Til hamingju Píratar með óstjórnina í Reykjavík !

Vert er að óska Pírötum, anarkistum, innilega
til hamingju með óstjórnina í Reykjavík.Eða hitt
þó heldur! En allt stefnir nú í fjárhagslegan
glundroða hjá höfuðborg Íslands, ef fram heldur
sem horfir.

Þetta er einstakt afrek hjá Pírötum, sem skil-
greina sig anarkista, stjórnleysingja. Því allt
gerist þetta á mjög stuttum tíma, einmitt þegar
mikil efnahalsleg uppsveifla er á Íslandi, til
lands og sjávar!

Já þetta hlýtur að vera mikið gleðiefni í her-
búðum Pírata. Því nú hafa þeir svo sannarlega
sannað fyrir borgarbúum og þjóðinni, að anar-
kismi þeirra, stjórnleysið,  virkar.  

  Já svín-virkar!

Og á fremsta bekk sitja svo hinir vinstri-
hálfvitanir, eins og álfar út úr hól.

   Flissandi!

   Sem trúlega gefur anarkista-Pírötunum enn meiri
byr í næstu könnun! Því kaos-ballið er rétt að
byrja!

  Hjá borginni!   -  En þjóðinni?

   


mbl.is Vilja utanaðkomandi rekstrarráðgjöf
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæll Guðmundur Jónas - sem og aðrir gestir, þínir !

Rétt: mælir þú, fornvinur góður.

Breytilegar vindáttir (veðráttunar) - eru frekar trustsins verðari, en þetta ómerkilega Pírata safn, Guðmundur minn.

Þó svo - ekki takist að tengja þennan mannskap / við hinn HEFÐBUNDNA 5 flokk spillingarinnar- og almennrar eyðileggingar (A - B - D - S og V merktu), er þetta ekki gæfulegri valkostur heldur, sbr. framkomuna gagnvart Rússum - auk fjölda annarra atriða, að undanförnu.

Persónulega - treysti ég ENGUM öðrum, en stólpa fólki úr fram leiðzlu- og þjónustu greinunum til, að fara með stjórn mála hér, nema, ......... Kanadamenn og Rússar aumkvuðu sig yfir spilduna, og skiptu henni á milli sín - að öðrum kosti: Guðmundur Jónas.

Landsmenn hefðu þá það val - að geta ráðið því, hvorum megin línunnar þeir kysu að búa eftirleiðis, og þaðan í frá.

Með beztu kveðjum af Suðurlandi - sem endranær / 

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 4.9.2015 kl. 23:23

2 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Takk fyrir innlegg þitt Óskar!

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 5.9.2015 kl. 00:29

3 identicon

Að hvaða leyti skilgreina þeir sig sem stjórnleysingar?

Hilmar (IP-tala skráð) 5.9.2015 kl. 01:24

4 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Af því leyti að Kafteinn þeirra hefur nargoft lýst því yfir að þeir séu anarkistar, ,,sjónræningar" Hilmar. Eru m.a svo mikið á móti þjóðríkinu að þeir banna íslenska fánann innan sinna veggja!

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 5.9.2015 kl. 09:32

5 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Byrjuðu þeir ekki á uppsteit gegn hefðbundnum klæðnaði á þingfundum.Það verkaði ekki vel á mig og marga fleiri.

Helga Kristjánsdóttir, 5.9.2015 kl. 14:29

6 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Míkið rétt  Helga. Enda þeirra ær og kýr að brjóta niður ríkjandi stjórnskipulag, allar hefðir og þjóðleg gildi. Já þjóðríkið sjálft!Þess vegna kalla þeir sig anarkista með réttu!

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 5.9.2015 kl. 15:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband