Hefur utanríkisráðherra brugðist í ratsjárstöðvamálinu ?


   Formaður utanríkismálanefndar, Bjarni Benediktsson,
segir það koma sér  á óvart hversu mörgum álítaefnum
sé enn ósvarað, aðeins nokkrum dögum áður en Íslend-
ingar taka við rekstri ratsjárstöðvanna. Í raun virðist allt
í lausu lofti um rekstur og hlutverk íslenzka lofvarna-
kerfisins, ef marka má orð formanns utanríkismálanefndar.

   Ef satt reynist er hér um grafalvarlegt mál að ræða, og
öll spjót hljóta að beinast að utanríkisráðherra hvað
þetta varðar. Að ekki skuli liggja fyrir skýrar línur um
rekstur þessara þýðingarmiklu starfsemi fyrir loftvarnir
Íslands aðeins nokkrum dögum áður en Íslendingar
taki við rekstri stöðvanna er svo ótrúlegt, að hér hlýtur
að vera um einhvern mikinn misskilning að ræða.

  Utanríkisráðherra hlýtur að svara fyrir þetta þegar í
stað, og útskýra málið fyrir þjóðinni !

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristján Pétursson

 Fyrrv.ríkisstjórn átti að vera búin fyrir löngu síðan að skilgreina  framtíðarhlutverk radsjárstöðvanna gagnvart NATO.Það var löngu vitað áður en Bandaríkjamenn fóru,að við yrðum að greiða allan kosnað af rekstri stöðvanna og jafnfram að breyting yrði á hlutverki þeirra gagnvart hernðarlegu flugi.Það réttlætir hins vegar ekki seinagang núverandi ríkisstjórnar að  ljúka sínum viðræðrum við NATO um framkvæmt og kosnað við starfisemi stöðvanna.

Kristján Pétursson, 9.8.2007 kl. 22:29

2 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Kristján minn. Ekki segja svona. Ábyrgðin í dag er 100% núverandi
ríkisstjórnar, og ekki sízt utanríkisraðherra. Utanríkisráðherra, sem
er með hugann allt annars staðar, en þar sem íslenzkir HAGSMUNIR
eru. T.d í Mið-austurlöndum og á TUNGLINU!!!!!!!

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 10.8.2007 kl. 00:30

3 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sæll Guðmundur.

Já þetta er stórfurðulegt.

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 10.8.2007 kl. 01:56

4 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já, þetta kom mér á óvart líka.  Og hvað með starfsmennina sem missa vinnuna ?

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 10.8.2007 kl. 08:15

5 Smámynd: Hafsteinn Viðar Ásgeirsson

Er ekki rétt að halda ruglinu áfram, af því einhverjir vinna við það...????

Hafsteinn Viðar Ásgeirsson, 10.8.2007 kl. 12:38

6 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Þetta er ekki spurning að halda áfram ruglinu, heldur að hafa
kláraðað að vinna ákveðið verk fyrir ákveðin tíma. Sá tími er 15
ágúst, en þá verður málið enn í lausa lofti, sem er afar ámælisvert.
Um það snýst málið.........

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 10.8.2007 kl. 12:48

7 Smámynd: Hafsteinn Viðar Ásgeirsson

Þetta er einfalt fyrir mér. Ef Nato eða þeir sem telja uppá að þeir hafi gagn af þessu vilja ekki borga, þá á bara að loka þessu. Það hlýtur að vera hægt að ákveða það fyrir 15.....?

Hafsteinn Viðar Ásgeirsson, 10.8.2007 kl. 14:25

8 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Það er alveg ljóst að NATÓ kemur inn í dæmið. Því þó svo að engar
herþotur séu að staðaldri á Íslandi, er það lágmarkskrafa að
vitað sé hverjir fara um íslenzka lofthelgi og hverjir ekki. Nákvæmlega
sama og um íslenska landhelgi. Allar upplýsingar um íslenzka lofthelgi VERÐA ætíð að vera fyrir hendi eins og með lofthelgi ALLRA
ANNARA RÍKJA. Það er eins og utanríkisráðherra skilji það ekki, enda
fyrrum NATÓ-andstæðingur.

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 10.8.2007 kl. 16:32

9 Smámynd: Hafsteinn Viðar Ásgeirsson

Ertu ekki að gera henni upp skoðanir þar...?

Hafsteinn Viðar Ásgeirsson, 10.8.2007 kl. 21:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband