Kattarþvottur Svavars aumkunarverður !


   Hann er aumkunarverður kattarþvottur Svavars  Gestssonar
í Fréttablaðinu í dag. En þar reynir hann enn af veikum  mætti
að verja þjóðsvikasamning sinn um Icesave, ásamt því að taka
undir orð sumra Icesavesinna, sem trúa því enn að Icesave-þjóð-
svikin hafi verið góð.  Greinilegt er að Icesave-kóngurinn Svavar
kann ennþá ekki að skammast sín. Eins og flestir úr hans ranni.

   Þjóðarsvikin í Icesave er svartur blettur á vinstrimennskunni
á Íslandi. Loks þegar hreinræktuð vinstristjórn varð til að þá
skuli Ísland vera í aðildarferli að ESB með Icesave-þjóðsvikin í
farteskinu. - Hafi maður einhvern tímann verið anti-vinstrisinni,
þá er það  einmitt nú. - Og vonandi  verður  hin and-þjóðlega
vinstristjórn  krata og  kommúnista þjóðinni víti  til varnaðar,
þegar kosið verði næst. Sem óðum styttist í !

  ÁFRM ÍSLAND! EKKI ESB né SCHENGEN! EKKERT ICESAVE né AGS!

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þórarinn Baldursson

Mæltu manna heilastur.

Þórarinn Baldursson, 1.4.2010 kl. 14:21

2 Smámynd: Kristján H Theódórsson

Samkvæmt kenningum Svavars og hans skoðanabræðra eru hverskonar hótanir og kúganir best afgreiddar með að beygja sig umyrðalaust undir vilja kúgarans, og þiggja gott veður að launum!

Kristján H Theódórsson, 1.4.2010 kl. 14:53

3 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Hjartanlega sammála Guðmundur.

kv.Guðrún María.

Guðrún María Óskarsdóttir., 2.4.2010 kl. 00:11

4 Smámynd: Júlíus Björnsson

Ráðbruggið um að hengja baka fyrir smið, er eina sem alþjóða afæturnar á Íslandi kunna til að bjarga eigin skinni.

Segjum að gerð yrði 10 ára áætlun og virkja skyldleika þorra þjóðarinnar í stað þess að sundra henni í minni hlutahópa. Skera fjármálakostnaðargeiranna og afætufræðingageiranna [sumir gera gagn] niður um 90%. Fara svo í að flytja inn smáræði af hráefnum. Millifæra þetta lið í allskonar framleiðslustörf [samsetningu raftækja, fatnaðargerð,... allt sem hægt er að fullvinna úr náttúru auðlindum Ísland] á 75% af tekjum sem þetta lið tekur til sín af hagvaxtagrunninum í dag.

Hver yrðu þá lámarksgrunnlaunin hér og skuldastaða þjóðarinnar eftir 10 ár?

Þjóðverjar eru eitt af fáum ríkjum í EU sem hægt er að taka til fyrirmyndar að mörgu leyti.

Letingjar eru í eðli sínu heimskar skammsýnar afætur. Enginn verður óbarinn biskup.

Verkin lofa meistaranna.

Betlar í matarleit og sjúklingar í kvölum á biðlistum.  Í stað þess að borg 66% í húsnæðiskostnað að jafnaði þá telja vitskertir bankastjórnar að almenningur hér geti borgað 110% til næstu 40 ára.

Öreiga snjóboltinn er farinn af stað niður brekkuna, er þín fjölskylda næst í röðinni. Bíða gerðu menn fyrir síðustu heimstyrjöld af því sannleikurinn var of ótrúlegur. Það sem hægt er að gera nágrönum þínum er líka hægt að gera þér þegar afætur eru annars vegar.

Fjölda einelti undir merkjum Ríkisstjórnanna  bitnar á ný Breiðavíkurkynslóðinni sem er að vaxa upp. Stórt skal það vera í þetta skiptið.

Byrgja skal brunnin áður en barnið dettur ofan í hann.

Júlíus Björnsson, 2.4.2010 kl. 13:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband