Vinstri-græn í Silfri Egils í draumaheimi.


    Málflutningur Guðfríðar Lilju frambjóðenda
Vinstri-grænna í Sílfri Egils bendir allt til þess
að Vinstri-grænir lífa í einhverjum draumaheimi
óralangt frá þeim íslenzka veruleika sem við
almúgamaðurinn upplifum frá degi til dags.
Hún virtist trúa því í einlægni sinni að t.d vel-
ferðarkerfið væri nánast komið að fótum fram,
og það ætti því að stórefla, jafnhliða því að
stórdraga úr hagvexti. En einmitt þarna grei-
nir Vinstri-grænir og stjórnarflokkanna á í
grundvallaratriðum..

  Það er eins og VG sé fyrirmunað að skilja að
grundvöllur sterks velferðarkerfis er öflugt og
kröfugt atvinnulíf til sjávar og sveita, auk þess
að nýta auðlindinar á skynsaman og arðbæran
hátt.  Öflugt atvinnulíf  og góður og stöðugur
hagvöxtur er grundvöllur alls velfernaðar í
landinu. Þetta virðat Vinstri-grænir með engu
móti geta skilið. Sósíalísk hugmyndarfræði sem
byggist m.a á því að peningar vaxi nánast  á
trjánum virðist kristallast í þeirra draumaheimi.
Þessu eru nú kjósendur farnir að átta sig á, og
því fatast  VG nú flugið í hverri skoðanakönnun
á fætur annari.
   
    Frammistaða Vinstri-grænna í Silfri Egils í dag
var átakanleg að því leyti að viðkomandi virtist í
einlægni og af ótrúlega mikilli sannfæringu trúa á
boðskapinn.  

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæll Guðmundur

Hefur þetta vinstra unga folk sem er i framboði fyrir vinstri græna nokkurn  tima unnið vinnu sem kostar svita og tar

Keðja

JFK

J Friðrik Karason (IP-tala skráð) 6.5.2007 kl. 20:42

2 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Ja það pælir ábyggilega lítið í því að við almúgafólkið þurfum vinnu
svona til að bíta og brenna og hafa þannig  í  okkur og á.

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 6.5.2007 kl. 20:51

3 Smámynd: Guðmundur Ragnar Björnsson

Það er spurning hvort að VG reki heilaþvottarstöð fyrir ungt fólk. Hugsa að það verði harkaleg lending fyrir ungliðana þegar það áttar sig á hvaða afleiðingar stefna flokksins myndi hafa ef henni væri hrint í framkvæmd.

Guðmundur Ragnar Björnsson, 6.5.2007 kl. 21:20

4 Smámynd: Ævar Rafn Kjartansson

Þið Framsóknarmenn ættuð að fara að uppfæra röksemdafærslur ykkar: Þegar 30. þúsund erlendir aðilar starfa hér notið þið það sem röksemd að án ykkar sé hætta á atvinnuleysi. Er til aumkunarverðari málaflutningur? Veit ekkert hvernig Vinstrigrænir hugsa en þetta handbremsustopp og slagorð ykkar. Ekkert stopp - áfram spilling er ekki að gera sig.

 Að lokum vil ég mælast til þess að Framsóknarflokkurinn verði lagður til hinstu hvílu. Það er fyrir löngu orðin ólykt af hræinu.

Ævar Rafn Kjartansson, 7.5.2007 kl. 00:23

5 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Ævar. Fyrir 12 árum þegar Framsókn komst í stjórn var hér bullandi
atvinnuleysi, en það er það vesta böl sem hægt er að hugsa sér.
Þá lofaði Framsókn 12.000 nýjum störfum á kjörtímabilinu og var
gert grín að. Þau yrðu raunar MIKLU fleiri og í dag er ekkert at-
vinnuleysi þrátt fyrir tímabundna fjölda útlendinga í vinnu vegna
mikils hagvaxtar og uppbyggingar á öllum sviðum þjóðlífsins.
Er þessi STAÐREYND aumkunarverður málflutningur? Þvert á
móti er þinn málflutningur hér aumkunarverður, enda hafið
þið vinstrisinnar ákaflega lítið til málana að leggja..

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 7.5.2007 kl. 09:04

6 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Og þú Jóhann virðist ekkert hata eins míkið undir sólinni en Framsókn
ef marka má skrif þín. - Það verður að vera þitt mál. En þegar þú
ferð fram með rakalausar fullyrðingar og lítilsvirðir okkar ágæta
heilbrigðisráðherra er eðlilegt að þeir sem það blöskrar svari á móti.

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 7.5.2007 kl. 09:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband