Pia Kjærsgaard sýknuð


    Þær ánægjulegu fréttir bárust frá Danaveldi í dag
að formaður Danska þjóðarflokksins var í dag sýknuð
af kæru um meiðyrði fyrir að hafa kallað danska mús-
limaklerka landráðamenn. Öfgafull trúarsamtök íslam-
ista í Danmörku sem höfuðu mál á hendur Kjærsgaard
lýstu yfir mikilli reiði með dóminn.

   Skv frétt Jyllandsposten kröfðust samtökin fjárbóta,
en þurfa sjálf að greiða málskostnaðinn. Haft var eftir
dómara við réttinn, að orðið ,,landráðamaður" væri oft
notað í opinberri umræðu, og því hefði það ekki verið
refsivert þegar Kjærsgaard skrifaði í fréttabréf flokk-
sins, ,,að áróður danskra múslima erlendis vegna
múhameðsteiknimyndanna hafi verið landráð."

   Fagna ber þessari niðurstöðu, því hún er sigur fyrir
eina helgastu grunnstoð vestrænnar menningar í dag,
TJÁNINGARFRELSIÐ.. - Skilaboðin eru skýr og koma á
mikilvægum tíma þegar allskyns trúarleg öfgasamtök og
and-vestræn múgmennska virðist ætla að vaða uppi í
trássi við öll hin  vestrænu gildi og hefðir.........

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband