Loka- orrustan um frjálst og fullvalda Ísland hafin!
24.2.2014 | 00:19
Uppgjörið við hið öfgafulla og óforskammaða ESB-trúboð
á Íslandi er nú loks hafið! Og þar með lokaorrustan um
frjálst og fullvalda Ísland! Með afturköllun á bjölluatinu
í Brussel, umsókn Íslands að ESB.
Það þarf því ekki að koma á óvart að allt hefur nú brjálast
í herbúðum ESB-trúboðsins. Þessum ólýrðasta hópi allra tíma
á Íslandi, sem með verstu bolabrögðum lýðveldissögunar tókst
að svindla umsókninni um aðild Íslands að ESB gegnum Alþingi
árið 2009. Á sama tíma og 76.3% þjóðarinnar vildi þjóðar-
atkvæðagreiðslu um málið. Sem algjörlega var hafnað af ESB-
trúboðinu. Í kjölfarið fór svo af stað einn mesti pólitíski lyga
og blekkingarleikur lýðveldissögunar um aðlögunarferlið að
ESB!
Nú þegar hinn ólýðræðislegi þjóðfjandsami gjörningur frá
2009 á að afturkallast af Alþingi, ætlar allt vitlaust að verða
í herbúðum ESB-trúboðsins. Sem hafnaði 76.3% þjóðarinnar
um þjóðaratkvæðagreiðslu um málið 2009. Kemur nú froðu-
fellandi á afturlöppunum og krefst þess sama og það hafnaði
árið 2009. ÖLLU er tiltjaldað augljóslega með miklum stuðningi
og hvatningu frá valdhöfunum í Brussel. Sem á öllu aðlögunar-
ferlinu er búið að bera fé á hina ótrúlegustu aðila innanlands
til stuðnings Sovét-bákninu í Brussel, og sendiráði hér með
vítaverðum afskiptum af íslenskum innanríkismálum.
Já loksins loksins látum við ÞJÓÐFRELSISSINNAR sverfa til
stáls gegn hinu þjóðfjandsama ESB-trúboðinu á Íslandi. Sem
hefur allt of lengi haldið íslenskri þjóð í gíslingu. Með kúgun og
pólitísku ofbeldi, sbr. Icesave, og sem telur mikinn minnihluta
þjóðarinnar.
Mál að linni!
Í Evrópu fer nú mikil þjóðfrelsisalda með frelsi einstaklinga
að leiðarljósi. Gegn hinu gjörspillta ofurmiðstýrða yfirþjóðlega
kúgunarvaldi í Brussel. Afturköllun ESB-umsóknarinnar er
hluti af þeirri ánægjulegri frelsisþróun. Sem nú hefur loks
náð til Íslands!
ÁFRAM FRJÁLST OG FULLVALDA ÍSLAND!
Fagna því að umsóknin sé dregin til baka | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.