Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2014
Tímaskekkjuflokkur heldur flokksráðsfund !
8.2.2014 | 00:21
Vinstri grænir eru tímaskekkjuflokkur! Ekki bara fyrir
sín löngu úreltu kommúnistaviðhorf og sósíalískan bak-
grunn, byggðu á sömu öfgakenndri alþjóðahyggjunni og
félagar þeirra sósíaldemókratarnir. Heldur er öll þeirra
viðhorf og gildi stór brengluð við íslenzkan veruleika, eins
og títt er um alla vinstrimennsku!
Albest fékk þjóðin að kynnast hinni óþjóðhollu stefnu VG
er þeim tókst að mynda hina einu sönnu vinstristjórn með
félögum sínum sósíaldemókrötunum. Að hætti kommúnista
og sósíalista er þá öllu nefnilega fórnandi til valdasetu, ekki
síst mikilvægum þjóðarhagsmunum, ef svo ber undir.
Besta dæmið var ESB-umsóknin. Ein alvarlegasta atlaga að
fullveldi og sjálfstæði Íslands á lýðveldistímanum. Allt í boði
Vinstri grænna!
Alvarlegasta árás á efnahagslegt sjálfstæði og lífskjör þjóð-
arinnar frá upphafi voru svo hinir illræmdu Icesave-samningar.
Líka allt í boði Vinstri grænna. En fyrir inngrip forseta og þjóðar
tókst að afstýra þeim hrikalegu móðuharðindum sem með þeim
vofðu yfir.
Og allt ber að sama brunni! Svikabrunni gagnvart þjóðinni
og hagsmunum hennar. Skjaldborg um bankamafíuna og
hina illræmdu hrægamma vogunarsjóða, sem nú er að skýrast
með hverjum deginum, hlýtur að kalla á rannsókn, ásamt Ice-
svikunum! Svikin gagnvart þjóðinni eru nefnilega orðin ótrúleg
mörg í boði Vinstri grænna!
Og nú er haldinn flokksráðsfundur! Án þess að neinn skammist
sín og biðji þjóðinni afsökunar. Hin sósíalíska forherðing er algjör!
Sósíalistanna sem mistókust að gera ríkið gjaldþrota og þjóðina
öreiga! MEÐVITAÐ!
Já endilega flaggið rauðum fánum og syngið internasjónalinn!
Móti Brusselstjörnunum ykkar og sósíaldemókrötunum!
![]() |
„Í hópi ójafnaðarmanna“ |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
RÚV í bullandi stjórnarandstöðu sem aldrei fyrr!
7.2.2014 | 00:33
Svo virðist sem RÚV hafi tvíeflst í stjórnarandstöðunni eftir
að að ný stjórn yfir stofnuninni var kosinn. Þvert á væntingar!
Augljóslega ætla hin sósíaldemókrataísku öfl sem ráðið hafa
fréttastofunni mörg undanfarin ár að tjalda öllu til að koma
ESB-Icesave ríkisstjórn sinni til valda á ný!
Síðast í kvöldfréttum RÚV var einhver þýskur ,,sérfræðingur"
látin masa því að íslenskt kjöt gæti verið hættulegt ESB-búum.
Og þá væntanlega Íslendingum líka! Bersýnlega til að sýna kosti
þess að ganga í ESB og galopna Ísland fyrir hráu kjöti og lifandi
búpeningi frá Evrópsambandsríkjum.
Þá virðist fréttastofa RÚV vænta mikilla verkfalla og upplausnar
á vinnumarkaði næstu misseri. Og augljóslega kyndir undir öllu
slíku! Allt til að koma núverandi ríkisstjórn frá! Svo ESB-ferli
RÚV geti örugglega haldið áfram á ný!
Móðursýkisáróður RÚV gegn ólympíuleikunum í Rússlandi er svo
kapítuli út af fyrir sig. Þar sem m.a för íslenskra ráðamanna á þá er
gerð tortryggileg, þar sem íslensk stjórnvöld hafa réttilega valið að
blanda ekki saman ólympíuleikjum og pólitík. Og allra síst hinni
sósíaldemókrataísku öfgapólitík fréttastofu RÚV!
Já ný stjórn RÚV hefur tekið við . Samt allt enn við sama
sósíaldemókrataíska heygarðshornið! Á fréttastofu RÚV!
Ömurlegt!
Oddviti Sjálfstæðisflokksins er sósíaldemókrati !
6.2.2014 | 00:19
Þá vitum við það! Hinn sósíaldemókrataíski armur
Sjálfstæðisflokksins hefur endanlega yfirtekið borgar-
stjórnarflokk Sjálfstæðisflokksins. ,,Á beinni línu" hjá
málgagni sósíaldemókrata og ESB-sinna, DV, segist
oddviti Sjálfstæðisflokksins, Halldór Halldórsson, vera
ESB sinni. Vilji klára aðildarferlið að ESB, sem þýðir á
mannamáli einlægur ESB-sinni.
Þá vekur það sérstaka gleði sósíaldemókratana á DV
að oddvitinn skuli lýsa yfir eindregnum stuðningi við
byggingu mosku öfga-íslamista á einum besta stað í
borginni. Meðan t.d Rússnesku Rétttrúnaðarkirkjunni
er nánast úthýst. En þá vísar oddvitinn til hinnar ,,frjáls-
lyndu stefnu" Sjálfsæðisflokksins eins hjákátlegt það
er EINMITT í þessu sambandi.
Hlutskipti Sjálfstæðisflokksins í höfuðborg Íslands er
ömurlegt! Hvernig hann hefur gjörsamlega orðið sósíal-
demókrataismanum að bráð er sorglegt! Enda fylgið
eftir því og úrslít komandi kosninga í borginni skipta
því engu máli. Sósíaldemókratanir virðast hafa þetta
allt í hendi sér!
Já dapurlegt! Sorglegt!
Nema eitthvað afgerandi komi til! Frá hægri!
Veruleikafirrtir ritstjórar í Evrópumálum !
5.2.2014 | 00:21
Það er alveg með óllíkindum hvernig þráhyggja og ofsatrú
geta firrt menn raunveruleikanum! Gott dæmi voru ritstjórnar-
greinar DV og Fréttablaðsins í gær. En þar froðufelldu báðir
ritstjórarnir af mikilli heift um hvers vegna þjóðin fengi ekki
að kjósa um áframhald aðlögunar að ESB. Stór svikabrigsl
voru notuð út og suður, en ritstjóri DV var eins og venjulega
í meiriháttar ójafnvægi.
Þessi firring er aumkunarverð. Og ekki bara það! Þessir
ofsa-sósíaldemókrataísku ESB-trúboðar halda þeir geti enda-
laust logið að þjóðinni með endalausum blekkingum um þessi
Evrópumál! Á þeirra fjölmiðlum.
Stærsta blekking þeirra er að reyna að koma því á framfæri
að um eitthvað sé um að semja við inngöngu Íslands að ESB.
Þegar margsinnis hefur komið fram, ekki síst hjá sjálfu ESB,
að um ekkert sé um að semja. Aðeins AÐLÖGUNARFERLIÐ!
Því ESB-er pakkinn! Rómarsáttmálinn er pakkinn! Lissabon-
sáttmálinn er pakkinn! Auk viðaukanna við þá. EKKERT umfram
það er pakkinn! Þess vegna á að atfurkalla ESB-umsóknina
STRAX!
Hlálegast er hins vegar það þegar þessir helstu málsverjar
OFSA-ESB-trúboðsins á Íslandi krefja ríkisstjórn sem andvíg
er inngöngu Íslands að ESB um þjóðaratkvæðagreiðslu um
áframhaldandi viðræður við ESB um aðlögun og ESB-aðild!
Hvernig í veröldinni geta þessir OFSA-ESB-trúboðar útskýrt
hvernig ríkisstjórn með meirihluta Alþingis getið verið í aðildar-
viðræðum við aðila sem hún vill ALLS EKKI aðlagst og gerast
hluti að? Hvernig getur einhver samið um inngöngu í eitthvað
sem viðkomandi er ALFARIÐ Á MÓTI? Veruleikafirring þessara
ESB-trúboða á DV og Fréttablaðinu í þessu ER ALGJÖR!
AUMKUNARVERÐ!
Og eins og oftar toppar hinn ESB-og Icesave-sinnaði ritstjóri
DV skrif sín með sögufölsun. Segir að ,,þegar Icesave-deilan stóð
sem hæst mæltu hin andlýðræðislegu öfl eindregið fyrir því að
að þjóðin fengi að kveða upp sinn úrskurð. Stjórnvöld Á ÞEIM
TÍMA HÖFÐU VIT OG ÞROSKA TIL AÐ RÉTTA ÞJÓÐINNI ÞETTA
SJÁLFSAGÐA VALD OG FORRÆÐI Í SÍNUM MÁLUM"!
HALLÓ Icesav-sinninn Reynir Trausta! Búinn að gleyma að það
var forsetinn og þjóðin sem tóku þetta vald af þáverandi stjórn-
völdum? Og létu þjóðina kjósa. Í þjóðaratkvæðagreiðslu sem
EINMITT ÞÁVERANDI STjÓRNVÖLD sniðgengu og tóku ekki þátt
í! Þannig víla þessir ESB-ofsa-trúboðar ekki fyrir sér að bera fram
AUGLJÓSRAR LYGABLEKKINGAR í málsvörn sinni. Beita algjörri
SÖGUFÖLSUN þegar þeim hentar.
Ritstjóri DV kallar núverandi stjórnvöld loddara! Ætti frekar að
horfa í eigin barm og skoða sinn eigin loddara!
![]() |
Rannsaki spillingu hjá ESB líka |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |