Austurlandaferð Ingibjargar gleymd


    Nokkuð er um liðið síðan Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
utanríkisráðherra fór í mikla reisu til Mið-austurlanda,
til að kynna sér málin þar, eins og það var orðað. Heil
vika fór í reisuna með tilheyrandi fjölmiðlastandi hér-
lendis, og að sjálfsögðu með ,,viðeigandi" kostnaði fyrir
okkur skattgreiðendur. För þessi var afar umdeild, þótt
ekki sé meira sagt, því fjölmargir sáu alls ekki hvernig
Ísland gæti haft áhrif umfram alla aðra til að koma vitinu
fyrir stríðsherranna þarna fyrir austan. -  Auk þess sem
margir töldu réttilega varasamt að flækja Íslandi inn í
jafn blóðug átök og flókin og erfið deilumál og þau, sem
hafa verið fyrir  botni Miðjarðarhafs nánast frá ómunatíð.

   Ósköp hljótt hefur því verðið um för utanríkisráðherra
síðan, enda skiljanlegt. Förin var vanhugsuð í alla staði,
illa skipulögð, auk þess farin á kolvitlausum tíma

   Eftir sitja svo íslenzkir skattgreiðendur, hugsandi að 
betur hefði nú mátt ráðstafa milljónunum í eitthvað þarf-
fara hér innanlands. Reikningurinn verður hins vegar 
bókaður sem kostnaður í baráttuna um Öryggisráðið.

   Allt virðist nefnilega geta réttlætt þá forheimskulegu
baráttu !




« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hafsteinn Viðar Ásgeirsson

Það er nú algerlega með ólíkindum að sjá skrif sem þessi frá áhanganda Halldórs Ásgrímssonar og Valgerðar Sverrisdóttur, sem hvort um sig hafa vaðið um heiminn og stráð um sig sendiráðum og pólitískt ráðnum dindlum, sérstaklega Hornafjarðarlúðinn. Mann rekur hreinlega í vörðurnar yfir ósvífninni og ég trúi að svo verði um flesta sem lesa þessi makalausu skrif, .....ja hérna..... En ég er algerlega sammála varðandi þetta Öryggisráðskjaftæði, en enn og aftur kemur það úr þrotabúi Framsóknar.

Hafsteinn Viðar Ásgeirsson, 9.8.2007 kl. 12:16

2 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Hafsteinn. Er hér á MÍNUM forsendum og er að lýsa MÍNUM persónulegum skoðunum. Var oftar en ekki óssamála Halldóri
Ásgrímssyni í grundvallaratriðum varðandi utanríkismál, eins og
varðandi Evrópusambandið, milljarða-sendiherrabústaðin í
Toykio og rugl-framboð Íslands til Öryggisráðsins. Þannig ég er
hér ekki áhangandi eins né neins þegar kemur að því að tjá mig
um menn og málefni hér. Skilgreini mig í pólítík sem mið/hægrisinnann
með áherslur á þjóðleg viðhorf.

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 9.8.2007 kl. 12:59

3 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Svo Hafsteinn áttu að vera maður að meiru og viðurkenna þessa rugl-ferð Ingibjargar. Sem var eingöngu til að fullnægja hennar pólitísku
hégómagirnd eins og allt of oft gerist meðal stjórnmálamanna.

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 9.8.2007 kl. 13:09

4 Smámynd: Hafsteinn Viðar Ásgeirsson

Ég er nú á því að umrædd ferð Ingibjargar hafi verið heilt yfir ágæt ferð og það hef ég séð koma frá mönnum úr öllium áttum og flokkum, svo ég er ekki einn um þá skoðun. Svo mér finnst nú miklu frekar að boltinn sé hjá þér hvað það varðar "að vera maður að meiru" og viðurkenna það sem er almenn skoðun fólks, að ferð Ingibjargar hafi verið að flestu leiti góð. Þá er ég að sjálfsögðu m.a. að bera hana saman við fyrri "flipp" þeirra sem hafa gegnt þessu embætti.

Ekki efaðist ég um að þú værir að lýsa þínum skoðunum, ég held að það hafi hvergi komið fram annað, þó þær vissulega séu ansi oft "Framsóknarlegar", en það er önnur saga....

Hafsteinn Viðar Ásgeirsson, 9.8.2007 kl. 13:25

5 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Það er alveg rétt hjá þér Hafsteinn að allt of mörg ,,flibbin" hafa
verið gerð í utanríkisráðuneytinu, og allt of margir sem þar hafa
ráðið för hafa gleymt því að við erum ekki nema nýorðin 300.000
manna þjóð, en ekki fleiri milljóna. Þess vegna hefur þetta
ráðuneyti þanist allt of mikið út mest í óþökk þjóðarinnar og okkur skattgreiðenda. Viðurkenni það 100% en bendi líka á að á því
ætlar alls engin breyting að verða. ÞVÍ MIÐUR ! Þess vegna gagnrýni ég það, og tel mig fyllilegan samkvæman sjálfum mér með það miðað við það sem ég hef áður gagnrýnt varðandi þessi
mál.

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 9.8.2007 kl. 13:40

6 Smámynd: Hafsteinn Viðar Ásgeirsson

Ég er hjartanlega sammála þér varðandi útþensluna og allt bullið í kringum þetta ráðuneyti á undanförnum allmörgum árum. Mér finnst hinsvegar ekkert komið fram um það ennþá hvort á því verði einhver breyting nú, alls ekki og þessi ferð er enginn mælikvarði á það mál. En það verður hreinlega að ætlast til að það verði breyting þar á.

Hafsteinn Viðar Ásgeirsson, 9.8.2007 kl. 13:52

7 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Við erum nú bara oftar en ekki sammála Hafsteinn..........

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 9.8.2007 kl. 13:55

8 Smámynd: Hafsteinn Viðar Ásgeirsson

Viltu meina að það eymi eftir af framsóknargenunum...ha,ha..

Hafsteinn Viðar Ásgeirsson, 9.8.2007 kl. 18:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband