Verðbólgan sú sama og á evrusvæðinu / ef......
24.10.2007 | 21:30
Einar Kr. Guðfinsson sjávarútvegs-og landbúnaðarráðherra
ritaði fyrir skömmu afar merkilega grein á heimasíðu sína um
verðbólguna hér á Íslandi og á evrusvæðinu. Þar sýnir hann
fram á að ef notaður er hinn samræmdi mælikvarði sem lagð-
ur er til grundvallar á evrusvæðinu þegar verðbólga er mæld
komi í ljós að verðbólga er nánast sú sama á Íslandi og á
evrusvæðinu. Mælist verðbólgan jafnvel hærri í ýmsum stærri
ríkjum ESB en á Íslandi, s.s í Þýzkalandi og á Spáni. Aðal ör-
sökin fyrir því að raunin sé önnur er sú að á Íslandi er hús-
næðisverð reiknað inn í vísitöluna en ekki á evrusvæðinu, en
sem kunnugt er hefur húsnæðisverð á Íslandi hækkað mjög
míkið á s.l. árum. Á evrusvæðinu er litið að húsnæðiskaup sem
fjárfestingu en ekki sem neyslu eins og á Íslandi.
Hvers vegna í ósköpunum er þetta þá svona? Hvers vegna
hefur þessu ekki verið breytt fyrir löngu þannig að sami grund-
völlur er lagður til útreikninga á verðlagi á Íslandi og á evru-
svæðinu? Sem þyddi hvað ? Jú MUN LÆGRI VERÐBÓLGU OG MUN
LÆGRI VEXTI! Hvers konar bjánaháttur er þetta ? Við erum á
hinu Evrópska efnahagssvæði. Og hvers vegna gilda ekki sömu
reglur hér og á EES-svæðinu varðandi útreikninga á verðbólgu?
Hvers vegna hefur þetta nánast ekkert verið rætt ? Ekki einu
sinni í kjölfar þessarar merku ábendingar Einars Kr. Guðfinns-
sonar ?
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.