Má ESB hafa tvö sendiráð á Íslandi ?


    Algild er sú regla í alþjóðlegum samskiptum að ekkert ríki
hafi fleiri sendiráð en eitt í viðkomandi þjóðríki. En eins og
kunnugt er hefur Evrópusambandið tilkynnt  um að það ætli
að setja upp  sendiráð  á Íslandi strax  á  næsta  ári.  Ekki
að furða  þótt margir spyrji  sig  hvort  það ætli þá að hafa 
tvö sendiráð á Íslandi? Og hvort það sé löglegt? Því fjöl-
margir hafa nefnilega litið á  Evrópusamtökin svokölluðu
á Íslandi sem einskonar sendiráð fyrir ESB. Því þau hafa
til þessa Í RAUN þjónað  og  starfað  sem  sendiráð ESB
á Íslandi. Hafa  verið meiriháttar pólitíst útibú frá ESB í 
mörg  ár, og kostuð af Brussel  meir og minna.
 
   Eða hver yrði  þá munurinn  á  þessum  tveim pólitisku
hagsmunagæsluaðilum ESB á Íslandi? Yrði ekki eðlilegast
að bæði fyrirbærin  yrði þá bara súmmuð upp í eitt allsherjar
hagsmunagæslusendiráð ESB á Íslandi?

   Þó ekki væri nema til að uppfylla algildisregluna um eitt
sendiráð í viðkomandi ríki ?

   ÁFRAM ÍSLAND! EKKI ESB NÉ SCHENGEN! EKKERT ICESAVE
NÉ AGS!

  www.fullvalda.is

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Ha! Guðmundur þú ert að grínast! Evrópusamtökin eru félagskapur fólks sem vil sækja um aðild að ESB. Þér getur ekki verið alvara með þessari færslu! Annars ert þú að misskilja alvarlega hvað sendiráð eru!

Og eins þá er nú ekki rétt hjá þér að ESB sé að stofna sendiráð hér því ESB er ekki með sendiráð í neinu ríki. 

ESB var að opna sendiskrifstofu sem er nú eðlilegt þegar verið er að vinna að svo umsvifamiklum samningi eins og ESB samningurinn er. AGS er líka með svona skrifstofu hér.

Þetta er svona sama og að Heimsýn sé útibú frá LÍÚ og Bændasamtökunum og standi vörð um að þessi félög haldi sínum sérhagsmunum.

Þú verður bara að sætta þig við það að hér hefur fólk leyfi til að hafa sína skoðun. 

Magnús Helgi Björgvinsson, 24.11.2009 kl. 01:51

2 identicon

Heill og sæll; Guðmundur Jónas - sem og, þið aðrir, hér á síðu !

Magnús Helgi !

Kann; að styttast í, að slökkt verði á ykkur, skrifræðis Nazistum Fjórða ríkisins - hér heima; og erlendis, fyrr en varir, Kópavogs búi góður.

Sem betur fer; er þorri fólks farinn að átta sig á, hversu Þýzk-Frakkneska skrímslið (ESB), er háskalegt, öllum skemmtileg heitum, sem enn er að finna, hér í veröldinni - þrátt fyrir allt.

Með hægum; en öruggum hætti, er Austur- Asía að styrkjast - sem betur fer, til vitundar um verðskuldaðan mátt sinn, og megin, og kemur til með að kremja helvízk nýlenduveldin Evrópsku, hægt og bítandi, innan ekki langs tíma, enda, .......... tími kominn til, að slökkva á gerfi lýðræðinu vestræna, svo sem.

Magnús minn !

Ég veit; að Guðmundur vinur okkar beggja, kann að vera ósammála þessu sjónarmiði mínu, hvar; hjá fáum mönnum, sem honum, er að finna eins ríkulega lýðræðis hvöt - meðfram hans þjóðlega metnaði, eins og við vitum báðir, reyndar.

Ég er aðeins; að vísa til þess ískalda veruleika, að iðni og þolgæði gula mannsins, árþúsundin um kring, er að veita honum þá uppskeru, sem honum ber - með fullri virðingu, svo sem, fyrir öðrum kynstofnum.

Með beztu kveðjum; sem jafnan, úr Árnesþingi /

Óskar Helgi Helgason 

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 24.11.2009 kl. 02:08

3 Smámynd: Júlíus Björnsson

Bændasamtökunum og standi vörð um að þessi félög haldi sínum sérhagsmunum.

Málið er Að meðaltali þeirra sem vinna við sjávarútveg og landbúnað í EU er um 5,6%, 2,9% í Þýskalandi. Hér er þetta um 3%. Smá atriði.

EU er bandalag um samkeppni fullvinnslu  á innrimörkuðum EU og til útflutnings frá EU. Sem verndar sína yfirstéttir með hefðbundnum tungumálalandmærum milli sjálfsábyrgra efnahagslögsaga, milli héraða[regions] þeirra og ekki síðast en síst milli yfirstéttar og allra hinna sem EU sinnar tilheyra undantekningarlaust sem ég get vottað eftir að hlustað á skilning þeirra á málum meginlandsbúa. 

Mér væri alveg sama þótt EU ræki hér 100 skrifstofur á sinni eigin kostnað ef þ´r eru ekki að skipta sér af innanríkismálum Íslendinga.

Heimsýnar meðlimir flestir  myndu sóma sér betur í Evrópsku Sameiningunni ef Ísland ætti séns í samkeppninni sem EU stendur fyrir.

Ég myndi byrja að flytja inn pólska EU kjúklinga strax og leifa Íslendingu að smakka.

Engin efnahaglögsaga hefur innlimast nema vegna þess að annað stóð ekki til boða til tryggja sínum almenning ekki mikið verri lífskjör utan EU. 

EU er alls ekki USA. EU byggir á sömu menningararfleið og Rússar [yfirstéttin] t.d.

EU er bandalag um innflutning hráefna, 1.stigs vinnslu þeirra og orku til viðbótar sinni eigin umfram sérhverra sjálfsábyrgrar efnahagslögsögu til hefðbundinnar kvótaskiptingar í þágu fullvinnslu. Viðfangsefnið er tryggja þennan samkeppni grunn á hægstæðri verðum en gengur og gerist t.d. í Kína eða USA.

Aðalatriði yfirstéttarinnar eru ekki  að vinna skítverkin í grunninum.

Grunnur er nauðsynleg forsenda til að skapa hámarks virðisauka. Engin furða þótt hún fúlsi ekki við Íslandi í það grunnsafn.  

Júlíus Björnsson, 24.11.2009 kl. 02:50

4 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Nei Manús. er ekki að grínas.  Evrópusamtökin yrðu þá bara ein deild
innan sendiráðsins. Enginn munur þar á.  Takk Óskar og Júlíus.

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 25.11.2009 kl. 21:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband