Vinstri grænir - ekki þjóðlegt afl !



   Svo virðist sem margir kjósendur sem stefna að því
að kjósa Vinstri-græna í vor átti sig ekki á hversu óþjóð-
legt pólitískt afl hér er á ferð. Því hér er í raun um mjög
ALJÓÐASINNAÐAN SÓSÍALISKAN flokk að ræða, þar sem
meir að segja vinstrisinnaðir róttæklingar leita  skjóls hjá.

   Þetta er t.d flokkur þar sem meir að segja  Internasjón-
alinn er enn súngin á ýmsum tyllidögum og rauðum fánum
er veifað. . Vinstrisinnaðir róttæklingar innan Vinstri-grænna
hafa uppi ýmiss andóf og mótmæli og telja sig jafnvel  í
andstöðu við ríkjandi borgaralegt skipulag, og gera lítið úr
öllum þjóðlegum gildum og viðhorfum.

    Alveg sérstaklega kemur þetta fram í þeim málaflokkum
sem varða innra- sem ytra öryggi íslenzka lyðveldisins.
Aukin löggæsla og eftirlit sbr greiningardeild hefur ætið
kallað fram neikvæð viðbrögð hjá Vinstri-grænum. Leyni-
þjónusta sem öll ríki heims telja sjálfsagt að reka til að
tryggja öryggi ríkisins og borgara þess  er algört
tabú hjá Vinstri-grænum. Óþjóðlegheitin í hugmynda-
fræði Vinstri-grænna toppar svo í því að þeir vilja Ísland
eitt ríkja heims berskjaldað og varnarlaust. Þeir umturn-
ast ef þeir heyra minnst á t.d íslenzkar öryggissveitir. Vinstri-
grænir eru þannig EINSTAKIR í heimssögulegum  skiln-
ingi að vilja þjóð sína ALGJÖRLEGA VARNARLAUSA. Öllu
lengra er ekki hægt að komast í AND-ÞJÓÐLEGUM
viðhorfum og afstöðu.

   Þar fyrir utan er hugmyndarfræði Vinstri-grænna úr allri
takt við nútímalegt Ísland. Afturhaldssöm forræðishyggja
trollríður húsum hjá Vinstri-grænum. Í dag ríkti kreppa og
eymd á Íslandi ef hin sósíaliska hugmyndafræði Vinstri-
grænna  hefði ráðið för.

   Afstaða Vinstri-grænna í umhverfismálum er í takt við
ýmissa vinstrisinnaða öfgahópa sem döguðu uppi við
fall kommúnismans í A-Evrópu.  Nú fela þessir öfga-
hópar sig undir merki umhverfisverndar. Nýjasta út-
spil VG í dag er að gera umhverfisráðuneytið  eitt af
helstu ráðuneytum lýðveldisins.

   Það er hætta á ferðum ef jafn öfgafullur vinstriflokkur
og Vinstri-grænir fá jafn mikið fylgi í vor og spáð er.
Þeir stefna að allsherjar stöðnun og efnahagslegu
hruni með sinni öfgafullri STOPP-stefnu sinni. Öll þjóðleg
öfl þurfa að sporna við uppgangi vinstrisinnaðra öfgahópa
á Íslandi. - Hún er algjör tímaskekkja!



« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Svona rugl grein gerir það að verkum að ég verð ennþá staðráðnari í að kjósa Vinstri græna.

Get því þakka þér fyrir þessa grein valið verður auðveldara.

Sigurður H. Einarson (IP-tala skráð) 11.4.2007 kl. 21:07

2 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Mjög ,,málefnalegt" RUGL eða hitt þó heldur!

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 11.4.2007 kl. 21:11

3 Smámynd: Gestur Guðjónsson

Ég hef verið með sömu hugsanir og þú gagnvart VG, en hef ekki getað komið þeim þokkalega í orð. Þau virðast stundum ekki vera fylgjandi hugtakinu þjóðríki. Þegar róttækni er stefna í sjálfri sér og mótmæli eru markmið ekki verkfæri er eitthvað að. Það er virkilega miður að þau sem starfa innan VG sem eru ekki svona, ég nefni sérstaklega Atla Gíslason, þurfa að líða fyrir þetta. Þau eiga að sjálfsögðu að hafa vit á því að koma sér burt.

Gestur Guðjónsson, 11.4.2007 kl. 23:45

4 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Gestur. Þú fyrirgefur. Atli Gíslason hefur ætið verið í mínum huga
vinstrisinnaður róttæklingur, og meira segja mjög HÆTTULEGUR
sem slíkur! Alveg dæmigerður AND-ÞJÓÐLEGUR enda SÓSÍALISTI
fyrst og fremst, og það af ,,gamla skólanum"!

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 12.4.2007 kl. 00:36

5 identicon

Þetta er nú ekki hægt að taka alvarlega

Rósa (IP-tala skráð) 18.4.2007 kl. 04:13

6 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Og því síður athugasemdir undir rós Rósa!

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 18.4.2007 kl. 15:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband