Rússar hafa áhyggjur af Íran. Eðlilega!


   Utanríkisráðherra Rússa lýsti í gær yfir áhyggjum sínum
yfir eldflaugaskoti Írana. Segir hann að skotið veki upp
grunsemdir um að lítt sé að marka staðhæfinga þeirra
um að þeir stefni ekki að þróun kjarnorkuvopna.

  Auðvitað munu Rússar skipa sér í sveit vestrænna þjóða
þegar á hólminn kemur gagnvart þeirri ógn sem heimurinn
stafar af öfgafullum íslamistum út um allar trissur. Í Íran
voru í gær tvær systur dæmdar til dauða (sbr. Bylgjufréttir
í gærmorgun) út af einhverjum minniháttar málum. Hæðsti-
réttur Írans dæmdi þær systur til dauða. Og ekki bara það!
Þær skyldu grýttar til dauða.  Já GRÝTTAR TIL DAUÐA. Þvílík
grimmd, og að slíkir hlutir skuli geta gerst nú í byrjun 21 
aldar. -

  Svo eru sumir þjóðhöfingjar úr vestrinu að heimsækja
slíka böðla. Og það ekki fyrir margt löngu. Þvílík skömm!
Og Smán!!!!!!!!!
mbl.is Eldflaugaskot Írana veldur Rússum áhyggjum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ólafur Þórðarson

Auðvitað á að sporna við útbreiðslu kjarnorkuvopna. Aðferðin er það sem menn deila um. Það eru önnur lönd þarna í nágrenninu þar sem stjórnvöld eða trúaöfgarlið gera annað eins, bæði með að myrða einstaklinga og að fikta í kjarnorkuvopnum.

Spurning af hverju ekki ræða þau líka, einbeita sér að heildarmyndinni. Spurning hvort refsiaðgerðir gegn Íran skapi miklar mannlegar þjáningar, mun meira en svona grýting.

Trúardellukúltúrar eru snarlega bilaðir hvar sem litið er. Líka í Texas. Nú er Íran stórt land og minnihluta-öfgaöfl þar innan sem hafa verið með morðæði og klikkun. Hitt er svo annað mál að þessi atriði, Kjarnorkuvopnaþróun og grýting kvenna eru óskyldir fiskar. Þó freistandi sé að tengja þau framan á einn sporð.

Ólafur Þórðarson, 7.2.2008 kl. 01:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband