Bloggfærslur mánaðarins, mars 2014
Yfirgefa sósíaldemókratar Sjálfstæðisflokkinn ? Varla!
30.3.2014 | 00:07
Hinn ESB-sinnaði 365 fjölmiðill heldur varla vatni yfir
því að til standi að stofna nýjan hægriflokk sem vilji klára
viðræður við ESB með það að markmiði að Ísland gangi í
ESB. Sagt er að óánægðir sjálfstæðismenn standi fyrir
því og þess vegna verði flokkurinn hægra megin við miðju!
Hér eru hlutir gjörsamlega settir á haus, einkum til að
blekkja borgarasinnað þjóðholt fólk. Því ætíð hefur verið
til hávær og áhrifaríkur sósíaldemókrataískur armur í
Sjálfstæðisflokknum. Sem ætið hefur barist með hæl og
hnakka fyrir aðild að ESB, og góðu samstarfi við sósíal-
demókrata í öðrum flokkum, sbr. hrunstjórn Sjálfstæðis-
flokks og Samfylkingar.
Frétt 365 er því í raun um að hinn sósíaldemókrataíski
armur Sjálfstæðisflokksins hugsi nú til framboðs. Fréttin
er því ALRÖNG! Því ENGINN SANNUR HÆGRIFLOKKUR
aðhyllist eða getur stutt OFUR-MIÐSTÝRINGUNA í Brussel
og YFIRÞJÓÐLEGT VALD þess að Sovéskri fyrirmynd!!!
Þvert á grundvallarhugmyndir hægrimanna um frelsi
einstaklinga og þjóða! Enda eru það einmitt SANNIR
HÆGRI- og ÍHALDSFLOKKAR sem berjast mest gegn
Brussvaldinu innan ESB-í dag. Tilviljun?
Fréttir 365 um stofnun hægriflokks til inngöngu í ESB er
því grátbrosleg. Og enn grátbroslegra verður ef einn annar
ESB-sinnaður sósíaldemókrataískur flokkur bætist við öll
hin framboð sósíaldemókrata í dag! En ábyggilega jákvætt
fyrir Sjálfstæðisflokkinn verði hann fyrir slíkri hundahreinsun!
Sem frekar eru litlar líkur á sbr framboðslisti hans í Reykja-
vík, þar sem ESB-sinnaður sósíaldemókrati leikur lykilhlut-
verk með tilsvarandi fylgishruni fyrir flokkinn.......
Uppgangur öfgahópa áhyggjuefni !
16.3.2014 | 00:12
Uppgangur öfgahópa er áhyggjuefni. Ekki síst hinna
öfgasinnuðu sósíaldemókrata sem formaður Samfylk-
ingarinnar berskjaldaði sig svo vel af á flokksráðsfundi
SF í gær.
Hinir öfgasinnuðu sósíaldemókratar ógna nú fullveldi og
þjóðfrelsi Íslendinga með sinni öfga-alþjóðahyggju í því
að koma Íslandi undir erlend yfirráð. ÖLLU er fórnandi,
jafnvel þjóðargjaldþroti sbr. Icesave. Allt til að koma
Íslandi, þjóðinni, fullveldinu og auðlindunum undir yfir-
þjóðlegt vald í Brussel.
Já það er verulegt áhyggjuefni af uppgangi hérlendra
öfgahópa undir forystu sósíaldemókrata.
Jafnvel Austurvöllur er nú lagður undir af þessum öfga-
öflum, til að koma í veg fyrir meirihlutavilja Alþingis,
sem er meiriháttar tilræði við þingræðið og lýðræðið á
Íslandi!
Eins gott að allir fullveldissinnar, þjóðfrelsissinnar,
þingræðis- og lýðræðissinnar standi vaktina og kveði
niður öfgahópa sósíaldemókrata Árna Páls í dag!
Með illu skal illt út reka!
Baráttan snýst um þjóðarhag | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Hrindum árásum ESB-sinna á þingræðið!
11.3.2014 | 00:17
Nú er nóg komið! Útsendarar Brusselvaldsins á Íslandi
sem hafa haft íslenska þjóð í gíslingu svo árum saman,
gera nú alvarlega og ótrúlega árás á sjálft þingræðið á
Íslandi. Þegar nýr þingmeirihluti og nýkjörin ríkisstjórn
með afgerandi meirihluta þjóðar og þings hyggst aftur-
kalla hina illræmdu ESB umsókn frá 2010 SEM ÞJÓÐIN
FÉKK ALDREI AÐ KJÓSA UM EÐA SEGJA SKOÐUN SÍNA
Á, ætlar þá mikill minnihluti þings að koma í veg fyrir það!
MEÐ HREINUM OFBELDISVERKUM OG VALDNÍÐSLU!
Hvernig í ósköpunum getur það gerst í lýðræðisríki að
afgerandi minnihluti þingmanna geti komið í veg fyrir að
eitt stærsta og heitasta deilumál frá lýðveldisstofnun
fái þinglega meðferð og afgreiðslu? Í lýðræðislegu- og
þingræðislegu ríki ræður ætíð meirihlutinn! EKKI SÍST
Í MESTU HITAMÁLUM SEM ALDREI GETUR ORÐIÐ SÁTT
UM! Eins og aðild Íslands að Evrópusambandinu!
Það verður með ENGU MÓTI ÞOLAÐ að minnihluti ESB-
sinna geti haldið illafengnu aðildarferli Íslands að ESB
áfram. Gegn afgerandi meirihluta Alþings og ríkisstjórnar.
Ekki síst í ljósi þess að um þetta stórpólitíska hitamál mun
ALDREI nást sátt! Hvorki innan eða utan þings!
ÞJÓÐIN HEFUR KOSIÐ! HÚN KAUS NÝJAN ÞINGMEIRI-
HLUTA S.L VOR! SÁ AFGERANDI MEIRIHLUTI HEFUR ÞVÍ
NÝTT OG FULLT OG ÓSKORAÐ UMBOÐ! ÞAR MEÐ AÐ
AFTURKALLA HINA ILLRÆMDU ESB-UMSÓKN!
Ofbeldi og yfirgangi ESB-sinna gegn afturköllun ESB-
umsóknarinnar er gróft og grafalvarlegt tilræði við þing-
ræðið og lýðræðið á Íslandi. Við slíkan ofbeldislýð er ekki
hægt að semja! Slíkt ofbeldi er hreinlega brot á stjórnar-
skrá Íslands! Við pólitíska hryðjuverkamenn eins og ESB-
sinna er ekki hægt og má ekki undir neinum kringumstæðum
semja í þessari stöðu!
STRÍÐIÐ UM FULLVALDA OG FRJÁLST ÍSLAND ER HAFIÐ!
VERJUM FULLVELDI ÍSLANDS HVAÐ SEM ÞAÐ KOSTAR!
Engin niðurstaða af fundi formanna | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
ESB-sinnar hunsa undirskriftir 70.000 manna !
9.3.2014 | 21:44
Á sama tíma og ESB-sinnar væna ríkisstjórnina um
geðþóttaákvörðun, pólitískt ofbeldi og ólýðræðisleg
vinnubrögð varðandi afturköllun á ESB-umsókninni,
gerast þeir berir af meiriháttar pólitísku ofbeldi í
garð 70.000 áskorenda. En sem kunnugt er skrifuðu
um 70.000 mans undir áskorun til borgaryfirvalda
að flugvöllurinn í Vatnsmýrinni yrði þar áfram.
Þrátt fyrir að ríki og borg urðu sammála um að
setja málið á ís meðan hlutlaus fagnefnd færi yfir
málið, hafa borgaryfirvöld nú rofið þá sátt og gefið
grænt ljós á lokun mikilvægar flugbrautar.
Svo vill til að meirihluti borgarstjórnar sem hér
hunsar algjörlega undirskriftir 70.000 manna og
þverbrýtur samkomulag ríkis og borgar, er EINMITT
allt fólk úr Samfylkingu og Bjartri framtíð. ALLT YFIR-
LÝST ESB-sinnar.........
Enn og aftur sýnir þetta ESB-sinnaða lið að það er
tilbúið til hvaða valdbeitinga sem er til að koma
sínum áformum fram. Undirskriftir yfir 70.000
manna er hent á Sorpuhaug. Á sama tíma og það
æpir og hrópar svikin loforð og ofbeldi gagnvart
ríkisstjórn og meirihluta Alþingis og þjóðar SEM
VILL EKKI AÐILD ÍSLANDS AÐ ESB! OG VILL ÞVÍ
ESB UMSÓKNINA BURT SEM ÞJÓÐIN VAR ALDREI
SPURÐ UM!!! - EN VAR ÞRÖNGVAÐ MEÐ OFBELDI
OG GEÐRÆÐISLEGUM HÆTTI GEGNUM ALÞINGI!
Það er löngu tími til að við ESB-andstæðingar mætum
nú þessum útsendurum frá Brussel af mikilli hörku!
Látum þennan hávaðasama minnihlutahóp hætta að
hafa íslenska þjóð í gíslingu svo árum saman. Styðjum
ríkisstjórnina við að afturkalla umsóknarsvikin frá
2010. Og HUNSUM undirskriftasöfnum ESB-sinna
eins og þeir hunsa undirskrifasöfnununa með flugvöllinn!
Jöfnum leikinn!
ÁFRAM FULLVALDA OG FRJÁLST ÍSLAND!
HVAÐ SEM ÞAÐ KOSTAR!
Er ,,ískalda mat" Bjarna að endurtaka sig?
9.3.2014 | 00:15
Því verður ALLS EKKI trúað að formaður Sjálfstæðisflokksins
ætli á ögurstundu að lúffa fyrir smá en háværum hópi ESB-
sinnaðra sósíaldemókrata innan flokksins í Evrópumálum. En
í kvöldfréttum Stöðvar 2 kom fram að Bjarni hefði sett rifu á
ESB dyrnar, eins smekklega og hinn ESB-sinnaði fréttamaður
setur fréttina upp á Vísir.is.
Þetta vekur óneitanlega upp ugg og hugur manns leitar til þess
er Bjarni fór þvert gegn flokkssamþykktum landsfundar í Icesave
2 og lagð til samþykki hans, eftir hið fræga ,,ískalda mat"sitt.
Sem olli meiriháttar deilum í flokknum. - Spurningin er því sú
hvort hið ,,ískalda mat" Bjarna í Icesave sé nú að endurtaka sig
í afturköllun ESB-umsóknarinnar? Með enn afdrifaríkum afleið-
ingum fyrir flokkinn og þjóðina. Og ekki síst fyrir Bjarna sjálfan,
sem hefur átt í vök að verjast í svikabrigslum í Evrópumálum.
Eitt er víst. Verður meirihluti þjóðarinnar svikin í ESB-málum
verður fjandinn fyrst laus! Verður minnihlutahópi ESB-sinna
enn leyft að halda þjóðinni í gíslingu verður STRÍÐ!!!!!!!!!
ÁFRAM FRJÁLST OG FULLVALDA ÍSLAND! HVAÐ SEM ÞAÐ KOSTAR!
Afstýrum valdaofbeldi og lýðræðiskúgun ESB-sinna!
8.3.2014 | 00:18
ESB er eitt ólýðræðasta fyrirbærið nútímans eftir fall
Sovétríkjanna. Almenningur hefur þar ENGIN völd og
markvíst er unnið að því að gera ríki þess algjörlega áhrifa-
laus. Ofurmiðstýringin í Brussel yfir allt og öllum er það
sem koma skal ásamt tilheyrandi spillingu, upplausn,
fátækt og óstöðuleika.
Umsókn Íslands að ESB var því eins ólýðræðisleg og
hugsast gat Enda framkvæmd af hinum ólýðræðislegu ESB-
sinnum. Þjóðin var aldrei spurð heldur umsókninni þröngvað
gegnum Alþingi með pólitísku ofbeldi, kúgun og blekkingum.
Það er því í samræmi við ofbeldishneigð ESB-sinna og and-
lýðræðisleg vinnubrögð að ætla nú að gera allt til að koma í
veg fyrir afturköllun á hinni ólýðræðislegi ESB-umsókn. Þótt
mikill meirihluti þjóðar, Alþings og öll ríkisstjórnin sé á móti
ESB-aðild.
Ótrúlegri heift og herferð er nú beitt og heilu fjölmiðlanir og
samtök yfirtekin af hinu öfgafulla ESB-trúboði í baráttunni fyrir
innlimun Íslands í hið nýja Sovét. Öllu sal nú fórnað !
Lýðskrumið er algjört! Eins og undirskriftasöfnun ESB-sinna!
Því í fyrradag henti meirihluti borgarstjórnar skipaður af yfir-
lýstum ESB-sinnum undirskriftasöfnun 70 þúsund borgarbúa
fyrir áframhaldandi flugvelli í Vatnsmýrinni á SORPUHAUG!
Á sama tíma og þeir ætlast til að undirskrift þeirra verði tekin
alvarlega. NEI TAKK!
Hér með eru ALLIR ÞJÓÐFRELSIS-OG FULLVELDISSINNAR
hvattir til að afstýra valdaofbeldi og lýðræðiskúgun ESB sinna
með öllum tiltækum ráðum! Réttkjörið Alþingi og ríkisstjórn
sem andvígt er aðild Íslands að ESB ber heilög skylda til
að afturkalla ESB-umsóknina TAFARLAUST!
Ekki bara fullveldi Íslands, heldur lýðræðinu og þingræðinu
er nú ógnað af útsendurum ERLENDRA AFLA. Við því verður nú að
bregðast AF HÖRKU! Stríðshanskanum hafa ESB-sinnar kastað!!
Það stríð skulu þeir fá! Því ENGIN SÁTT er um fullveldisframsal
Íslands, og allra síst innganga þess inn í gjörspillt fallandi
yfirþjóðlegt valdahrokasambandið í Brussel...............
ÁFRAM FRJÁLST OG FULLVALDA ÍSLAND!!!!!!!
Málið á sama stað og í upphafi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Rússar hafa sína málsvörn líka !
4.3.2014 | 00:19
Held að við Íslendingar og sérstaklega íslensk stjórnvöld
skulu fara sér hægt og vera hófstillt gagnvart atburðunum á
Krímarskaga og Úkraínu. Þvert á það sem t.d Árni Páll
Árnason úr ESB-trúboðinu á Íslandi vill. Því hann vill allt
til gera að spilla fyrir góðum samskiptum og vináttu Ís-
lendinga við stórþjóðir utan ESB eins og Rússa.
Þetta mál er nefnilega mjög stórt og flókið. Og gerir málið
enn flóknara sé málið skoðað með gömlu kalda-stríðs-
gleraugunum.
Evrópa gjörbreyttist eftir fall Berlínarmúrsins og Sovét-
ríkjanna. Samt er Rússland enn í huga margra vesturlanda-
búa með Sovét-hjúpinn enn yfir sér. Sem er alrangt. Rússland
er þvert á móti komið undralangt í lýðræðis-og markaðsvæð-
ingu og öðrum framförum eftir áratuga kúgun kommúnista.
Hin kristna Rétttrúnaðarkirkja blómstrar sem aldrei fyrr, og
í Rússlandi stjórna nú borgaraleg öfl.
Rússar hafa ætíð sýnt Íslendingum vináttu og virðingu! Voru
með þeim fyrstu að viðurkenna íslenska lýðveldið 1944.
Studdu okkur í öllum þorskastríðunum. Þess vega eigum við
að sýna Rússum skilning varðandi Krímarskagann í dag!
Krímarskaginn er rússneskt land í augum Rússa. Sem var
afhentur Úkraínu 1954 með bolabrögðum af þáverandi
Sovétleiðtoga, Níkíta Khrússtsovs. EN HANN VAR EINMITT
SJÁLFUR ÚKRAÍNUMAÐUR ÞA! Hin kommúníska valdníðslan
ALGJÖR!
Kommúnistar og aðrir vinstriróttæklingar hafa aldrei
virt þjóðfrelsi og landamæri. Arftaki Sovétríkjanna, ESB,
gerir það ekki heldur! Með látlausum afskiptum ESB af
úkraínskum innanríkismálum með innlimun þess í huga
var tendrað bál. Sem nú sér ekki fyrir endann á!
Ísland er enn frjáls og fullvalda ríki. Og á sem slíkt að
halda uppi sjálfstæðri utanríkisstefnu.
Sýnum það í verki og viðurkennum að Rússar, vinaþjóð
okkar, hafa sína málsvörn líka!
Hafa ekki sett hernum afarkosti | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |