Vinstriöfgasinnar ráðast á Hægri græna
29.8.2015 | 14:31
,,Ó þið þarna vesalings forréttindapungar
og píkur" , þannig hefst ,,málefnaleg" og
árás Heiðu B Heiðars, á Stundinni.is á þá
sem voga sér að taka ekki undir viltustu
viðhorf og drauma öfga-vinstrisinna í mál-
efnum hælisleitenda í heiminum í dag.
Í þessari soraskrifum Heiðu er sérstaklega
ráðist á formann okkar Hægri græna , og sagt
,,í einni rasista-ógeðsgrúbbunni á facebook
er heimtað að við segjum okkur frá Schengen
og þar fer fremstur í flokki, meðal jafninga,
formaður Hægri grænna, sem heitir Helgi Helga-
son".
Nú er það fyrst til að taka að það að vera
ekki í Schengen þýðir jafn sjálfsagðan hlut
og það að eyþjóðirnar Bretar og Írar sem líka
eru ESB þjóðir, standa utan Schengen. Og hvað
er þá svona hábölvað og ógeðslegt við það að
Ísland sé það líka Heiða B Heiðars? Eru Írar
og Bretar þá allir rasistar og stjórnvöld
þeirra rasistar? Svona málflutningur er ekki
einfaldlega boðlegur!
Jú við í Hægri grænum höfum frá stofnun
flokksins barist fyrir úrsögn Íslands úr
Schengen, enda höfum við þar ekkert að gera
sem eyþjóð eins og Írar og Bretar.
En það er rétt þá höfum við í HG ekki tekið
undir öfgaviðhorf eins og hjá þessarar Heiðu
og hennar öfgavinstrisinnum í málefnum hælis-
leitenda í heiminum í dag. Um að heilu þjóðir-
nar séu fluttar til Evrópu og þúsundir til
Íslands. Og alveg forkastanlegt að ráðast á
okkar ágæta formann í þeim efnum, sem einmitt
hefur reynt að gæta meðalhófs í þessari mjög
viðkvæmu umræðu, og bent á skynsamar og raun-
hæfar leiðir í þessum flóknu málum.
Réttast væri hjá Heiðu B Heiðars að biðja
formann okkar Hægri græna afsökunar á þessum
soraskrifum sínum undir fyrirsögninni ,,Ó þið
þarna vesalings forréttindapungar og píkur".
En kannski þarf hún þess ekki, því svona sori
og brjálæðislegir öfgar dæma sig sjálfir!
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (18)
Schengen-landamæri Íslands hriplek !
27.8.2015 | 20:57
Utanríkisráðherra Austurríkis segir landamæri
ESB, Schengen, ekki virka, þ.e.a.s eru hriplek.
Sem þýðir á mannamáli að Schengen-landamæri
Íslands virka ekki heldur, eru hriplek.
Getur hálfvitahátturinn orðið meiri meðal
íslenskra stjórnmálamanna styðjandi Ísland í
þessu hripleka Schengen-rugli? Og það úti á
miðju Atlashafi!
Horfandi á eyþjóðirnar Breta og Íra sem eyþjóðir
ekki í Schengen! Já sem eyþjóðir eins og Ísland!
Og bæta svo gráu ofan á svart, og láta No Borders
og Ottar Proppé og félaga galopna allar dyr að
Íslandi, með óheftu flæði ólöglegra hælisleitenda
inn í landið. Með himinháum kostnaði og fjárhæðum,
sem ekki eru til í hinu auma íslenska ,,velferðar-
kerfi" .
Já, hefur hálfvitahátturinn enginn takmörk hjá
íslenskum ráðamönnum og þingheimi í þessum málum?
Úr öllum takti við afgerandi vilja þjóðarinnar sbr.
skoðanakönnun á Útvarpi Sögu í dag!
Hjá okkur í Hægri grænum er málið hins vegar mjög
einfalt.Fylgjum eyþjóðunum Bretum og Írum. Ekkert
Schengen! Og hlustum ekki á No Borders heldur !
Segir landamæragæslu ESB ekki virka | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Stórgallað frumvarp um hælisleitendur komið fram.
25.8.2015 | 20:29
Stórgallað frumvarp um hælisleitendur er nú
komið fram. Að þverpólitísk samstaða sé um
málið á Alþingi, sækir að manni hroll. Enda
ástæða til! Engu líkara en No Borders hafi
samið það !
Furðulegast er að fulltrúar Sjálfstæðisflokks
og Framsóknar skulu falla svona fyrir viltustu
draumum og viðhorfum vinstrimanna í þessum
viðkvæma málaflokki. Í ljósi algjörrar upp-
lausnar í Evrópu í dag og fyrirsjáanlegra
mikilli áttaka í álfunni vegna ólöglegra
hælisleitenda. Sem Evrópusambandið er gjör-
samlega búið að missa stjórn á. Endanlega!
Það að Ísland er enn aðili að Schengen-ruglinu
gerir málið enn alvarlegra. Hriplek landamæri
Schengen þýða í raun hriplek landamæri Íslands.
Og nú á enn að bæta í betur og gera dyrnar að
Íslandi galopnar fyrir ólöglega hælisleitendur,
sem geta skipt þúsundum næstu árin ef fram
heldur sem horfir, með tilheyrandi ofurkostnaði
og illleysanlegum vandamálum fyrir Ísland.
Það að Ottar Proppé þingmaður skuli hafa verið
látinn hanna ruglið er í samræmi við frumvarpið.
Þingmaaðurinn sem hefur barist m.a fyrir því
að leggja nánast íslensk mannanöfn niður eða
afbaka! Augljóslega í ljósi þessa óskapnðar!
Nú hlýtur þjóðin að rísa upp og krefjast þjóðar-
atkvæðagreiðslu um stórmál þetta, verði það sam-
þykkt. Svona ofurrugl gengur ekki að þjóðinni
forspurði.
HÆGRI GRÆNIR eru eini stjórnmálaflokkurinn á
Íslandi sem hefur krafist úrsagnar úr Schengen.
Og hefur áréttað þá stefnu sína nýlega. Þá hefur
hinn nýji formaður flokksins, Helgi Helgason,
lýst andstöðu við frumvarpið.
Frumvarp þetta er í raun forkastanlegt, og
móðgun við íslenska þjóð. Miðað við ástand
heimsmála í dag og ekki síst ástandsins í
velferðarmálum á Íslandi. Þar sem þúsundir
Íslendinga eiga varla fyrir mat og eru á
götunni. Bókstaflega!
SKANDALL !!!!!!
Hætti að tala um hælisleitendur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Forsetinn bjargi klúðrinu mikla !
18.8.2015 | 21:41
Heyrir það ekki til algjörra undantekninga,
að forseti Íslands þurfi að mæta á neyðar-
fundi með erlendum sendiherra vinarþjóðar,
eftir að utanríkisráðherra og ráðuneyti
hans hafa klúðrað svo málum í samskiptum
þjóðana, að við blasir algjört uppnám í
70 ára mikilvægum viðskiptum þeirra?
Jú, það heyrir til algjörra undantekninga.
Algjörra!
Klúður á klúður ofan, og enn meira klúður
nú, sem seint eða aldrei verður toppað,
hefur einkennt embættisfærslur Gunnars
Braga í ráðherrastóli utanríkismála.
Og enn situr hann samt !
Að Ísland hafi þannig tekið meðvirknis-
lega þátttöku í viðskiptaþvingunum gegn
sjálfu sér, á sér hvergi heimssögulegar
hliðstæður í alþjóðaviðskiptum. Því að
þungar búsifjar Íslendinga verða margfalt
á við aðrar þjóðir, og nánast engar hjá
þeim sem þvingunum er beitt að. Hvorki
Rússum né ESB-ríkjum. Hvað þá USA! Nema
litla Íslandi.
Og undir öllu þessu situr svo allt
klapplið ESB-trúboðsins á Íslandi, með
ráðuneytisstjóra sinn á fremsta bekk!
Flissandi!
Snild! Já tær snild!
Í pólitískum hálfvitahætti!
Forsetinn ræðir við Rússa | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Hægri grænir móti viðskiptaþvingunum
17.8.2015 | 20:44
Mikil ólga er nú meðal aðila í sjávarútvegi
og fjölda annarra, vegna þátttöku Íslands í
viðskiptaþvingunum ESB gegn helstu við-
skipta- og vinaþjóð okkar, Rússum.
Alveg sérstaklega gremst mörgum og skilja
alls ekki þátttöku Íslands, þar sem Ísland
er utan ESB, og að íslenska þjóðarbúið mun
uppskera a.m.k tuttugu sinnum þyngri búsif-
jar en öll hin ríkin sem standa að þessum
vafasömu þvingunum. Engin þjóð verður fyrir
jafn alvarlegri lífskjaraskerðingu og Ís-
lendingar. Sem er jú gjörsamlega óásættan-
legt, hvernig sem á það er litið !
Sorglegast er þó að horfa upp á hversu
óundirbúin íslensk stjórnvöld voru gagnvart
afleðingum þessara þvingana. Bæði pólitísk
og efnahagslega. Utanríkisráðuneytið hefur
gjörsamlega brugðist í máli þessu, og sem
pólitískur ábyrgðaraðili ber utanríkisráð-
herra að víkja þegar í stað, vegna vítaverða
afglapa í starfi. Algjör vanræksla þar sem
gríðarlegir þjóðarhagsmunir eru í húfi, er
einfaldlega ekki hægt að líða! Þess vegna
ber utanríkisráðherra og ráðuneytisstjóri
hans að víkja! Strax!
Athyglisverðast er þó að horfa upp á hvernig
stjórnmálin á Íslandi togast á þvers og kruss
í stórmáli þessu. Einkum hvernig ESB-sinnar
taka útþenslustefnu ESB í Evrópu fram yfir
borðliggjandi þjóðarhagsmuni Íslands, sem
minnir nöturlega á Icesave-undirlægjuháttinn.
Aðeins einn stjórnmálaflokkur virðist hafa
haft djörfung og dug að mótmæla og álykta
meðvirknisþátttöku Íslands gegn sjálfu sér!
HÆGRI GRÆNIR! Sem segir jú margt átakanlegt
um íslensk stjórnmál í dag!
Markmiðið að samræma aðgerðir | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Laumu sósíaldemókratar koma útúr skápunum
16.8.2015 | 21:54
Svo virðist sem laumu sósíaldemókratar og
ýmiss fylgitungl þeirra komi nú út úr
skápunum einn af öðrum. Einkum virðst
þetta eiga við Framsóknarflokkinn þessa
daga.
Frægastur er að sjálfsögðu utanríkisráð-
herrann, og áberastur. En vart má á milli
sjá sjónarmið hans og viðhorf við þá hörð-
ustu úr ESB-trúboðinu. En sem kunnugt er
uppsker íslenska þjóðarbúið nú tuttugu
sinnum þyngri búsifjar en nokkuð annað ESB
ríki vegna þessara svokölluðu ,,viðskipta-
þvingana" gagnvart vinaþjóð okkar Rússum.
Minna mátti það alls ekki vera! Til að
þóknast valhöfunum í Brussel.
Og þá er ekki sökum að spyrja, er blóðið
rennur til skyldunar. Karl nokkur Garðarsson
þingmaður Framsóknar rekur andlit sitt út úr
skápnum í dag. Talandi um ,,stórgróssera" og
fylgitungl þeirr sem voga sér að drjúpa ekki
í duftið þeirra í Brussel. Með tilheyrandi
furðusöguskoðunum sem á enga stoð í raunveru-
leikanum, heldur þvert á móti!
Já þetta er að verða mikill uppskerumánuður
laumu sósíaldemókratana í Framsókn. Því ekki
er langt síðan Eygló nokkur Harðardóttir
velferðarráðherra sá sína sæng útbreidda til
að bjóða 50 íslamistum inn í hið ,,margrómaða"
og ,,stóröfluga og offjármagnaða" velferðakerfi
sitt á Íslandi.
Já allt er þetta með eindæmum. Enda mun fjöl-
mörg pólitísk harakíri vera nú í uppsiglingu!
Því eins og kunnugur sagði. ,,Eitthvað hlýtur
að láta undan".
Enginn skortur á stórgrósserum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)