Landhelgisgæsla og löggæsla í algjöru fjársvelti !


    Ljóst er að bæði Landhelgisgælan og hin almenna löggæsla
í landinu býr við alvarlegt  fjársvelti. Þegar svo er  komið  að
Landhelgisgæslan verður að binda sín tvö varðskip við bryggju
svo vikum saman og takmarka allt gæsluflug eins og kostur er,
sökum skorts á eðlilegu rekstrarfé, eru hlutirnir orðnir með öllu
óásættanlegir.  Við þetta bætist svo nánanst upplausn í sjálfri
lögreglunni, einnig vega fjárskorts. Birtingamyndin þessa stund-
ina er uppsögn lögreglustjórans á Suðurnesjum og skyndiaf-
sögn hans ástamt hans nánustu yfirmönnum. Allt út af fjársvelti
og skilningsleysi dómsmálaráðuneytisins. Þetta er alveg með
hreinum ólíkindum!   - Það hlýtur að vera KRAFA þjóðarinnar
að á þessu verði breyting, og það strax. Öryggismál til sjós
og lands VERÐA ÆTÍÐ að vera í ásættanlegum farvegi. Stjórn-
völd hafa þar algjörlega brugðist!

   Á sama tíma og grunneiningar öryggisstarfseminnar eru í
algjöru fjársvelti er hægt að henda út um gluggann á annan
milljarð í eitthvað Öryggisráðsrugl sem EKKERT mun þjóna
þjóðinni á neinn hátt, heldur þvert á móti. Á sama tíma er
hægt að halda uppi rándýru Schengen-rugli sem kostar þjóð-
ina hátt í milljarð ár ári, sem nánast engu skilar öðru en opn-
ari og ótryggri landamæragæslu. Á  sama  tíma  er  hægt að
kasta fleiri milljörðum í utanríkisþjónustu í alls kyns hégóma
og vitleysu sem er hinum almenna Íslendingi ALGJÖRLEGA
óviðkomandi. En á sama tíma er ekki einu sinni hægt að
halda uppi LÁGMARKS löggæslu til sjós og lands! 

   Hvers konar stjórnarhættir eru þetta eiginlega?

   Bara tvö varðskip í rekstri og bæði bundin við bryggju.
   Og upplausn í lögreglunni.  Jafnvel uppreisn!

  Fáránllegt!  Skandall  
mbl.is Björn segir að fylla þurfi skörðin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Villi Asgeirsson

Það er ekki til peningur til að halda gæsluskipunum úti, en hann vill stofna her. Er ég sá eini sem skilur ekki bofs? Hvað kostaði norðurvíkingurinn? Hvað kostar að halda skipunum á sjó?

Villi Asgeirsson, 25.9.2008 kl. 07:53

2 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Bíddu er þetta ekki bara alfarið Ingibjörgu Sólrúnu að kenna? Það hlýtur að vera!!

Magnús Helgi Björgvinsson, 25.9.2008 kl. 12:43

3 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Magnús.Í raun er þetta allri ríkistjórninni að kenna er þó Birri öðrum
fremur því hann ber pólitíska ábyrgð á málaflokknum. En af því þú
nefndir Ingibjörgu Sólrúnu á nafn óska ég henni alls þess besta og að
hún nái fullum bata sem allra fyrst. Eigum ætíð að greina á milli pólitiskrar
afstöðu fólks og þess sem einsstaklinga. Því ALLIR reyna sem best að
láta gott af sérr leiða í stjórnmálum, en það erun bara leiðirnar sem menn
deila um.

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 25.9.2008 kl. 13:54

4 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Sammála þessu hjá þér. Þó að stundum hafi sumir verið auðsjáanlega að ganga sinna hagsmuna þar eða vina sinna.

Magnús Helgi Björgvinsson, 25.9.2008 kl. 14:54

5 Smámynd: Haraldur Davíðsson

Þetta er svo sannarlega skandall, það þarf langskólanám í heiladofa til að sjá það ekki.

Svo er kvartað undan virðingarleysi gagnvart lögreglunni!

Hvernig skyldi nú standa á þessu virðingarleysi...hmm..

Framkvæmda-og dómsvald eru bara einfaldlega ekki búin að vera að vinna sér inn neina virðingu í ansi langan tíma, það endurspeglast svo allsstaðar í samfélaginu, m.a. í því að fáir sjá ástæðu til að tjá sig um það sem þú ert að ljá máls á.

Haraldur Davíðsson, 25.9.2008 kl. 16:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband