Orð að sönnu hjá Staksteinum


    Staksteinar Morgunblaðisins fara hörðum orðum um
störf utanríkisráðherra. Vert er að taka heilshugar undir
þau, því þau eru orð að sönnu.

  Þar segir: ,, Að láta sér til hugar koma, að Íslendingar hafi
einhverju raunverulegu hlutverki að gegna í að leysa deil-
urnar í Miðausturlöndum er í bezta falli barnaskapur og í
versta falli sýndarmennska en eingöngu til heimabrúks,
því að sú sýndarmennska dugar skammt í öðrum löndum."

  Og ennfremur:  ,,Hið sama á við um viðleitni okkar til
þess að komast í öryggisráðið og borga fyrir það 600-
1.000 milljónir. Hver ætli hafi látið sér detta þessa vitleysa
í hug? Ef svo ólíklega vildi til að við næðum kosningu í
öryggisráðið mundum við fyrst finna fyrir því."

  Og í lokin:  ,, Er einhver von til þess  að hægt verði að
koma utanríkisráðherra og utanríkisráðuneytinu í jarð-
samband? Hvar eru nú hinar hagsýnu húsmæður?".


    Ljóst er að núverandi utanríkisráðherra á eftir að
verða landi og þjóð dýr, bæði fjárhagslega en ekki
síst með allskyns ranghugmyndum,  og að gæta ekki
íslenzkra hagsmuna sem skyldi..........

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Ég get tekið undir allt sem fram kom í Staksteinum.  Við eigum ekkert erindi í friðarviðræður þarna og rétt hjá þér Guðmundur að núverandi utanríkisráðherra á eftir að verða okkur dýr á mrgan hátt. Við eigum t.d. ekkert erindi í Öryggisráð S.Þ. sem er áætlað að komi til með að kosta okkur hátt í einn milljarð.  Svo erum við núna að taka þátt í kostnaði við heræfingar hér á landi á sama tíma og Landhelgisgæslan er í vandræðum að halda úti skipum sínum vegna fjárskorts.

Jakob Falur Kristinsson, 14.8.2007 kl. 14:15

2 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Þá erum við semsagt að tala um að við eigum ekkert að skipta okkur að alþjóðamálum nema hér rétt við landhelgina okkar. Ég ansa ekki svona kjaftæði. Menn verða að átta sig á því að þeir sem koma til með að koma á friði þarna í MIðausturlöndum eru þeir sem þar búa. Hlutverk annarra þjóða er að koma þangað inn sem sáttasemjarar. Minni á að Norðmenn hafa gert þetta bæði í Miðaustulöndum sem og í Sri Lanka þar sem að Bandaríkjamönnum og fleirum hafði mistekist.

Ef að við erum svona lítil fátæk þjóð sem ekkert getum þá er eins gott að hætta bara að taka þátt í samfélagi þjóðanna.

Ég bið menn að gera ekki svona lítið úr okkur. Minni líka á að Styrmir er einn helsti andstæðingur Ingibjargar Sólrúnar. Manneskjan var þarna í innan við 2 vikur og þið eruð að fara á hliðinna yfir því. Steingrímur Hermannsson var nú þarna líka sem og Halldór Ásgrímsson. Ég held að Davíð hafi farið til Ísrael

Og að lokum minni ég að fyrri Utanríkisráðherra Íslands Valgerður og stjórnin sem hún var í taldi að við ættum fullt erindi í Öryggisráð SÞ. Samkvæmt þessu er það nú bara bull. Hún á að vera hér heima og fylgjast með Ratsjárstöðvum og skv. ykkur þá á utanríkisráðherra Íslands að vera einskonar varnarmálaráðherra. Held að þið séuð að misskilja eitthvað.

Magnús Helgi Björgvinsson, 14.8.2007 kl. 22:29

3 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Magnús. Eigum að hafa sterkar skoðanir á öllum málum, m.a
alþjóðamálum, hins vegar verðum við ætíð að vera í jarðsambandi.
Það er frú Ingibjörg alls ekki gagnvart stríðinu fyrir botni Miðjarðarhafs. Að Ísland geti þar gegnt einhverju lykilhlutverki eins
og Ingibjörg heldur er hreinn og klár BARNASKAPUR. Auk þess eigum við alls ekki að vera að flækja okkur í stríð öfgafulra múslíma og zíonista.  Bara ALLS EKKI.

Þá vil ég áretta það Magnús að ég er hér enginn málsvari
Framsóknarflokksins. Er hér að lýsa mínum PERSÓNULEGUM
skoðunum, sem í utanríkismálum hafa oftar en ekki verið
óssammála skoðunum þeirra framsóknarmanna sem hafa
stýrt utanríkisráðuneytinu. T.d hef alltaf verið á móti Íraksstríðinu
og aðkomu Íslands að því, andstæðingur þátttöku okkar í
öryggisráðinu, og harðaur andstæðingur alildar Íslands að ESB.



Guðmundur Jónas Kristjánsson, 15.8.2007 kl. 11:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband