm þrjúhundruð þúsund en ekki
þriggja miljóna manna þjóð. Og það í stórskuldavanda.
Tillögur Hægri grænna, flokk fólksins, um nýjan Landspítala er
að finna á heimasíðu flokksins á www.xg.is .
![]() |
Deiliskipulag samþykkt óbreytt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.