Enn fjölgar ESB-sinnum í Vinstri grænum.


    Já vert er að óska Vinstri grænum innilega til hamingju
með að enn skuli fjölga ESB-sinnum í þingliði þeirra.  Og
ekki bara ESB-sinnum. Heldur Icesave-sinnum líka. Enda
segir Ögmundur Jónasson mikil feng að Þráinn Bertelsson
hafi gengið í þinglið Vinstri grænna. Þingmaðurinn  sem
bæði studdi ESB-umsóknina og Icesave-drápsklyfjarnar.
Það er því ekki að undra þótt Ögmundur Jónasson fagni.
Nýbakaður ráðherra í annað sinn í ríkisstjórn sem vinnur
nótt og dag að innlimun Íslands í ESB og að Íslendingar
greiða skuldadrápsklyfjar útrásarmafíuósa til að fá gott
veður inn í stórríki Evrópa.

   Hins vegar hlýtur það að hafa vafist fyrir Þránni hvorn
flokkinn hann átti að velja. VG eða Samfylkinguna.  Því
enginn munur virðist á þessum flokkum lengur.   Þess
vegna er  spurningin  orðin hvenær VG sækir um aðild að
Samfylkingunni nú í aðildaraðlögunarferlinu að ESB.

  ÁFRAM ÍSLAND! EKKI ESB né SCHENGEN! EKKERT ICESAVE né AGS!

  P.s. Sjá HÆGRI GRÆNIR á Facebook........
   
mbl.is Mikill fengur að Þráni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Valur Jensson

Já, Jónas, það er furðulegt að Ögmundur telji þennan Þráin "mikinn feng" fyrir VaffGéið! Ráðherranum Ögmundi er alls ekki treystandi og sízt í sjálfstæðismálum þjóðar okkar.

Jón Valur Jensson, 9.9.2010 kl. 04:28

2 identicon

Hafið í huga að Þráinn tekur sæti í Órólegu deildinni. Hann mun sitja aftarlega en vinstra megin. Það er eðlilega fengur að slíku.

Hrafn Arnarson (IP-tala skráð) 9.9.2010 kl. 09:40

3 Smámynd: Jón Valur Jensson

Nei, ætli hann gangi ekki í Esb-deildina með Steingrími, Árna Þór og Birni Vali.

Jón Valur Jensson, 9.9.2010 kl. 12:29

4 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Takk Jón og Hrafn. Hvenær hafa kommúnistar tekið þjóðfrelsi alvarlega ?

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 9.9.2010 kl. 15:33

5 Smámynd: Elle_

Hins vegar hlýtur það að hafa vafist fyrir Þránni hvorn flokkinn hann átti að velja. VG eða Samfylkinguna.  Því enginn munur virðist á þessum flokkum lengur.

Góður, Guðmundur.  Grátlegt með VG og sammála ykkur.  Þráinn er ekki mikill fengur eftir að hafa hvolfst í bæði EU og Icesave eftir stólsetu í Alþingi.  Hann er þó NÁKVÆMLEGA EINS OG STEINGRÍMUR, HVOLFDIST.  Ekki að undra að honum hafi verið bæði fagnað og stórfagnað.  Mæli með Evrópuverðlaununum núna eins og Guðmundur minntist á fyrir Steingrím um daginn. 

Elle_, 9.9.2010 kl. 22:52

6 Smámynd: Jón Valur Jensson

Takk, Jónas. Ég hugsa og hugsa og kem því alls ekki fyrir mig, hvenær kommúnistar hafi tekið þjóðfrelsi alvarlega.

En um Þráin og VG birti ég smá-pistil kl. 9.30 í fyrramálið og minnist kannski á hann í erindi mínu í Útvarpi Sögu kl. 12.40-13.00.

Jón Valur Jensson, 10.9.2010 kl. 01:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband