Formaður Framsóknarflokksins bregðst við


  Í Fréttablaðinu í dag kemur fram að Guðni Ágústsson
formaður Framsóknarflokksins segist hafa orðið var
við mikla óánægju innan flokks sins með framgöngu
borgarfulltrúa flokksins í Reykjavík, vegna samruna
REI og Geysis Green Energy. Hann boðar fund með
sveitarstjórnarmönnum flokksins á suðvesturhorninu
strax  eftir helgi til  að fara yfir þessi mál.

  Það er ánægjulegt að formaður Framsóknarflokksins
skuli  líta  þetta mál  alvarlegum  augum. Enda ekki 
skrítið,  þar sem sjálf ímynd flokksins er í veði. Ímynd
sem reynt hefur verið að byggja upp eftir að ný for-
ysta tók við flokknum undir formennsku Guðna Ágústs-
sonar. Ímynd sem ákveðin öfl innan flokksins tókust
að sverta um áraraðir. Svo virðist að ekki hafi tekist
að kveða þau niður fyrir fullt og allt. - Það verkefni
verður að ljúka. Það er krafa hins almenna flokks-
manns og stuðningsmanna í dag. -  Til þeirra verka
hefur  formaðurinn  fullan  stuðning, ekki síst  hins
almenna kjósenda flokksins og grasrótar hans....

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Fannar frá Rifi

Halldórsarmurinn er enn í Borgarstjórn og heldur uppteknum hætti þar, þó svo að hann hafi misst mikil áhrif og ítök á þingi og í þingflokknum

Fannar frá Rifi, 7.10.2007 kl. 11:18

2 identicon

Það er merkilegt að sjá hvernig Guðni bregst við núna eftir að allt er orðið á suðu í þessu máli.

Það hefur komið fram að Björn Ingi hafði átt viðræður við flokksformanninn og kynnt honum hvað

til stæði. Nú virðist sem að Guðni hafi ekki skilið það sem við hann var sagt.

Það er því hlálegt að hann ætli nú að fara að bregðast við. Hins vegar liggurfyrir að nauðsyblegt er að bregðast við

en Guðni hefði átt að gera það um leið og hann vissi hvað fyrir dyrum stæði.

Guðmundur Sigurðsson (IP-tala skráð) 7.10.2007 kl. 13:10

3 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Guðni var ekki upplýstur um allt málið og umfang þess. Guðni er
hrekklaus og heiðarlegur stjórnmálamaður, og treystir mönnum að
óreyndu...........

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 7.10.2007 kl. 15:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband