Alvarlegur klofningur í ríkisstjórn um öryggismál
25.10.2007 | 21:17
Ríkisútvarpið greindi frá því í kvöld að milli stjórnarflokkanna
sé ósamkomulag um frumvarp dómsmálaráðherra um almanna-
varnir og öryggismál. Dómsmálaráðherra hefur kynnt frumvarpið
í ríkistjórn, en Samfylkingin telur lýðræði og mannréttindi gjalda
fyrir öryggissjónarmið í frumvarpinu. Í mars mánuði kynnti dóms-
málaráðherra frumvarpið sem fékk stuðning í fyrrverandi ríkis-
stjórn. Þá var m.a gert ráð fyrir að almannavarnarráði verði
breytt í öryggismálaráð, sem heyri beint undir forsætisráðherra,
og að stofnað verði 240 manna varalið lögreglu..
Þegar frumvarpið var kynnt í mars sl. risu vinstrisinnar upp
með hrópum og köllum, og sáu frumvarpinu allt til foráttu.
Fremstur þar fór maður nokkur að nafni Össur Skarphéðinsson
sem taldi það fráleitt að stofna varalið lögreglu, sem hann taldi
ekkert annað en herlið. Nú eru vinstrisinnar komnir í ríkisstjórn
og ætla nú bersýnilega að koma í veg fyrir þetta sjálfsagða
frumvarp. - Reyndar verður það með ólíkindum ef dómsmála-
raðherra og Sjálfstæðisflokkurinn láta ÓÁBYRGA vinstrisinna
koma í veg fyrir framgang málsins. Því hér er aðeins verið að
stiga fá en mikilvæg skref til að efla öryggismál þjóðarinnar.
Þetta er enn eitt dæmið hvað flokksforysta Sjálfstæðisflokks-
ins gerði hrikaleg mistök í vor að hleypa vinstrisinnum inn í
landsmálin. Ekki bara vinstrisinnuðum ESB-sinnum, heldur
líka vinstrisinnum sem hafa allt á hornum sér varðandi
þjóðaröryggismál íslenzku þjóðarinnar.
Það verður vel fylgst með því hvort sjálfstæðismenn bakki
eina ferðina enn, og það í stórmáli sem varðar sjálft þjóðar-
öryggi íslenzku þjóðarinnar. - Það verður ekki liðið !
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:44 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.