Sami icesave-flumbrugangurinn í ESB-umsókninni
15.9.2009 | 00:14
Svo virðist sem sami icesave-flumbrugangurinn ætli að verða
í ESB-umsókninni og í icesave-samningunum. Í kvöldfréttum
RÚV var sagt að ljós loguðu víða í ráðuneytum og stofnunum
um helgina, enda liggur fyrir stjórnsýslunni hið mikla verk að
svara 2500 spurningum ESB vegna aðildarumsóknar Íslands
að því. Sagt er að víða sé kurr í mönnum og segja viðmælend-
ur RÚV litla von að til þess að svörin verði vönduð eða ítarleg.
Fresturinn til að' svara er 16 nóv. en utanríkisráðuneytið vill
svörin STRAX Í ÞESSARI VIKU.
Allt þetta dregur dám af VÍTAVERÐRI AÐFÖR að þjóðar-
hagsmunum Íslands í boði hinnar and-þjóðlegu Samfylkingar.
Sem réttar væri að kalla póitískt útibú frá Brussel en flokk,
og ALLRA SÍST íslenzkan stjórnmálaflokk. Flokkinn sem ætl-
aði Alþingi að kokgleypa icesave-þjóðsvikasamninganna á
methraða gegnum þingið. - Og nú á að endurtaka sama þjóð-
svikaleikinn við ESB-umsóknina. Keyra hana á metraða gegn-
um stjórnkerfið. Því Samfylkingin varðar EKKERT um íslenzka
þjóðarhagsmuni. Það er löngum orðið ljóst. Þeim skal fórnað
á altari Brusselsvaldsins í í þess þágu.
Samfylkinginn er þjóðhættulegur þjóðsvikaflokkur sem ber
að úthýsa úr íslenzkum stjórnmálum! -
Og það fyrir fullt og allt !
www.zumann.blog.is
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 00:22 | Facebook
Athugasemdir
Sæll Guðmundur.
Skoðanaleysi Samfylkingar á þjóðmálum öllum frá stofnun flokksins er ekki tilviljun, því það hentaði í einstefnuáherslum flokksins varðandi Evrópusambandið. Það hefur nú heldur betur sýnt sig.
kv.Guðrún María.
Guðrún María Óskarsdóttir., 15.9.2009 kl. 00:40
Heill og sæll; Guðmundur Jónas - sem þið önnur, hér á síðu !
Láti Alþingi þennan ófögnuð yfir sig ganga; sem Ísþræla reikningana, sannar það enn betur, fyrri orð mín, um tilgangsleysi þessa bákns, við Austurvöll, í Reykjavík, gott fólk.
Með beztu kveðjum; sem jafnan /
Óskar Helgi Helgason
Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 15.9.2009 kl. 01:02
Heill og sæll, vinur. Ég tók eftir þessari sömu frétt í Rúv í dag og bloggaði um hana, þó ekki eins ýtarlega og þú. En í þessari grein gat ég þó líka um annað mjög alvarlegt mál, því að jafnvel þótt Össur sé í þessu máli sem og í Icesave-svikamálinu með stórlega álösunarverðan flumbrugang (þar sem jafnvel var efnt til til fljótræðis-afgreiðslu á þingi), þá er hitt ekki síður áhyggjuefni, þegar alvöru-valdamenn Evrópubandalagsins vilja troða Íslandi inn með "flýtimeðferð". Þeir vilja svo sannarlega koma okkur inn, komast yfir litla Ísland. Sú grein mín byrjar þannig:
Jean-Claude Juncker, forsætisráðherra Lúxemborgar, jafnframt fjármálaráðherra þar, sem fer fyrir hópi kollega sinna á evrusvæðinu, segist ekki aðeins styðja umsókn Íslands, heldur vill hann að EB-umsókn 33-menninganna á Alþingi (þeirra sem brjóta stjórnarskrána) fái flýtimeðferð ...Kær kveðja, samherjar.
Jón Valur Jensson, 15.9.2009 kl. 01:13
Kærar þakkir fyrir innleggin hér Guðrún, Óskar og Jón Valur.
Guðmundur Jónas Kristjánsson, 15.9.2009 kl. 14:05
Sæll Guðmundur. Hinum auma flokki ef flokk skyldi kalla ætti fyrir víst að úthýsa. Hið bilaða einræðisveldi Jóhönnu Evrópu Sig. sem lætur sig hag fólksins í landinu engu skipta.
ElleE (IP-tala skráð) 15.9.2009 kl. 18:51
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.