Össur ætti að skammast sín !


    Össur Skarphéðinsson þingflokksformaður
Samfylkingarinnar ætti að skammast sín fyrir
að endurtaka dylgur og rógburð í garð Jónínu
Bjartmarz umhverfisráðherra. Málið allt er upp-
lýst en samt er reynt að síendurtaka hinar
rakalausu ásakanir með hjálp tveggja frétta-
stofa í kvöld. Hver er tilgangurinn?

    Það er með ólíkundum að tvær virtar frétta-
stofur láti stjórnast af pólitískum hugarheimi
Össurar sem þjónar þeim eina tilgangi að koma
höggi á ráðherrann. Össur veit það manna best
að málið er endanlega upplýst, ráðherra kom
hvergi nálagt afgreiðslu Allsherjarnefndar, og
nefndarmenn endurtóku það allir nú  síðast í
kvöld, þ.á.m flokkssystir Össurar, Gruðrún Ög-
mundsdóttir, að nefndarmenn hefðu ekki haft
hugmynd um tengsl ráðherra við tiltekin um-
sækjanda. Hvað þarf þá að rannsaka eða
upplýsa?  Storminn í vatnsglasinu ?

  Össur Skarphéðinsson fór offari í dag sem
verður honum ekki til vegsauka....

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnlaugur Stefánsson

Sammála, Össur setti mikið niður í kvöld. Örvænting Samfylkingarinnar er orðin slík að við megum búast við hverju sem er frá þeim bænum. Ég held að þetta mál verði ekki vatn á millu þeirra.

Gunnlaugur Stefánsson, 29.4.2007 kl. 21:09

2 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Þeir tapa á svona málflutningi sem betur fer!

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 29.4.2007 kl. 22:00

3 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Má ekki sannleikurinn heyrast.  Það er mikill barnaskapur að trúa því að ráðherrann hafi ekki kippt í einhverja spotta annað eins hefur nú Framsókn gert sl. 12 ár og er ekki hætt það verður notuð hver mínúta fram að stjórnarskiptum til að misnota vald sitt.  Jónína er vafalaust hin besta kona og hefur ekki verið ráðherra lengi.  En eins og ég hef áður sagt er siðblindan í Framsókn svo mikil að jafnvel heiðarlegt fólk eins og Jónína Bjartmarz verður að dansa með. 

Jakob Falur Kristinsson, 29.4.2007 kl. 22:32

4 Smámynd: Kristján Pétursson

Ég held Guðmundur,að þú ættir að kynna þér hvaða upplýsingar Allsherjarnefndarmenn verða  m.a.að leggja til grundvallar í úrskurði sínum um ríkisborgarétt:Umsókn stúlkunnar hjá Útlendingastofnun,sem var hafnað ,heimilisaðstæður og dvalarstaður hennar,fjárhagsleg staða og ábyrgðaraðil.Ég held að Össur standi teinréttur í þessu máli.Hins vegar vorkenni ég Jónínu að lenta í þessu,það hefði auðveldlega verið hægt að framlengja dvalarleyfi stúlkunnar um einhvern tíma.

Kristján Pétursson, 29.4.2007 kl. 22:49

5 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Tek undir hvert orð hjá þér Kristján.

Jakob Falur Kristinsson, 29.4.2007 kl. 22:59

6 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Kristján. Framganga Össurar sýnir örvæntingafullan stjórnmálamann
gagnvart miklu fylgistapi í vor og  þá er gripið til allra ráða. Nema
þetta sé þaulhugsað hjá Össuri að auka enn á fylgistapið í vor
og þar með líkunum á að Ingibjörg Sólrún segi af sér og Össur taki við.  Því allt er þetta ,,stormur í vatnsglasi" eins og Guðrún Ögmundsdóttir hefur sagt.
 

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 30.4.2007 kl. 08:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband