Allsherjar uppstokkun í stjórnmálum lykilatriði !


   Allsherjar uppstokkun og hreinsun þarf að eiga sér stað í
íslenzkum stjórnmálum, nú eftir skýrslu rannsóknarnefndar
Alþingis. Fyrr munu íslenzk stjórnmál ekki öðlast það traust
og þá virðingu sem er grundvöllur alls lýðræðis og eðlilegra
stjórnarhátta. - Það er megin niðurstaða skýrslu rannsókn-
arnefndar Alþingis.

   Því þarf að fara fram nýjar alþingiskosningar þar sem kjós-
endur og stjórnmálaflokkar fái tækifæri til þessarar allsherjar
uppstokkunar og hreinsunar.  Þetta  er lykilatriði! Jafnvel er
nauðsýn á að nýir stjórnmálaflokkar komi fram, svo laskaður
er Fjórflokkurinn  orðinn. Nýir flokkar og nýtt heiðarlegt fólk í
stjórnmálin!!! - Nýtt upphaf!

   Vinstri  grænir  eru ekki  undanskildir. Aðkoma þeirra að Ice-
save er slík að þeir flokkast klárlega sem þjóðsvikarar. Í raun
ætti Icesave-stjórnin öll að segja af sér þegar í stað fyrir meiri-
háttar afglöp og aðför að sjálfstæði þjóðarinnar, sbr. Icesave
og ESB-umsóknin. 

    Ísland þarfnast öflugs og heiðarlegs ÞJÓÐARFLOKKS! Flokks
sem þjóðin getur 100% treyst í því að stjórna alfarið í þágu
ÞJÓÐARHEILDAR, ÞJÓÐARHAGSMUNA og kristinna lífsgilda.
Flokk þjóðfrelsis og framfara!

   Þjóðhyggjufólk á mið/hægri kanti íslenzkra stjórnmála kallar á
slíkan flokk í dag!

   Hvar ertu minn Þjóðlegi Frelsisflokkur?

  ÁFRAM ÍSLAND! EKKI ESB né SCHENGEN! EKKERT ICESAVE né AGS!

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sæll Guðmundur.

Held þú hafir rétt fyrir þér í þessu efni.

kv.Guðrún María.

Guðrún María Óskarsdóttir., 17.4.2010 kl. 00:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband