Landeyjarhöfn aulahátturinn í hnotskurn !


   Landeyjarhöfn er aulahátturinn í hnotskurn. Minnir á
sögu um Bakkabræður er hugðust bera út myrkrið. Alveg
dæmigert um íslenzkt stjórnarfar og stjórnsýslu fyrr  og
nú. Enda Ísland stjórnlaust og nánast gjaldþrota. Allt
fyrir YFIRGENGILEGAN aulahátt, agaleysi, ábyrgðarleysi,
fyrirhyggjuleysi, og OFUR-STJÓRNLEYSI! Handónýta
stjórnmálastétt og gjörspillt embættismannakerfi. - Sem
svo kristallast í niðurstöðu rannsóknarnefndar Alþingis í
dag.  Niðurstöðu syndarmennsku og aulaháttar!

  


mbl.is „Verra en við bjuggumst við“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Haraldsson

Samála því með stjórnmálastéttina en ekki Bakkabræður því að þeir hugðust bera sólina inn.

Sigurður Haraldsson, 11.9.2010 kl. 13:39

2 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Takk fyrir að leiðrétta mig Sigurður. En hvort tveggja væri jafn vitlaust og
kemur því út á eitt. Aulaháttur!

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 11.9.2010 kl. 13:45

3 Smámynd: Sigurður Haraldsson

Nákvæmlega!

Sigurður Haraldsson, 11.9.2010 kl. 13:54

4 identicon

Eigum við ekki að gefa þessu smá tækifæri.

Það er ekki eins og að það sé bara allt klárt það er verið að sja hvaðan sandur kemur hvernig hann hleðst upp svo er faið í að ákveða hvað þarf til að laga þetta

Nærtækt Dæmi er Höfnin í Hanstholm sem stendur á sandi og er við mjög líkar aðstæður nema að þar er ekki jökulfljótið að bera sand að henni en Norðusjórinn er grynnri og kröpp aldan ber sandinn að þar en á endanum er hún alltaf opinn

Guðmundur (IP-tala skráð) 11.9.2010 kl. 14:21

5 Smámynd: Júlíus Björnsson

Launsirnar í Síðustu þjóðar sátt um 1980  [ekki alveg jafn mikið hrun] lækka laun almennra launþega um 30% í evrum hagræða svo í þjónust við þá sömu og skipta um verðflokka á gæðum þjónustu og varnings. Inna leiða svo kölluð ofurvertryggingar fölsuð jafgreiðlu lán og gera ráð fyrir að 70% þeirra sem gætu ekki staðið undir hæstu raunvaxtakröfu í heimi myndu skipta 25 ára lánum [staðalin erlendis er 30 ár 20 % ódýrari] yfir í 45 ára lán.

Besta ávöxtun erlendis er talin örugg 1-2% raun ávöxtun af jafngreiðslulánum [allir gjalddagar vertryggðir eðlilega jafnháir allan tíman] til 30 ára tekin af meðalmanninum  með veði í húsnæðinu sem selt hraðast.

Hér er verðtryggð raunávöxtun til að byrja með um 4,5% [4,5/2 = gefur 225% hærri vaxta upphæð en annarsstaðar] en liggur á bilinu 1,79%-1,99% í UK í þessum örugga lánaflokki.

Til að byrja með vegna þess að falsaða jafngreiðslu lánið er reiknað með neikvæðri veðaflosun og endurreiknað í heildina miðað við verbólgu leiðréttingu.

Erlendis er hver gjalddagi sjálfstæð skuld til leiðréttingar með til verðbólgu og vextir á síðari gjalddögum ekki gjaldfallnir þannig ekki þarf að leiðrétta þá strax.

Einnig er hægt að reikna eðlilega verðtryggt jafngreiðslulán  með tilliti til heildar raunvirðis og þá sýnir samanburður að falsaða formið hér vex langt upp fyrir umsamda heildar raunvirðið.

Skekkja miðað við UK verðbólgu er um  3.000.000 á 30 árum af hverjum 10.000.000.

Þess þykir það í anda jafnaðarmann að skila svipaðri upp hæð til baka í formi verðbóta í ágúst.  [Erlendis myndu menn lækka raunvextina í upphafi og sleppa jafnaðarglæpnum].

Í hruninu var verðbólga miklu meir og verðtryggingar skekkja því miklu meiri.     

Þetta  er erlendis eign lántaka sem sömdu um jafngildi verðtryggðs jafngreiðsluláns [mortgage].

Já hér eru 100% fífl á alþjóðamælivarða við stjórnvöld. Í langtíma lánastarfsemi er alltaf öryggið sem skiptir máli og það sannast á raunvaxta kröfum bréfa undir 2%.

Hér er enn 4,5% byrjunar raunvaxta krafa.

Júlíus Björnsson, 11.9.2010 kl. 16:21

6 identicon

Blessaðir verið ekki að hafa áhyggjur af þessu. Sáuð þið ekki viðtalið við einn snillinginn sem kom að hönnun þessarar innsiglingar. Hann ætlaði í raun ekki að opna höfnina fyrr en 2011 en þar sem hann gerði það ári fyrr, þá var það bort á samningi við náttúruöflin og slíkt er ekki liðið á þeim bæ.

Við megum því eiga von á að þetta verði allt komið í besta horf 2011 en þá munu náttúruöflin náttúrulega hemja sig.

Melur (IP-tala skráð) 11.9.2010 kl. 18:21

7 Smámynd: Gunnar Heiðarsson

Höfnin í Hanstholm er hér nefnd sem dæmi um svipaðar aðstæður og við landeyjasand. Að sumu leiti er það rétt, á báðum þessum stöðum er mikill sandburður. Það sem skilur þessar hafnir hins vegar að er umferðin um þær, í Hanstholm er mjög mikil umferð skipa og er því talið réttlætanlegt að hafa dæluskip nánast í fullu starfi við að halda höfninni opinni. Í landeyjahöfn er hinsvegar einungis eitt skip í ferðum, það er varla hægt að réttlæta þar að hafa dæluskip meira og minna í vinnu við að halda þeirri höfn opinni, jafnvel þó flestir óski Vestmanneyingum alls hins besta.

Gunnar Heiðarsson, 11.9.2010 kl. 19:06

8 identicon

Gleymum ekki að þakka Árna Johnsen fyrir hans þátt í þessu. Í þeim fýr er aulahátturinn persónugerður!

Ybbar gogg (IP-tala skráð) 11.9.2010 kl. 23:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband