Allsherjar uppstokkun í stjórnmálum lykilatriði !
17.4.2010 | 00:33
Allsherjar uppstokkun og hreinsun þarf að eiga sér stað í
íslenzkum stjórnmálum, nú eftir skýrslu rannsóknarnefndar
Alþingis. Fyrr munu íslenzk stjórnmál ekki öðlast það traust
og þá virðingu sem er grundvöllur alls lýðræðis og eðlilegra
stjórnarhátta. - Það er megin niðurstaða skýrslu rannsókn-
arnefndar Alþingis.
Því þarf að fara fram nýjar alþingiskosningar þar sem kjós-
endur og stjórnmálaflokkar fái tækifæri til þessarar allsherjar
uppstokkunar og hreinsunar. Þetta er lykilatriði! Jafnvel er
nauðsýn á að nýir stjórnmálaflokkar komi fram, svo laskaður
er Fjórflokkurinn orðinn. Nýir flokkar og nýtt heiðarlegt fólk í
stjórnmálin!!! - Nýtt upphaf!
Vinstri grænir eru ekki undanskildir. Aðkoma þeirra að Ice-
save er slík að þeir flokkast klárlega sem þjóðsvikarar. Í raun
ætti Icesave-stjórnin öll að segja af sér þegar í stað fyrir meiri-
háttar afglöp og aðför að sjálfstæði þjóðarinnar, sbr. Icesave
og ESB-umsóknin.
Ísland þarfnast öflugs og heiðarlegs ÞJÓÐARFLOKKS! Flokks
sem þjóðin getur 100% treyst í því að stjórna alfarið í þágu
ÞJÓÐARHEILDAR, ÞJÓÐARHAGSMUNA og kristinna lífsgilda.
Flokk þjóðfrelsis og framfara!
Þjóðhyggjufólk á mið/hægri kanti íslenzkra stjórnmála kallar á
slíkan flokk í dag!
Hvar ertu minn Þjóðlegi Frelsisflokkur?
ÁFRAM ÍSLAND! EKKI ESB né SCHENGEN! EKKERT ICESAVE né AGS!
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Sæll Guðmundur.
Held þú hafir rétt fyrir þér í þessu efni.
kv.Guðrún María.
Guðrún María Óskarsdóttir., 17.4.2010 kl. 00:54
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.