Á Framsókn að slíta borgarstjórnarmeirihlutanum?


   Harkalegar deilur eru sagðar í borgarstjórnarflokki
sjálfstæðismanna um samruna REI og Geysir Green
Energey, og segja heimildarmenn innan Sjálfstæðis-
flokksins að málið muni hafa ,,afleiðingar" án nánri
útskýringa. Ef þessar deilur innan Sjálfstæðisflokks-
ins verða til þess, að flokkurinn verði meir eða minna
óstarfhæfur  þar sem eftir er kjörtímabilsins,  vegna
innbyrðis deilna, er fullkomin ástæða til hjá Framsókn
að  íhuga að slíta meirihlutasamstarfinu fyrr en seinna.

   Vert er að minna á að Sjálfstæðisflokkurinn sleit ríkis-
stjórnarsamstarfinu við Framsókn í vor út af nánast
engu tilefni. Klúðrið kringum þetta REI og Geysir Green
Energey virðist orðið slíkt, að það gæti reynst Framsókn
dýrkeypt að láta bendla sig við það frekar.........


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ef til kemur að klúðrið í kringum Orkuveituna verður til þess að uppgjör fari fram innan Sjálfstæðisflokksins er líklegt að Sjálfstæðismenn líti til þess að slíta samstarfinu við Framsóknarmanninn.

Spillingarþefinn leggur af þessu langar leiðir og margir telja Framsókn höfund þess. Það er eitt og annað í þessu máli sem er verulega bogið eins og til dæmis að borgarfulltrúi Framsóknarflokksins hafi náð sér í 350 þúsund króna aukatekjur á mánuði fyrir stjórnarsetu, að kosningarstjóri Framsóknarflokksins fái að kaupa hlutabréf á sérkjörum og fleira mætti til telja.

Hygg að þeir sem ekki eru af gömlu helmingaskipta kynslóðinni í Sjálfstæðisflokknum fyrirverði sig fyrir þessi vinnubrögð og vilji að eðlilega hefði verið að verki verið í stað svona sjálfkrýninga fólks til aðals í viðskiptum.

Guðmundur Sigurðsson (IP-tala skráð) 4.10.2007 kl. 21:27

2 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Mér kemur EKKERT við Guðmundur hvernig málið þróast innan
Sjálfstæðisflokksins. Tel að þarna hafi orðið meiriháttar klúður
og slýs, sérstaklega hvernig örfáum útvöldum er gert kleyft að
eignast stóra hluti í þessu nýja fyrirtæki á vildarkjörum. Er á
móti  slíkum vinnubrögðum, og hvet Framsókn til að koma ekki
nánlagt svona augljósu rugli, sem mun stórskaða flokkinn í
framtíðinni, og er ekki viðbætandi. Þótt ég sé fylgjandi málinu
í heild sinni var meiriháttar illa að því staðið. Og því ber að mótmæla.

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 4.10.2007 kl. 21:48

3 identicon

Mæltu manna heilastur, það er hræðilegt hvernig handvalið er hverjir fá forskot í lífinu og hverjir ekki.

Hins vegar er það því miður þannig að Framsókn er gerandi í þeim ljóta leik. Það sem verra er að líklega tekst Sjálfstæðismönnum að komast stykkfrí frá spillingunni í þessu máli.

Líklegt er að Vilhjálmi sé að takast að koma böndum á flokkinn sinn en eftir standi að Björn Ingi sé sá spillti.

Guðmundur Sigurðsson (IP-tala skráð) 4.10.2007 kl. 21:54

4 Smámynd: Einar Ben Þorsteinsson

Framsókn er að klúðra þesu. Því miður.

Einar Ben Þorsteinsson, 4.10.2007 kl. 23:02

5 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Trúi því að Framsókn muni slíta þessu samstarfi í ljósi síðustu
viðburða. Helstu rök sjálfstæðismanna í vor að slíta þáverandi ríkisstjórnarsamstarfi voru þau að einn atkvæðismeirihluti væri of tæpur. Sama gildir nú með borgarstjórnarmeirihlutann, hann er myndaður með bara einum atkvæðismeirihluta + það að nú er sjálfstæðismeirihlutinn meiriháttar klofinn og óeining innan hans. Þannig, að nú á Framsókn að slíta þessu samstarfi á sömu rökum og sjálfstæðismenn gerðu í vor. Sundrungin innan Sjálfstæðisflokksins virðist slíkur að honum er ekki lengur
treystandi.  

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 5.10.2007 kl. 00:42

6 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Væri eitthvað vitrænt í stöðunni fyrir hendi til handa Framsóknarmönnum þá væri það nákvæmlega það að segja sig burt frá stjórn borgarinnar nú.

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 5.10.2007 kl. 01:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband