Hreinsa verður til á ESB/ ICESAVE-RÚV fréttastofunni!
3.1.2014 | 00:44
Þetta gengur ekki lengur! Hvenær verður farið í að hreinsa
ærlega til á þessari ESB-ICESAVE-sinnuðu fréttastofu RÚV?
En það nýjasta er að bæði forsetinn og forsætisráðherrann
eru nánast lægðir í einelti af vinstri-öflunum, vegna þjóð-
ræknislegra ávarpa sinna nú um áramótin, og sem hið ESB/
Icesave-sinnaða RÚV tekur nú fullan þátt í og kyndir undir!
Þannig var einn af hinum sósíaldemókrataísku sagnfræðingum
RÚV ekki bara í hádegisfréttum í gær, heldur líka í kvöldfréttum
og Speglinum fengin til að endurtaka sín dæmalausu viðhorf, um
að samstaða þjóðar sem forsetinn lagði áherslu á, væri goðsögn,
enda grundvallarhugmynd hinnar vondu þjóðernishyggju. Og í
kjölfarið í sama Spegli kom meiriháttar pistill frá hinni sósíaldemó-
krataísku fréttakonu Spegilsins um að Icesave væri ekki enn úr
sögunni með viðeigandi viðtali við sósíaldemókrataískan viðmæl-
anda. - Icesave vixill Steingríms í LBI væri nefnilega jú enn
ógreiddur!
Allt er þetta með hreinum ólíkindum, hvernig þjóðrækni og heilbrigð
þjóðhyggja er orðið slíkt tabú í heimi vinstrimennskunnar, að innan
hennar umpólast allt sé minnst á slík sjálfsögð viðhorf. Meir að
segja Kryddsíldin á Stöð 2 fór ekki varhluta af slíkri móðursýki.
Ekki nema eðlilegt að stór meirihluti þjóðarinnar bindi miklar
vonir við að nýr útvarpsstjóri sópi og hreinsi ærlega til á hinni
sósíaldemókrataísku ESB/ICESAVE-fréttastofu RÚV!
Og þótt fyrr hefði verið!
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.