Er LÍÚ farið að horfa til gróðra-sölu á kvótanum til ESB?


   Hvað á maður að halda ? Formaður LÍÚ vill ekki að aðildar-
umsóknin, aðildarferlið að ESB, verði tekið til baka. Segir að
markmiðið sé að gera góðan samning fyrir Ísland.  Talaði
Adolf Guðmundsson, formaður LÍÚ, í siðdegisútvapi rásar 2
fyrir LÍU eða sem einstaklingur? Eða er LÍÚ farið að hallast
að ESB-aðild? Að það sé að renna upp fyrir þeim að félagar
þeirra í LÍU gætu komið til með að stórgræða á kvótabraski
innan ESB gerist Ísland aðili að því sambandsríki. Því eitt er
100% víst við inngönguna í ESB. Óheftar fjárfestingar verða
leyfðar í íslenzkum útgerðum. Sem þýðir í raun að allur kvóti
Íslandsmiða fer á opið markaðstorg ESB. Sem þýðir að veiga-
mesta auðlind Íslendinga, kæmist í eigu útlendinga á mjög
skömmum tíma Þeitta  veit LÍÚ. Sem yrði AFLEIT NIÐURSTAÐA
fyrir Íslenzka þjóð. En kjörin niðurstaða fyrir kvótabraskara
innan  LÍÚ.  En óheftir græðgisbraskarar hugsa ALDREI  um
þjóðarhag, eins og íslenzka þjóðin er svo meiriháttar búin
að fá að reyna.

   ÁFRAM ÍSLAND. EKKI ESB né SCHENGEN! EKKERT ICESAVE né AGS!

   ÁFRAM H Æ G R I  G R Æ N I R !

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Ingi Cæsarsson

Eitt af því sem fæst með aðild og upptöku evru - STÖÐUGLEIKI: "Eigið fé Vinnslustöðvarinnar er tæplega 30 milljónir evra og eiginfjárhlutfallið tæp 33% samkvæmt nýsamþykktum reikningum 2009. Ef sömu reikningar félagsins hefðu verið gerðir upp í íslenskum krónum væri eigið fé hins vegar nei­kvætt um 872 milljónir króna og eiginfjárhlutfallið væri nei­kvætt um 8,7%."

Jón Ingi Cæsarsson, 4.8.2010 kl. 22:26

2 Smámynd: Árni Gunnarsson

Jón Ingi: Stöðugleiki einn og sér er ekki alltaf eftirsóknarverður. Til dæmis er stöðugleiki í ræfildómi ekki eftirsóknarverður.

Það segir mér nóg um ábata okkar hversu opinskátt Evrópuþjóðir tala um  ávinning þeirra við inngöngu okkar. Það er stórmerkilegt að við Íslendingar sjáum ekki sjálfir hversu miklu við erum að afsala með inngöngunni í þetta gímald sem á alls kostar við okkur ef við álpumst þar inn fyrir dyr.

Árni Gunnarsson, 4.8.2010 kl. 23:23

3 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sæll Guðmundur.

Ég trúi því nú ekki fyrr en ég tek á að LÍÚ, hafi skipt um skoðun í þessu efni.

kv.Guðrún María.

Guðrún María Óskarsdóttir., 4.8.2010 kl. 23:26

4 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Jón Ingi. Þú ert úti á túí talandi hebresku við mig! Sem ég  mun ALDREI SKILJA!

Takk Árni og Guðrún fyrir innleggin ykkar hér!

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 5.8.2010 kl. 00:19

5 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Sjálfstæðismönnum er ALLS EKKI treystandi í Evrópumálum. Ekki einu sinni
innan LÍÚ! Eins og nú er komið á daginn!

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 5.8.2010 kl. 00:30

6 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Og í þessu ljósi. Hvað með auðlindakjaftæði VG og krata í þjóðareign?

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 5.8.2010 kl. 00:37

7 Smámynd: Atli Hermannsson.

Guðmundur; LÍÚ neyddist til að slaka aðeins á þvergirðingshættinum þegar þeim var orðið ljóst að þeir gátu ekki lengur blekkt þjóðina með því að segja, að með inngöngu í ESB opnaðist fyrir fjárfestingar erlendra ríkisborgara. Almenningur veit nú að þegar er opið upp að 49% markinu eins og ég hef margsagt þér og Kínverjarnir hafa staðfest með fjárfestingum sínum.

Þar sem þú hefur ofsafóbíu gegn erlendum útgerðum og skipum, má benda þér  á að einu stærsta fiskiskipi sem nokkru sinni hefur verið  gert út frá Spáni og af spænsku fyrirtæki, var flaggað hingað inn fyrir nokkrum dögum og málað í Samherjalitunum. Spurning hvort þér finnist það í lagi vegna þess að eignarhaldið er íslenskt? Taktu svo eftir því þegar því verður flaggað út og málað aftur í sama lit, en ég spái að það verði ekki svo langt þangað til.

Í dag voru einnig fréttir af því að sama útgerð var að kaupa stóra rækjuútgerð og vinnslu í Kanada. Spurning hvort "arður" af auðlindinni okkar hafi ekki verið fluttur úr landi og notaður til að fjármagna kaupin?

Atli Hermannsson., 6.8.2010 kl. 01:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband