Seðlabankinn ritskoðar AGS
3.11.2009 | 00:16
Seðlabankinn ritskoðar nú Alþjóðagjaldeyrissjóðinn loks
þegar hann hyggst birta skýrslu sína um Ísland. Segir að
fara þurfi betur yfir tilteknar og afmarkaðar upplýsingar,
með tilliti til BIRGTINGAHÆFIS. AGS virðist þannig ekki bara
stjórnast af Bretum og Hollendingum lengur. Seðlabankinn
virðist vera kominn í þann hópinn líka, og getað stöðvað
birtingu skýslna frá honum, séu þær honum ekki þóknan-
legar.
Hvað er það í skýrslu AGS sem þolir ekki dagsljósið? Enn
dekkri skuldastaða ríkissjóðs en menn óraði fyrir? Ekki
síst þegar icesave-skuldasúpan bætist við? Og tímasetn-
ingin? Viðkvæm? Gæti haft óæskileg áhrif á afstöðu sumra
þingmanna í afgreiðslu icesaves-þjóðsvikanna?
Pukrið og leyndin gagnvart þjóðinni er gjörsamlega orðið
óþolandi. Spillinginn í bönkunum heldur áfram á fullu, enda
HEFUR ENGINN VERIÐ DREGINN TIL ÁBYRGÐAR komið á
annað ár eftir hrunið. Engu líkara en vinstristjórn Jóhönnu
Sigurðardóttir sé orðin beint framhald af útrásarmafíuósa-
spillingunni, enda hyggst láta saklausa þjóðina borga
skuldahalann og allt sukkið og svínaríið eftir sjálfa sukkara-
na.
Þar virðist hinn margumræddi hlífiskjöldur ríkisstjórnarinnar
100% virka! Jóhanna!!!!!!
ÁFRAM ÍSLAND! EKKI ESB! EKKERT ICESAVE NÉ AGS!
www.zumann.blog.is
Vildu skoða betur afmarkaðar upplýsingar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Heill og sæll; Guðmundur Jónas !
Rétt þykir mér; sem skylt, að koma því að, - þau Jóhanna og Steingrímur, eru beinar framlengingar, af hinum dröslurunum; Geir H. Haarde, og Ingibjörgu S. Gísladóttur, svo til haga sé haldið.
Þannig; að glórulaust er að ætla, að reyna að skilja að, hugmyndafræði þessa hyskis - hvar; hún er hin sama, sem hún var, fyrir 1 . Febrúar, síðast liðinn.
Með beztu kveðjum; sem áður og fyrri, úr Árnesþingi /
Óskar Helgi Helgason
Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 3.11.2009 kl. 00:31
Takk Óskar!
Guðmundur Jónas Kristjánsson, 3.11.2009 kl. 21:21
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.