Yfirklór Steingríms J
9.6.2009 | 10:51
Það er ömurlegt að horfa upp yfirklór fjármálaráðherra og leiðtoga
Vinstri-grænna við að reyna að halda því fram, að minnisblað frá því
í október um icesave hafi verið ígildi skuldbindandi samnings um
icesave-málið. Að ljúga slíku framan í þjóðina til að leiðrétta sinn
eiginn aumingjaskap og svik til að skrifa upp á þennan íslenzka
,,Versalasamning" er kattarþvottur af verstu tegund. Þarna var
um EKKERT samkomulag að ræða eins og Árni Matthiesen fyrrv.
fjármálaráðherra réttilega segir. ,,EINA SAMKOMULAGIÐ SEM
GERT HEFUR VERIÐ Í MÁLINU ER ÞAÐ SEM SKRIFAÐ HEFUR VERIÐ
UNDIR NÚNA" segir Árni.
Það er kominn tími til að Steingrímur J Sigfússon stigi fram og
biðji þjóðina afsökunar á framkomu sinni undanfarna vikur og
mánuði. Í hverju stórmálinu kúvendir hann í skoðunum að með
hreinum eindæmum er, sbr. í Evrópumálum og nú í icesave-málinu.
Alvarlegast er þó þegar hann lýgur visvitandi að þjóð og þingi.
Samfylgingin ber hins vegar HÖFUÐÁBYRGÐ á icesave-klúðrinu
frá upphafi til dagsins í dag. Bæði með algjöru aðgerðarleysi utan-
ríkisráðuneytisins og sofanahætti viðskuptaráðuneytisins, bæði
í aðdraganda bankahrunsins og eftir það. Notar svo Vinstri græna
til nú að fullkomna svínaríið.
Er að furða að reiði þjóðarinnar sé mikil? Og fari vaxandi!!!
Var undir forystu utanríkisráðuneytisins | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.