Varalið lögreglu nauðsynlegt


   Í Silfri Egils í gær var Björn Bjarnason dómsmálaráðherra
spurður um áform sín um að koma á fót varaliði lögreglu.
Björn er með slíkt frumvarp í smiðum, og er það vel. Í tíð
fyrrverandi ríkisstjórnar var rætt um allt að  240  manna
varalið. Þá ætluðu sumir vinstrisinnar æfir að verða og sáu
hugmyndum dómsmálaráðherra allt til foráttu. Jafnvel gekk
núverandi iðnaðarráðherra svo langt að kalla slikt lið vísir að
íslenzkum her. Varla mun Össur nú andmæla eftir að vera
orðinn ráðherra, eða hvað ?

  Hér er í raun mjög þarft mál að ræða, eingöngu til að
styrkja innra öryggi íslenska ríkisins fyrir hvers konar
vá af náttúru- eða mannavöldum. Því er ekki nema eðli-
legt að dómsmálaráðherra vilji nýta þann mikla mannauð
sem er að finna í okkar björgunarsveitum um land allt,
því þær ásamt lögreglu tengjast almannavörnum nú
þegar við öll björgunar- og leitarstörf. Hér er að sjálf-
sögðu bara um að ræða lítinn hluta af mönnum innan
björgunarsveitanna. Mönnum sem af frjálsum og fúsum
vilja eru  tilbúnir til að legga  löggæslunni lið við  mjög
hættulegar og erfiðar aðstæður.  - Það er nú allt of sumt!
Kæru vinstrimenn!

 


mbl.is Björgunarsveitarmenn í varalið lögreglu?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Soffía Sigurðardóttir

Ég er á því að þetta varalið lögreglu sé varasamt! Færi nokkur rök fyrir því á bloggi mínu, og það út frá fleiru en pólitík!

Soffía Sigurðardóttir, 4.2.2008 kl. 01:17

2 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Alveg dæmigert um ykkur róttæku vinstrisinna. Ættuð einhvern tímann að reyna að skammast ykkar fyrir ótakmarkaða og mjög svo ótrúlega ÓÞJÓÐLEGA AFSTÖÐU þegar um öruggis-og varnarmal
íslenzkrar þjóðar er að tefla.

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 4.2.2008 kl. 01:27

3 identicon

Algjörlega ósammála þér nafni, finnst þetta reyndar þvert á móti lýsa ykkur hægri mönnum vel. Það getur vel verið að það sé þörf á varaliði, ekki rengi ég það, en að ætla að nota björgunarsveitirnar í að, t.d. taka á mótmælum vegna einhvers sem ekki hugnast stjórnvöldum, er alveg fráleitt.

Guðmundur Baldursson (IP-tala skráð) 4.2.2008 kl. 01:33

4 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Guðmundur Baldursson. Enn eitt dæmið um rangfærslur ykkar óþjóðlegu vinstrisinna.. Dómsmálaráðherra TÓK SKÝRT FRAM að
það yrði ákvöðrðun SÉRHVERS björgunarsveitarmanns hvort viðkomandi samþykkti að ganga til liðs við varalið lögreglu eða
ekki. ENGINN yrði þvingaður til þess, og ALLRA SÍST óþjóðlegir
vinstrisinnaðir róttæklingar!

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 4.2.2008 kl. 01:45

5 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sæll Guðmundur.

Það var gaman að sjá Björn í Silfrinu ræða málin og auðvitað sér hver heilvita maður að slíkt varalið er hvoru tveggja sjálfsagt og eðlilegt.

Hinar heimskulegu úlfaárásir á Björn og alls konar tilbúningur og múgæsingastand í þessu efni er runnin undan rót fjölmiðla þar sem hluti vinstri manna hefur fangað sitt væringatilstand um hinar gífurlegu hættur í þessu efni.

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 4.2.2008 kl. 01:57

6 Smámynd: Snorri Magnússon

Varalið lögreglu nauðsynlegt!  Segir hver og hvers vegna?  Hvað skyldi liggja til grundvallar slíkri ákvörðun?  Hvaða þarfagreining?  Væri ekki nær að efla það sem þegar er til staðar í stað þess að veikja?  Væri ekki nær að halda út öflugri sólarhringslöggæslu um allt land í stað þess að loka að næturlagi lögreglustöðinni t.d. í Kópavogi og "búrinu" á aðalstöð lögreglu höfuðborgarsvæðisins. 

Er það ekki almennt talið, af stjórnvöldum, merki um óstjórn og óráðssíu í rekstri heimilanna í landinu ef þau leyfa sér að ráðast í nýframkvæmdir á sama tíma og þau eru með aðrar framkvæmdir, samskonar, ókláraðar? 

Þessar hugmyndir, sem Björn hefur haldið á lofti, eru langt í frá nýjar af nálinni.  Jón Magnússon forsætis- og dómsmálaráðherra flutti frumvarp um varalið lögreglu á Alþingi 1925 en slíkt náði ekki fram að ganga þá.  Meint nauðsyn slíks varaliðs lögreglu spratt upp úr "uppþotum" í kjölfar málsins með rússneska piltinn......

Snorri Magnússon, 4.2.2008 kl. 09:14

7 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Snorri. Að sjálfsögðu þarf að forgangsraða í löggæslu eins og í öllum
öðrum rekstri. Tel raunar að við komumst ekki hjá því á næstu misserum og árum að stórauka framlag okkar bæði til öryggis- og
varnarmála, þannig að við náum því að vera sambærilegir með framlög eins og víðast hvar tíðkast hjá þjóðum sem við berum okkur
saman við, einkum þær vestrænu, Nato-ríki og ríki Norðurlanda.
Stofnun varaliðs lögreglu er aðeins litill hluti af því dæmi. Miklu
meira mun koma til, ekki síst tengd varnarmálunum, á næstu árum.

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 4.2.2008 kl. 09:26

8 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Þeir sem fóru á kristnihátíð hér um árið sáu Björgunarsveitir að störfum og eins og björn kynnti þetta í Silfrinu var þetta aðeins um þannig atburði. Þ.e. að á þannig stundum væri til lið til að kalla í umferðar og mannfjölda stjórnun. Þetta væri t.d. aðallega til þess að þetta fólk sem kallað væri út lögreglu til aðstoðar fengi til þess heimild og fengi viðeigandi búning.

 Sé ekkert að þessu. Ög rök Björns fyrir því að björgunarsveitabúningar væru auðkenni björgunar en ekki löggæslu fannst mér alveg standast.

En ég hef ekki séð frumvarpið sjálft og það gæti verið að þar væri ekki allt með feldu.

Magnús Helgi Björgvinsson, 4.2.2008 kl. 13:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband