Rússar hafa sína málsvörn líka !


    Held að við Íslendingar og sérstaklega íslensk stjórnvöld
skulu fara sér hægt og vera hófstillt gagnvart atburðunum á
Krímarskaga  og  Úkraínu. Þvert  á  það sem t.d  Árni Páll
Árnason úr ESB-trúboðinu á Íslandi vill. Því hann vill allt 
til gera  að spilla fyrir góðum samskiptum og vináttu  Ís-
lendinga við stórþjóðir utan ESB eins og Rússa.

   Þetta mál er nefnilega mjög stórt og flókið. Og gerir málið 
enn  flóknara  sé  málið skoðað  með gömlu  kalda-stríðs-
gleraugunum.

   Evrópa gjörbreyttist eftir fall Berlínarmúrsins og Sovét-
ríkjanna.  Samt er Rússland enn í huga margra vesturlanda-
búa með Sovét-hjúpinn enn yfir sér. Sem er alrangt. Rússland
er þvert á móti komið undralangt í lýðræðis-og markaðsvæð-
ingu og öðrum framförum eftir áratuga kúgun kommúnista.
Hin kristna Rétttrúnaðarkirkja blómstrar sem aldrei fyrr, og
í Rússlandi stjórna nú borgaraleg öfl.

  Rússar hafa ætíð sýnt Íslendingum vináttu og virðingu! Voru
með þeim fyrstu að viðurkenna íslenska lýðveldið 1944. 
Studdu okkur í öllum þorskastríðunum. Þess vega eigum við
að sýna Rússum skilning varðandi Krímarskagann í dag!

   Krímarskaginn er rússneskt land í augum Rússa. Sem var 
afhentur Úkraínu 1954 með bolabrögðum af þáverandi
Sovétleiðtoga, Níkíta Khrússtsovs. EN HANN VAR EINMITT
SJÁLFUR ÚKRAÍNUMAÐUR ÞA! Hin kommúníska valdníðslan
ALGJÖR! 

    Kommúnistar og aðrir vinstriróttæklingar hafa aldrei 
virt þjóðfrelsi og landamæri. Arftaki Sovétríkjanna, ESB,
gerir það ekki heldur! Með látlausum afskiptum ESB af 
úkraínskum innanríkismálum með innlimun þess í huga
var tendrað bál.  Sem nú sér ekki fyrir endann á!

   Ísland er enn frjáls og fullvalda ríki. Og á sem slíkt að
halda uppi sjálfstæðri utanríkisstefnu. 

   Sýnum það í verki og viðurkennum að Rússar, vinaþjóð
okkar, hafa sína málsvörn líka!

mbl.is Hafa ekki sett hernum afarkosti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Heill og sæll Guðmundur Jónas - æfinlega !

Þakka þér fyrir - drengilega og heiðvirða liðveizluna / þeim bræðrum mínum og systrum í austri til handa - fornvinur mæti.

Með beztu kveðjum sem ávallt - af Suðurlandi /

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 4.3.2014 kl. 00:28

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Þetta er heila málið Guðmundur, flest mál hafa fleiri en eina hlið og það eru ekki "lýðræðissinnar" algjörlega með hreina samvisku í málefnum Ukrainu...........

Jóhann Elíasson, 6.3.2014 kl. 17:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband