Skil alls ekki formann Sjálfstæðisflokksins


   Formaður Sjálfstæðisflokksins vill að forsetinn samþykki Icesave.
Þvert á þorra þeirra sjálfstæðismanna sem hafa tjáð sig um þetta
mál. Þetta kom fram í hádegisfréttum RÚV.

   Hvað hefur komið yfir formann Sjálfstæðisflokksins að vilja ekki
að þjóðin afgreiði málið? Mesta klúðursmál Íslandssögunar! Sem
mun hafa meiriháttar efnahagslegar afleiðingar fyrir þjóðina en
nokkuð annað mál a.m.k frá fullveldistökunni 1918. Og að þetta
skuli koma fram hjá formanni Sjálfstæðisflokksins á þeirri ÖGUR-
STUNDU sem forsetinn er að ákveðja sig, er gjörsamlega óskiljan-
legt. - Og það undir þeim augljósum kringumstæðum að meirihluti
Alþingis er að gera forseta  Íslands að fífli, með því að ógilda þá
fyrirvara sem forseti setti fyrir samþykki sínu á Icesave-þjóðsvik-
unum í haust og ætlast til að hann kokgleypi hin nýju lög athuga-
sæmdalaust.

   Hér hefur formaður Sjálfstæðisflokksins enn og aftur gert alvar-
leg pólitísk mistök. Sat hjá við afgreiðslu málsins í haust, og vill
ekki að þjóðin sjálf taki ákvörðun um örlög sín í þessu stærsta
máli lýðveldisins í sjálfsagðri þjóðaratkvæðagreiðslu.

    Enn eitt dæmið hversu brýnt það er að þjóðin eignist ALVÖRU
borgaralegan flokk á þjóðlegum grunni!
  
   www.fullvalda.is
   www.frjalstisland.is

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Valur Jensson

Þessi maður reynist allt í einu erkiklaufi, vanhæfur og er þar að auki hlynntur innlimun okkar í Evrópubandalagið. Sjálfstæðisflokkurinn ætti að losa sig við hann sem fyrst. Hann er líka of mikill frjálshyggjumaður, eins og hann hefur sýnt í ýmsum málum, hvað sem hann segir nú. Hann er alveg nógu ríkur til að geta fundið sér eitthvað annað til að gera, áður en hann veldum flokknum og þjóðinni enn meiri skaða.

Jón Valur Jensson, 4.1.2010 kl. 15:28

2 Smámynd: Jón Valur Jensson

... veldur!

Jón Valur Jensson, 4.1.2010 kl. 15:29

3 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Okkur vantar sannan hreinan Þjóðlegan Íhaldsflokk Jón Valur minn með
gömlu góðu gildin í fyrirrúmi!

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 4.1.2010 kl. 20:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband