Dæmigerð rugl ályktun um ESB og evru


  Þing Starfsgreinasambandsins ályktaði í dag að kannað
verði hvort aðild að ESB og upptaka evru þjóni hagsmunum
Íslands. Segir m.a að meira sé vitað um ávinningin af ESB-
aðild en mögulegar  neikvaðar afleiðingar hennar.

  Hvers konar rugl er þetta? Vita þingfulltrúar SGS t.d ekki
af því hvað gerist í  íslenzkum sjávarútvegi ef Ísland gerðist
aðili að ESB.?  Veit SGS ekki að allur kvóti á Íslandsmiðum er
framseljanlegur ? Veit SGS þá ekki af því að við aðild að ESB
færi nánast allur fiskveiðikvóti á Íslandsmiðum sjálfkrafa á
erlendan uppboðsmarkað innan sambandsins ?  Hefur SGS
aldrei heyrt af hinu illræmda kvótahoppi innan ESB sem af
slíku leiðir? Veit SGS ekki af því  að slíkt  kvótahopp  hefur
lagt t.d breskan sjávarútveg í rúst? Hefur hjálparbeðni frá
skoskum þingmönnum til norskra og íslenzkra stjórnvalda
um að reyna að koma vitinu fyrir Brusselvaldið  í sjávarút-
vegsmálum farið framhjá þingfulltrúum SGS.?  Fyrir hvaða
HAGSMUNI eru þingfulltrúar SGS eiginlega að starfa ? Í
hvaða heimi eru þeir eiginlega? Um hvað ætli umbjóðendur
um þá hugsi eftir slíka ofurruga-ályktun um Evrópumál?

 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband