Ingibjörg hótar Sjálfstæðisflokknum
13.12.2008 | 13:07
Hefur Samfylkingin Sjálfstæðisflokkinn í hendi sér? Ekki
bara það að Samfylkingin virðist hafa neytt Sjálfstæðis-
flokkinn til að hefja umræður um stefnubreytingu flokksins
í Evrópumálum. Nú hótar formaður Samfylkingarinnar
stjórnarslítum ef Sjálfstæðisflokkurinn samþykkir ekki
aðildarumsókn að ESB á landsfundi sjálfstæðismanana
í janúar n.k.
Svo virðist að forysta Sjálfstæðisflokksins sé að hröðu
undanhaldi í hverju stórmálinu á fætur öðru svo og ein-
stakir þingmenn hans til að geðjast samstarfsflokknum.
Þannig hafa Bjarni Benediktsson og Illugi Gunnarsson
kúvent í Evrópumálum bersýnilega til að þóknast Sam-
fylkinguni. Nú vilja þeir aðildarviðræður, sem hlýtur að
þýða að þeir styðji inngöngu Íslands í ESB. - Því Illugi
hefur manna mest fengið að kynnast kostum og göllum
ESB með heimsóknum til Brussel og viðtölum við helstu
ráðamanna þar. Kúvending hans kemur því mjög á
óvart að hann skuli nú opna á aðildarviðræður, svo ekki
sé meira sagt. - Því annað hvort eru menn heilir í sinni
andstöðu gagnvart ESB-aðild eða ekki.
Fróðlegt verður að fylgjast með hvernig sjálfstæðismenn
bregðast við hótun formanns Samfylkingarinnar, sem
virðist telja sig hafa mikið um stefnu Sjálfstæðisflokksins
að segja. Ekki síst í stórpólitískum hitamálum og aðild Ís-
lands að Evrópusambandinu.
Nú kemur í ljós hversu sjálfstæður Sjálfstæðisflokkurinn er
þegar á hólminn kemur!
Ríkisstjórnin verður að svara kalli um breytingar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
ISG er bara að hafa flokksmenn sýna góða, Davíð hefur eitthvað á hana svo þetta er bara innantóm hótun sanniði til
Guðrún gg (IP-tala skráð) 13.12.2008 kl. 13:16
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.