Jóhanna! Tími þinn er FARINN !


    Það voru skelfileg pólitísk mistök þegar Framsókn lofaði að
verja  kommúnistastjórn  Jóhönnu  Sigurðardóttir falli, í stað
þess að óska eftir utanþingsstjórn fram yfir kosningar. Enda
komið á daginn að ríkisstjórn Jóhönnu er andvana fædd. Jó-
hanna er ALGJÖRLEGA umboðslaus frá  þjóðinni. Sat auk þess 
í síðustu ríkisstjórn og  ber því 100%  ábyrgð á bankahruninu,
en flokkur hennar fór þar  með  LYKILHLUTVERK. Allir ráðherrar
fyrri ríkisstjórnar hafa því sýnt sóma sinn í því að hætta. Nema
Jóhanna og Össur. Pólitískt siðleysi þeirra er því ALGJÖRT! 
ALGJÖRT gagnvart okkur þjóðinni!

   Það er ALVEG MEÐ ÓLÍKINDUM að ráðherra úr fyrrverandi ríkis-
stjórn skuli nú fara fyrir nýrri ríkisstjórn eins og EKKERT SÉ. Jó-
hanna berst á hæl og hnakka að koma Davíð út úr Seðlabanka
til að bankinn endurvinni traust að hennar sögn. En hvað með
HANA SJÁLFA? Er það traustvekjandi að núverandi forsætisráð-
herra komi úr sömu ríkisstjórn og setti hér allt í steik? Hvað
ætli  umheimurinn seigi við því? Og það í boði Framsóknar og
Vinstri grænna!  Hvar  er hið pólitíska síðgæði komið eiginlega?

   Ríkisstjórn Jóhönnu á þegar í stað að segja af sér. Þó ekki
væri fyrir annað en að forða því að Jóhanna og hennar landsölu-
lið takist líka að stórveikja fullveldisákvæði stjórnarskrár ís-
lenzka lýðveldisins. Því ríkisstjórn Jóhönnu er ekki bara hand-
ónýt. Hún áformar líka að svifta þjóðinni fullveldi sínu með því 
að ganga í ESB eftir kosningar.

    Jóhanna ! Tími þinn er FARINN og liðinn! Og þótt fyrr hefði verið! 
mbl.is Lausn ekki fundin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sæll Guðmundur.

Mjög svo sammála þér eins og oft áður.

kv.Guðrún María.

Guðrún María Óskarsdóttir., 24.2.2009 kl. 01:19

2 identicon

Hvaða, hvaða hann er rétt að byrja, og vonandi ESB aðildarviðræður sem allra fyrst, ekki veitir af að koma einhverju, eftir 18 ára valdatíma og óstjórn Sjallanna.

Heiður (IP-tala skráð) 24.2.2009 kl. 01:58

3 identicon

Ef Jóhanna, sem var félagsmálaráðherra seinustu ríkisstjórnar, ber 100% ábyrgð á bankahruninu, hvað bera þá núverandi seðlabankastjórar mikla ábyrgð? 2000%? Ábyrgð er stórt orð en ég held að ekkert orð geti verið stærra en 100%. Nema þá að ábyrgð geti verið í fleirtölu og Davíð beri þá kannski 20 ábyrgðir á bankahruninu?

 Nú bara spyr ég....

Einar Óli (IP-tala skráð) 24.2.2009 kl. 03:05

4 identicon

Kommúnistastjórn Jóhönnu!  Hahahaha

Þú ert alveg makalaus Guðmundur!

Gústaf Gústafsson (IP-tala skráð) 24.2.2009 kl. 10:37

5 identicon

Mér finnst Guðmundur koma þarna með góð og sterk rök sem oftar.  Og rangt að yfirseðlabankastjóri skuli víkja fremur en fyrrv. ríksstjórn.  Líka hef ég oft sagt að allir í flokkum Alþingis hefðu átt að víkja ef hinir seðlabankastjórarnir tveir, hálærðir hagfræðingar, ættu að gera það.  Alþingi setti lögin í landinu.  Ekki seðlabankastjórarnir.  Ríkisstjórnin getur ekki hafa verið minna ábyrg en yfirseðlabankastjóri og yfirmaður fjármálaeftirlitsins.  Og Alþingismenn ekki minna ábyrgir en hinir seðlabankastjórarnir tveir.  Ef e-m finnst ég vera að vaða villu vegar mundi ég vilja heyra rökin gegn þessu.  Ég er ekki að segja að allir ofanveriðir hafi ekki átt að vikja, heldur skil ekki að Alþingi og fyrrv. ríkisstjórn séu neitt minna ábyrg fyrir falli bankanna og gegnisfallinu en ofanverðir embættismenn.

EE elle (IP-tala skráð) 25.2.2009 kl. 15:01

6 identicon

þ.e. gengisfallinu.

EE elle (IP-tala skráð) 25.2.2009 kl. 15:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband