Stefna Vinstri grænna er efnahagsleg hryðjuverkastarfsemi !!!!


   Sem betur  fer  hrynur  nú fylgið  af  ríkisstjórninni og
vinstriflokkum  hennar. Það  er blettur  á  okkar  lýðveldi
og lýðræði  að  í upphafi  21 aldar skuli sitja í ríkisstjórn
Íslands  öfgasinnaður  vinstriflokkur,  forveri  hérlendra 
kommúnista, sem  hefur  heljartök  á allri  atvinnulegri 
uppbyggingu  í  landinu. Flokkur  sem kemur hvað eftir
annað í veg  fyrir mannfrekar stórframkvæmdir víðsvegar
um  land  í  bullandi  atvinnuleysi,  vegna  öfgakenndra
sjónarmiða í umhverfismálum. Af því leiðir áframhaldandi 
eymd, kreppa og  atvinnuleysi, því  hagsvöxtur er grund-
völlur uppbyggingar  og velferðar  þjóðarinnar. - Flokkur
sem  hefur  haft  forystu  í  Icesave-þjóðsvikunum. Sem
gengur út á að skuldsetja íslenzkan ríkissjóð fyrir hundraði
milljarða  króna  án neinna  lagastoða, vegna  skuldaslóða
útrásarmafíuósa  og  glæpa  þeirra.  Sem er í reynd topp-
urinn  á  efnahagslegri  hryðjuverkastarfsemi  VG  gegn
íslenzkri  þjóð  til  þessa, og  þjónkun  þeirra við útrásar-
mafíuósa.  - Og  flokkur ásamt andþjóðlegum sósíaldemó-
kratiskum systurflokki sínum, gerir svo alvarlega atlögu að
sjálfu fullveldi og sjálfstæði íslenzkrar þjóðar með umsókn
Íslands að ESB, þannig að þjóðin þarf nú aftur að fara að 
eiga í  nýrri sjálfstæðisbaráttu.

   Það  er hörmulegt til þess að vita að íslenzk þjóð skuli
þurfa að sitja uppi með slíka afdankaða afturhalssama og
óþjóðholla vinstrimennsku, þegar kraftur uppbyggingar
þarf að hefjast, eftir afvegavilluflan sósíaldemókrata með
sitt stórgallaða EES-regluverk fyrir örsmátt hag- og stjórn-
kerfi Íslands.

   ÁFRAM ÍSLAND! EKKI ESB né SCHENGEN! EKKERT ICESAVE né AGS! 
mbl.is Kippi mér ekki upp við kannanir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Guðmundur.

Veit ekki alveg, bókhaldið er það í lagi ?

Hvað borðar þú til að vera svona  ?

JR (IP-tala skráð) 20.3.2010 kl. 00:56

2 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

A.m.k blóm í mínum haga þú nafnleyndi JR!

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 20.3.2010 kl. 01:01

3 Smámynd: Þórarinn Baldursson

Guðmundur! Þetta eru stór góð skrif hjá þér!Það er þingra en tárum taki að þessir bjánar skuli vera við stjórn. Gera bókstaflega ALTT vitlaust!Ég get fullyrt að meiri partur Þjóðarinnar tekur undir hvert einasta orð sem þú segir hér að ofan.Þetta fólk verður að fara frá áður enn altt verður vitlaust.

Þórarinn Baldursson, 20.3.2010 kl. 02:26

4 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Takk fyrir innlegg þitt Þórarinn!

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 20.3.2010 kl. 22:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband