Vinstri grænir á bullandi niðurleið


    Skv. skoðanakönnun Gallups virðist fylgið við
Vinstri- græna vera á bullandi niðurleið. Hefur
farið úr 27.7% fyrir 2 mánuðum niður í 17.7%.
Kjósendur virðast farnir  að átta sig á hvaða
flokkur VG er í raun og veru.

   Í raun yrði það brandari út af fyrir sig ef
Íslendingar sætu uppi með öflugan afdánk-
aðan sósíaliskan flokk þ.s forræðishyggjan
er í öndvegi, nú í byrjun 21 aldar. Kjósendur
sjá auðvitað hvaða meiriháttar tímaskekkja
það væri. - Vinstri-grænir hafa svo rækilega
afhjúpað sína sósíalisku hugmyndafræði á
öllum sviðum, þannig að reyna að sveipa
hana einhverjum umhverfisvænum umbúðum
gengur ekki upp lengur. Það á því enn eftir
að fjara undan sóíalistunum í Vinstri-grænum
næstu daga.

   Þeir sem töldu Vinstri-græna þjóðlegan flokk
eru  farnir að átta sig á að svo er ALLS EKKI.
Þvert á móti eru þeir mjög alþjóðasisnnaðir eins
og allir sósíalistar og vinstrisinnaðir róttæklingar.
Vilja Ísland eitt landa heims ÓVARIÐ og hafna
öllum þjóðlegum gildum og viðhorfum.  Veifa
frekar rauðum fánum undir internasjónalnum.

   Það er því  gleðiefni að nú skuli hratt fjara undan
svokölluðum Vinstri-grænum 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband