Gunnar Bragi! Segðu af þér ! STRAX !
1.8.2015 | 14:18
Maður er gjörsamlega búinn að fá upp í kok af
vanhæfi Gunnars Braga utanríkisráðherra í embætti.
Hver mistökin og miskilningurinn rekur annan
við embættisfærslur hans. Ekki heil brú í
ákvörðunartökum, eða stefnumótun og því síður
stefnufestu,þegar kemur að því að standa vörð um
íslenska þjóðarhagsmuni.
Alkunna er öllum mistökin og miskilningurinn
þessa ráðherra við að afturkalla umsókn Íslands
að ESB! Sú smánarsaga verður ekki rakin hér, því
hún er svo dapurleg! - Því enn þann dag í dag
virðist ESB umsóknin í fullu gildi hjá valdhöfunum
í Brussel. Því þeir hafa enn ekki opinberlega
viðurkennt afturköllunina, bersýnilega með vel-
þóknun þessa sama ráðherra og hans ESB-
sinnaða ráuðunetrisstjóra utanríkisráðuneytisins.
Gúnguskapurinn algjör!
Útfyrir tók þó þegar Gunnar Bragi fór eins og
fulltrúi einhvers stórríkis að skipta sér af
málefnum Úkraínu. Eftir að valdhafanir í Brussel
gerðu þar valdarán og steyptu löglega kjörnum
forseta þar af stóli. Það að blanda Íslandi inn í
þá deilu var forkastanlegt! En þar flækti
Gunnar Bragi Íslandi inn í afar flóknar
milliríkjadeilur, Evrópuyfirráðastefnu ESB,
sem ekki sér fyrir endan á. Með þeim hörmulegu
afleiðingum að nú ætla þessar viðskiptaþvinganir
ESB við Rússa bersýnilega að bitna á fullum
þunga á Íslandi.Með ófyrirsjáanlegum afleðiningum
fyrir íslenskan sjávarútveg, og þar með þjóðarbúið
í heild og lífskjörin á Íslandi!
Já þetta er allt svo dapurlegt! Hvernig hálfvita-
háttur einstakra stjórnmálamanna og embættismanna
getur stórskaðað okkar þjóðarhagsmuni, í óskiljan-
legri stórveldagrobbpólitík þeirra úti í heimi sem
er okkur svo gjörsamlega óviðkomandi. Og það nú
gagnvart okkar helstu vinaþjóð sem við eigum í
miklum og góðum samskiptum við. Vinaþjóð sem var
með þeim fyrstu til að viðurkenna lýðveldistöku
okkar 1944, og sem studdi okkur ætíð í
öllum þorskastríðunum. Vinaþjóð sem gerði svo
uppreisn gegn heimskommúnisma, og lifir nú sátt
undir borgaralegri stjórn og sann-kristinni
trúar.
Já Gunnar Bragi. Segðu af þér strax! Áður en þú
gerir enn meira af þér í daðri þínu við valdhafana
í Brussel, og að þóknast hinum mislukkaða Obama
Hussein Bandaríkjaforseta!
![]() |
Eigum ekki í prívat útistöðum við Rússa |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:29 | Facebook
Athugasemdir
Sæll Guðmundur Jónas: æfinlega - sem og aðrir gestir, þínir !
Vel mælt: af þinni hálfu.
Íslendingar - allt of margir: eru búnir að gleyma velvild Rússa, um allra alda skeið, þegar þeir báru:: m.a., íslenzka ''höfðingja'' syni á höndum sér, til dæmis Hersarnir (Vojvodarnir) af Novgorod o. fl. á Miðöldum / sem og órofa stuðning Rússnesku þjóðarinnar, í Þorskastríðum 20. aldarinnar.
FramÆLU (sóknar)menn: ekki bara Gunnar Bragi, einn og sér, eru einhver allra mestu ÚRHRÖK innan okkar samfélags Guðmundur minn, þó ekki sé svo langt í fylgislið hinna ónefnu flokkanna, einnig.
Með beztu kveðjum af Suðurlandi - sem endranær /
Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 1.8.2015 kl. 15:12
100% sammála
Snorri Hansson, 1.8.2015 kl. 15:14
Sælir - á ný !
Snorri Hansson !
Einkar ánægjulegt: að þú skulir loks gera þér grein fyrir / hvers lags ÓSAKPANAÐUR hefir hlotizt, af setu ónýts glæfralýðs innlendra hvítflibba- og blúndukerlinga, í ísl. stjórnsýslu, ágæti drengur.
Gunnar Bragi Sveinsson: er bara EITT dæmi, þessa rumpulýðs, Snorri minn !!!
Hinar sömu kveðjur - sem seinustu /
Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 1.8.2015 kl. 15:50
Takk Óskar og Snorri !
Guðmundur Jónas Kristjánsson, 1.8.2015 kl. 15:54
Vel mælt hér margt hjá þér, Guðmundur Jónas, eins og oft áður.
Raunar er þetta alveg rétt hjá þér, að valdhafanir í Brussel áttu sinn virka þátt í að láta valdaránið takast í Kæugarði, þar sem uppreisnarmenn með stuðningi ESB "steyptu löglega kjörnum forseta þar af stóli,"og ég er sammála þér, að það var "forkastanlegt að blanda Íslandi inn í þá deilu," og þar flækti Gunnar Bragi Íslandi inn í afar flóknar milliríkjadeilur, sem hann hefur ekkert vald yfir og hafði aldrei umboð til. Já, og loksins "með þeim hörmulegu afleiðingum að nú ætla þessar viðskiptaþvinganir ESB við Rússa bersýnilega að bitna af fullum þunga á Íslandi, með ófyrirsjáanlegum afleðiningum fyrir íslenskan sjávarútveg og þar með þjóðarbúið í heild og lífskjörin á Íslandi!"
Ef Gunnar Bragi tekur sig ekki saman í anditinu um þessi mál með því að gera það að eindreginni tillögu sinni í ríkisstjórninni að aflétta allri þátttöku, beinni sem óbeinni, í þvingunum Evrópusambandsins og Bandaríkjanna gegn Rússum, þá er svo sannarlega kominn tími á mótmælaaðgerðir gegn honum og knýja á um, að hann verði látinn taka pokann sinn sem ráðherra.
Og sammála er ég þér um það, að smánarlega slapplega hefur hann reynzt okkur gagnvart því fyrirheitna verkefni að losa okkur án tafar við hina stjórnarskrár-andstæðu Össurarumsókn um innlimun í Evrópusambandið.
Jón Valur Jensson, 1.8.2015 kl. 17:12
Takk fyrir þetta Jón Valur!
Guðmundur Jónas Kristjánsson, 1.8.2015 kl. 17:30
Sælir - sem fyrr !
Guðmundur Jónas !
Jón Valur Jensson: víðkunnur fjölfræðingurinn, hefði alveg mátt leggja til einhverjar leiðir / sem dygðu til þess, að við LOSNUÐUM við þessa glæpaklíku sem nú ríkir í landinu - og tók við af annarri ámóta, árið 2013.
Það er löngu tímabært - að landsmenn steypi undan þessum gerpum og viðrinum, sem ARÐRÆNA okkur og pretta, UPP Á HVERN EINASTA DAG !
Að minnsta kosti - er ég: auk fjölmrgra annarra, tilbúinn í átök við þessi afstyrmi.
Þakkarvert er Ásmundi Friðrikssyni: að vilja standa í ístaðinu, fyrir áframhaldandi góðum tengzlum og samskiptum, við Rússneska Sambandslýðveldið.
Sízt lakari kveðjur - þeim fyrri, og áður /
Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 1.8.2015 kl. 20:16
Að sjálfsögðu á Ísland að fylgja Evrópu í þessu máli.
