Undirbýr Jóhanna stríð gegn íslenzkri þjóð ?
30.9.2009 | 00:19
Það er alveg ljóst, að ef Jóhanna Sigurðardóttir sem á að
heita forsætisráðherra Íslands, fer gegn fyrirvörum Alþingis
í icesave-þjóðsvikasamningnum, mun hún hella olíu á eld
og tendra stórbál á Íslandi. Stjórnmálamaður, eins og
Jóhanna, sem gerð var afturreka með illræmdasta þjóð-
svikasamning vorra tíma, skuli nú voga sér að ætla að
fara fram með hótunum, í þágu erlendra kúgunarríkja,
gagnvart Alþingi og íslenzkri þjóð, mun verða knúin út
úr stjórnarráðinu. Því þjóðin mun einfaldlega RÍSA UPP!
Hverra hagsmuna er Jóhanna að þjóna? Klárlega ekki
íslenzkra! Enda hefur ENGINN stjórnmálamaður klofið
þjóðina jafn rækilega í herðar niður og Jóhanna Sigurð-
ardóttir. Einmitt þegar þjóðin hefur ALDREI haft meiri
þörf á sameiningu og samstöðu á að halda. Stórpóli-
tísku hitamálin, icesave-og ESB-umsókn sanna það!
Slíkur þjóðar-friðarspillir og Jóhanna Sigurðardóttir,
þarf að fjarlægja, og úthýsa úr íslenzkum stjórnmálum.
Fyrir fullt og allt!
Mannvonska Jóhönnu gagnvart Íslandi og þjóðinni
sem þar býr er ótrúlegur. Telur sig getað nauðgað upp
á þjóðina skuldaklafa hátt í þúsund milljaraða króna,
vegna glæpa útrásarmafíósa og fjárkúgunar erlendra
nýlenduvelda, án neinna raka né laga, er svo sjúkt,
bilað, og absúrt, að ekki fá orð lýst. Bara til að hennar
blautustu draumar um ESB-aðildar-alsælu nái fram að
ganga, með tilheyrandi endalokum fyrir ÍSLENZKA TIL-
VERU........
Vonandi að einhver komi vitinu fyrir Jóhönnu Sigurðar-
dóttir sem fyrst! Ef ekki, mætir hún sínum pólitísku ör-
lögum. Tími hennar hefur þá einfaldlega farið.Runið út!
ÁFRAM ÍSLAND. EKKER ESB! EKKERT ICESAVE NÉ AGS!
Burt með Jóhönnu Sig og hennar and-þjóðlega hafurtask!
www.zumann.blog.is
www.fullvalda.is
Þarf niðurstöðu fyrir helgi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 01:03 | Facebook
Athugasemdir
Verst að það er ekki víst að finnist neinn á þingi með bein í nefinu til að vinna þjóðinni heilt vegna eiginhagsmunapots og / eða heigulsháttar.
ÁFRAM ÍSLAND
NEI við ESB - NEI við Icesave - NEI við AGS
Styðjum Samtök Fullveldissinna
http://www.fullvalda.is
http://fullvalda.blog.is/blog/fullvalda/
Ísleifur Gíslason, 30.9.2009 kl. 01:39
Það er alveg ljóst, að Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra Íslands, leggur sig alla fram við að fylgja fyrirvörum Alþingis í icesave-samningnum, hún er mannasættir og vísust til að lægja öldur ófriðar og sundrungar í íslensku þjóðfélagi. Stjórnmálamaður, eins og Jóhanna, sem kom fram á sjónarsviðið sem einn farsælasti stjórnmálamaður vorra tíma, leggur nú allt kapp á að ná farsælum málalokum í þessu erfiða máli sem íhaldsstjórnin gamla ber ábyrgð á,
gagnvart Alþingi og íslenzkri þjóð. Jóhanna mun verða farsæll húsbóndi í stjórnarráðinu um langa framtíð. Því þjóðin mun einfaldlega RÍSA UPP HENNI TIL STUÐNINGS!
Hverra hagsmuna gætir Jóhanna? Klárlega ekki
íslenzks auðvalds og kvótabraskara! Enda hefur ENGINN stjórnmálamaður sameinað íslenskan almenning jafn vel og Jóhanna Sigurðardóttir. Einmitt þegar þjóðin hefur þurft á slíkri sameiningu og samstöðu að halda. Stórpólitísku hitamálin, icesave-og ESB-umsókn sanna það! Slíkan leiðtoga sem Jóhönnu Sigurðardóttur, þarf að hylla og sameinast um á þeim viðsjárverðu tímum sem vér nú lifum.
Umhyggja Jóhönnu gagnvart Íslandi og þjóðinni sem þar býr er ótrúleg. Hún ætlar að bjarga okkur frá hátt í þúsund milljaraða króna skuldaklafa sem misvitrir sjálfstæðismenn hafa lagt á herðar þjóðarinnar.
Óskandi er að draumur hennar um nýtt og betra Ísland í samfélagi þjóðanna nái fram að ganga, með bjartari framtíðarhorfum fyrir ÍSLENZKA TILVERU........
Vonandi er að sem flestir stjórnmálamenn íslenskir taki Jóhönnu Sigurðar-
dóttir sér til fyrirmyndar sem fyrst! Ef ekki, mæta þeir sínum pólitísku ör-
lögum. Tími þeirra er þá einfaldlega á enda runninn!
ÁFRAM ÍSLAND.
Lifi Jóhanna Sigurðardóttir og hennar framlag til farsældar íslensku þjóðarinnar!
Halldór (IP-tala skráð) 30.9.2009 kl. 01:50
Var það ekki Jóhanna og Sam-Spillingin sem var hrakin frá völdum ásamt Sjálfstæðisflokknum í 'búsáhaldabyltingunni' Var það ekki hin sama Jóhanna sem notfærði sér valdagræðgi skalla-Grímsa til að koma á þessari skatta og vaxtapíningastjórn. Voru það ekki þessi skötuhjú Jóka og Grímsi sem börðu grátandi þingmenn til hlýðni í ESB og Icesave málunum.
Sér er nú hver manngæskan.
ÁFRAM ÍSLAND
NEI við ESB - NEI við Icesave - NEI við AGS
Styðjum Samtök Fullveldissinna
http://www.fullvalda.is
http://fullvalda.blog.is/blog/fullvalda/
Ísleifur Gíslason, 30.9.2009 kl. 02:15
Æi og hvaða flokka viljið þið að taki við núna? Framsókn? Eru þið að halda þvi fram að þeir séu ekki spilltir? Hvernig er það t.d. með Finn Ingólfsson? Sjálfstæðisflokkurinn aftur? Eru þið að biðja um að hér verði sagan endurtekin frá því fyrir aldamót. Þegar persónuafslátturinn var frystur og skattar hækkaðir á fólkinu og lækkaðir á fyrirtækjum. Finnst ykkur að "Hreyfingin" sé svo samheldin og ábyggjilegur flokkur að þau getir stjórnað hér? Eða kannski Vg einir. Þeir vilja jú helst ekki fjárfestingu hingað frá útlöndum.
Magnús Helgi Björgvinsson, 30.9.2009 kl. 09:05
P.S Nokkuð ljóst að það er ekki mikið fylgi við svona fullveldisflokki sbr. fylgið sem var við L listann
Magnús Helgi Björgvinsson, 30.9.2009 kl. 09:06
Síðan væri gaman að Ísleifur skýrði fyrir fólki hvaða flokkur SAM - spillingarflokkur sé. Og ef hann er að tala um Samfylkingunna, væri gaman að hann tilgreindi hvaða spillingarmál umfram aðra flokka hann telur að réttlæti svona uppnefni á flokknum.
Magnús Helgi Björgvinsson, 30.9.2009 kl. 09:09
Já, Guðmundur, og það væri ekki í fyrsta sinn sem Jóhanna færi fram með hótunum og valdi, samkvæmt öðrum Alþingismönnum. Og almennum borgurum. Ísleifur er bara einn af fjölda fólks sem kallar flokkinn sam-spillinguna og þarf ekkert að útskýra það fyrir neinum.
ElleE (IP-tala skráð) 30.9.2009 kl. 09:28
Og það er alveg með ólíkindum að það skuli finnast fólk sem ver þessa drottnum gegn Alþingi og þjóðinni. Við erum að tala um hundruði milljarða sem við skuldum EKKI. Og bara af því IMF, Bretar og Hollendingar vilja nauðga skuld upp á okkur!?
ElleE (IP-tala skráð) 30.9.2009 kl. 09:35
Var ekki Gordon Brown að segja í ræðu og riti að skuldir einkabanka skulu ekki eiga að lenda á þegnunum. Er ekki mál að Jóhanna hætti þessum rasssleikjaleik við Breta og Hollendinga. Það er ENN ekki komnar FORMLEGAR athugasemdir frá þessum ríkjum varðandi Iceslave samningnum.
Jóhanna og ríkisstjórn er að tapa sér vegna ÓFORMLEGRA athugasemda frá Bretum og Hollendingum.
Eggert Guðmundsson, 30.9.2009 kl. 11:57
Mætum öll á Austurvöll á morgun kl 13:00 til að mótmæla fjárkúgunartilraunum ríkisstjórnarinnar í þágu Breta, Niðurlendinga og AGS.
ÁFRAM ÍSLAND
NEI við ESB - NEI við Icesave - NEI við AGS
Styðjum Samtök Fullveldissinna
http://www.fullvalda.is
http://fullvalda.blog.is/blog/fullvalda/
Ísleifur Gíslason, 30.9.2009 kl. 13:35
Takk fyrir félagi Ísleifur. Sömuleiðis Eggert og EllE. Magnús minn. Í
ljósi síðustu atburða er ALLT ALLT miklu betra en þessi Jóhanna og
útibú hennar frá Brsussel, Samfylkingin
Guðmundur Jónas Kristjánsson, 30.9.2009 kl. 21:32
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.