Burtséð frá siðferðilega þættinum, þ.e.a.s. að ætla að hygla einræðis og mannréttindarbrotaríkjum sem mest á kostnað lýð- og jafnræðisstefnu ESB þjóða er nú ekki beinlínis fögur afstaða siðferðislega, þá væri slíkt barasta svo óskynsamlegt efnahags- og menningarlega að engu tali tekur að menn skuli bera þvílíkt á borð hérna.
Ómar Bjarki Kristjánsson, 1.8.2015 kl. 20:30
Sælir - enn á ný !
Ómar Bjarki Kristjánsson !
Fólki: eins og þér / á AÐ VÍSA UMSVIFALAUST ÚR LANDI !
Fólki: sem efna vill til ófriðar við forna vinaþjóð eins og Rússa, en gengur aftur á móti GRÍMULAUST erinda Bandarískra og ESB Heimsvaldasinnana.
Þú ert búinn að staðfesta margoft - manndómsleysi og aumingjaskap, sem undirlægjuhátt gagnvart stríðsæsinga samsteypunni NATÓ/ESB, jafnt:: hér á Mbl. vefnum - sem og víðar, Ómar Bjarki.
Þú ættir - að gerast formlega: fótaþurrka þeirra Merkel og Obama´s Ómar Bjarki.
Kannski - nýtilegur í Berlín og Brussel eða Washington.
Ekki: hér á landi, að minnsta kosti !
Með beztu kveðjum á ný - EKKI hinum minnstu, til Ómars Bjarka, og annarra, honum viðlíkum /
Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 1.8.2015 kl. 20:38
Bullið í þér ósjálfstæði Ómar, ábyggilega sósíaldemókrati.
Nefndu ekki á nafn einhverja ,,lýð-og jafnræðisstefnu ESB"
á nafn hér. Hún er ekki til frekar en í Sovétríkjunum sjálfum.
Einræði, forræðishyggjan yfirgengileg gagnvart einstaklingum og
þjóðum, sbr Grikkland nú, er helsta yfirbragð hins deyjandi gjörspillta ESB í dag.
Guðmundur Jónas Kristjánsson, 1.8.2015 kl. 20:40
Sælir - enn sem áður !
Guðmundur Jónas !
Tek enn sem oftar - undir þín sjónarmið, eins og gagnvart mann leysum, eins og Ómari Bjarka, algjörlega.
Hann - er einn velunnara, óbreyttra stjórnarhátta hér á landi, og á því að taka þvaðri hans, í samræmi við það.
Unz - hann sýndi raunverulega iðran / og bæði samlanda sína afsökunar á stuðningnum við glæpa klíkur : Jóhönnu og Steingríms J., líkt og þeirra Sigmundar Davíðs og Bjarna !!!
Með sömu kveðjum - sem þeim seinustu /
Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 1.8.2015 kl. 20:52
Takk Óskar minn !
Guðmundur Jónas Kristjánsson, 1.8.2015 kl. 21:01
100% sammala öllu her líka því að vísa Ómari Bjarka úr landi
Helgi Armannsson (IP-tala skráð) 2.8.2015 kl. 09:07
Sælir - sem jafnan !
Nafni minn Armannsson !
Þakka þér liðveizluna - sem og ósérplægni, alla.
Hinar sömu kveðjur - sem síðustu /
Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 2.8.2015 kl. 14:40
Já, vísum honum úr landi!
Jón Valur Jensson, 2.8.2015 kl. 21:03
ÓSKAR Helgi Helgason hafðu heilar og innilegar þakkir fyrir þín hnitmiðuðu innlegg í þessa umræðu sem og aðrir á bloggsíðu Guðmundar.
Kveðja,
Kristján Pétur Guðmundsson
Kristján P. Gudmundsson, 3.8.2015 kl. 12:26
Komið þið sælir - að nýju !
Kristján Pétur !
Þakka þér fyrir: drengilegar undirtektirnar, sem og einurðina, í þínu tilskrifi, sem oftar.
Með þeim sömu kveðjum - sem seinustu /
Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 3.8.2015 kl. 13:41
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.